18.04.1972
Sameinað þing: 57. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í D-deild Alþingistíðinda. (3482)
12. mál, samgöngumál Vestmannaeyinga
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Ég skal vera mjög stuttorður. Ég vildi aðeins leiðrétta það hjá hæstv. samgrh., að ég hafi haldið því fram. að það hafi verið hagstæð afkoma hjá Herjólfi þennan tíma. Ég held, að ég hafi ekki tekið þannig til orða. (Félmrh.: Dálítið hagstæð, sagðir þú.) Það var þá hagstæðari, það var það, sem ég held, að ég hafi sagt, og það er það, sem ég meina. Þegar skipið á sama tíma flytur fleiri farþega, fleiri bifreiðar og heldur meira vörumagn og siglir styttri leið á einni viku, þá hlýtur afkoman að verða hagstæðari en hún var áður. Það var það, sem ég meinti. Og ég held, að ég hafi einnig sagt hagstæðari, en ekki hagstæð, því að reikninga Herjólfs hef ég skoðað, og eins og þeir liggja fyrir, þá er því miður einnig rekstrartap á því skipi, þó að það væri sjálfsagt mjög æskilegt, að það væri ekki.
Ég ætla ekki að fara að taka upp neinar kappræður um vetrarferðir Herjólfs í Þorlákshöfn. En sannleikurinn er sá, að það sem hefur skort á í sambandi við þetta, er að það hefur ekki fengizt nægjanleg samvinna milli Ríkisskips og ráðamanna í Vestmannaeyjum um að haga ferðum skipsins yfir vetrarmánuðina eftir aðstæðum, sem væru fyrir hendi hvert sinn. Það skapast oft þær aðstæður, að það er ekki flugveður svo og svo lengi. Það safnast fyrir hópur af fólki, sem þarf að komast til Reykjavikur, og við höfum þá mjög oft óskað eftir því, að í staðinn fyrir að láta skipið sigla með allan hópinn kannske í misjöfnu veðri fyrir Reykjanes og til Reykjavikur í 10 tíma, þá yrði það látið koma við í Þorlákshöfn og skila farþegunum þar og héldi síðan áfram til Reykjavíkur. Ég skal viðurkenna, að í sumum tilfellum, sérstaklega þegar um hóp skólabarna hefur verið að ræða, þá hefur þetta verið gert. En því miður hefur ekki verið nægjanleg samstaða um það að haga ferðunum eins og við teljum heppilegast fyrir það fólk, sem þarf að ferðast á milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja, ef annars er aðstaða til þess varðandi veður og fyrirgreiðslu í Þorlákshöfn. Og auðvitað eru það góð rök, að hafnarstjórinn í Þorlákshöfn hljóti að vera kunnugri aðstæðum þar en við úti í Eyjum, en við erum orðnir þeim sæmilega kunnugir. Við erum búnir að fara það marga tugi af ferðum og þekkjum ákaflega vel aðstæður þar, og ef það er bara samvinna á milli allra þessara aðila, þá er hægt að leysa málið mun betur að okkar dómi en hefur verið gert hingað til. Það sem ég vona, að leiði af starfi þeirrar nefndar, sem nú stendur til að skipa í málið, er að meiri samstaða og samvinna skapist á milli þeirra aðila, sem þarna eiga hlut að máli, því að það er öllum fyrir beztu, að svo verði.