17.12.1971
Neðri deild: 28. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í B-deild Alþingistíðinda. (352)
126. mál, almannatryggingar
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Það þarf aðeins að gefa nokkra skýringu á því, sem hér hefur verið rætt um varðandi framlenginguna á lagaákvæðunum um launaskatt. Ég gæti tekið undir þær aths., sem hér hafa komið fram um það, að framlengingin á þessu lagaákvæði hefði gjarnan mátt vera í öðru frv. en þessu út af fyrir sig. En hins vegar get ég ekki séð, að það skipti ýkja miklu máli, hvort þetta bráðabirgðaákvæði verður í þessu frv. eða öðru.
Hér er ekki um það að ræða, að verið sé að leggja á nýjan skatt. Hér er aðeins um það að ræða að framlengja skatt, sem verið hefur í gildi, og samkv. fjárlagafrv. er ætlað að halda honum áfram. Þegar launaskatturinn var lagður á á sínum tíma í sambandi við verðstöðvunarlögin, var þar um ákveðna efnahagsaðgerð að ræða, sem hefur verið gert ráð fyrir að halda áfram. Með því að, eins og fram hefur komið hér, ætlunin er, að verðstöðvun semslík falli niður um næstu áramót, þarf að framlengja ýmis ákvæði, sem í þeim lögum eru. Þannig er t.d. gert ráð fyrir því að framlengja þetta ákvæði varðandi launaskattinn, og einnig er áformað að framlengja ýmis önnur ákvæði úr þeirri löggjöf, sem miða að því að halda áfram undir verðlagseftirliti öllu því, sem verðstöðvunarlögin annars bundu. Það má auðvitað segja, að það hefði mátt framlengja verðstöðvunarlögin, semslík út af fyrir sig. En vegna þess að ríkisstj. gerir ráð fyrir því, að leyfðar muni ver8a ýmsar verðbreytingar af eðlilegum ástæðum, eins og nú er komið, finnst ríkisstj. óeðlilegt að kalla þetta ástand verðstöðvunartímabil, en hins vegar er meiningin, að öll ákvæði úr verðstöðvunarlögunum, sem miða að því að banna hækkun á verðlagi á vörum og þjónustu nema að fengnu leyfi viðeigandi stjórnarvalda, verði áfram í lögum. Það hafa því verið gerðar ráðstafanir til þess að biðja aðra n. í þinginu að sjá um að skjóta hér inn í annað frv. ýmsum öðrum ákvæðum, sem betur þykja eiga heima í því frv. um verðlagsmál, þar sem um er að ræða framlengingu á ákvæðum úr verðstöðvunarlögunum. En fjmrn. hefur þótt heppilegt að bæta við þetta frv. framlengingarákvæðunum um launaskatt. Þetta vildi ég, að kæmi fram.
Ég álít, að málið sé ofur einfalt í sjálfu sér. Ef hér eru einhverjir, sem ekki vilja framlengja þennan skatt, sem verið hefur í gildi, þá verður hann að sjálfsögðu borinn upp sérstaklega, og afstaða þeirra til launaskattsins sem slíks kemur þá greinilega fram við atkvgr., en hitt get ég vel tekið undir, að framlengingin á þessu ákvæði hefði gjarnan mátt að mínum dómi vera í einhverjum öðrum lögum fremur en að hnýta þeim þarna, en ég held, að það sé ekki neitt á móti því, að framlengingin sé sem bráðabirgðaákvæði við þessi lög. En hér er sem sagt ekki um það að ræða, að vetið sé að leggja á nýjan skatt, eða gera neina slíka breytingu, og það má segja, að þessi skattur komi ekki þessu máli við sérstaklega, heldur er þetta aðeins almennt í sambandi við tekjur ríkissjóðs, eins og fjárlagafrv. sjálft ber greinilega með sér.