18.04.1972
Sameinað þing: 57. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í D-deild Alþingistíðinda. (3483)

12. mál, samgöngumál Vestmannaeyinga

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Aðeins örfá orð, því að það er víst betra að hafa þau ekki of mörg og sízt of hvöss. Ég tók það skýrt fram áðan, að ég ætlaði ekki og nennti ekki að fara að munnhöggvast við hæstv. ráðh. Ég ætla ekki heldur að gera það.

Hvað varðar manndóminn er sem betur fer ekki svo komið enn, að ráðh. geti sagt þm. fyrir um það, hvað þeir eigi að segja hér í stólnum, og ég læt hæstv. samgrh. ekkert segja mér fyrir verkum í því efni.