28.04.1972
Sameinað þing: 62. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í D-deild Alþingistíðinda. (3520)
78. mál, rekstrarlán iðnfyrirtækja
Pétur Pétursson:
Herra forseti. Ég get ekki látið þessa umr. fara alveg fram hjá án þess að segja nokkur orð um þessa þáltill. Hv. allshn. hefur fjallað um till. og mælt með samþykkt hennar. Og ég fagna því, að þessi till. skuli fá þessa jákvæðu meðferð.
Ég mun hafa getið þess í fyrri hluta umr., að ég efaðist svolítið um það, að sú viðmiðun, sem till. gerir ráð fyrir, sé sú eina rétta, þ.e. að miða víxlakvóta við þriggja mánaða framleiðslu fyrirtækja og hins vegar að miða yfirdráttarheimildir við kaupgreiðslu viðkomandi fyrirtækja. Það má vera, að þetta sé rétt leið, en mig langar til að vita, hvort umsagnar hefur verið leitað frá bankastofnunum, t.d. Seðlabankanum, sem gert er ráð fyrir, að útvegi viðskiptabönkunum nú þegar sérstök lán til þess að standa undir þessu rekstrarfjármagni. Ég sé ekki á nál., að það hafi verið gert, eða a.m.k. er þess ekki getið, að það hafi fengizt umsögn frá bankakerfinu. Og þess vegna langar mig til að spyrja, ef einhver skyldi treysta sér til að svara því, t.d. hv. flm. einhverjir eða hv. nm., hvort það sé öruggt, að þessi fyrirgreiðsla muni fást. Í niðurlagi grg. með till. er sagt, með leyfi hæstv. forseta:
„Í samræmi við þetta skal það tekið fram af hálfu flm., að litið er á þessa till. sem hreina bráðabirgðalausn og koma þurfi þessum málum í miklu fullkomnara horf í framtíðinni.“
Hér í hv. d. er til meðferðar frv. um verðtryggingu iðnrekstrarlána, og er það mál eitt út af fyrir sig mjög stórt mál og mikil aðstoð við iðnaðinn. Og ef þetta verður framkvæmt líka, þá vil ég segja það, að ég tel, að fjármögnun til rekstrar iðnaðarins sé komin í býsna gott horf. Það er auðvitað gott og blessað að flytja till. og frv. í þessum málum, en ég hefði viljað leita eftir því, — ég sé hæstv. utanrrh., en ég geri ekki ráð fyrir, að hann hafi með þessi mál að gera, — en ef einhverjir talsmenn stjórnarflokkanna vildu þá segja mér, hvort líklegt sé, að þetta fjármagn, sem bæði frv., sem ég nefndi, og þessi þáltill. gera ráð fyrir, að verði til staðar fyrir iðnaðinn, hvort þetta fjármagn verður í raun og veru til ráðstöfunar. Og þetta er auðvitað kjarni málsins. Það er heldur þýðingarlitið og létt í vasa fyrir iðnaðinn, ef aðeins eru sýnd frv. og gerðar till. og hvort tveggja samþykkt, en fjármunirnir, sem þarf til að gera þetta, verða ekki til staðar. Ég skal vera fyrsti maður til að viðurkenna, eins og kemur hér fram í þessari till., sem allmargir hv. framsóknarmenn flytja, fyrsti maður til að viðurkenna með þeim, að það er brýn þörf á því, að þetta verði gert. En þetta er bara ekkert nýtt. Það hefur verið við rekstrarfjárörðugleika að etja fyrir iðnaðinn um langan tíma. Og nú langar mig til að vita, hvort einhverjar þær ráðstafanir kynnu að hafa verið gerðar, sem gera þetta að raunveruleika.