20.01.1972
Sameinað þing: 29. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í D-deild Alþingistíðinda. (3546)

48. mál, umboðsmaður Alþingis

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð um þá þáltill., sem hér er til meðferðar. Eins og kom fram hjá hv. flm., þá er hér síður en svo um nýtt mál að tefla. Þessi till. kom fyrst fram á Alþ. 1964 og var flutt af Kristjáni Thorlacius, sem þá sat hér á Alþ. sem varamaður. Hún var endurflutt 1966 og 1967, og í bæði þau skipti kom það í minn hlut að mæla hér fyrir þessari till., vegna þess að eins og störfum er hagað á Alþ., var þá og er enn langur tími, sem líður oft, þar til flm. komast að með till., og varamenn þurfa oft að hlíta því hlutskipti að vera farnir út af þingi, þegar till. þeirra koma til umr., og svo var einnig í þessum tilvikum. En ég ætla að rifja þetta upp í stuttu máli einungis vegna þess, að í fyrra skiptið, sem ég flutti framsöguræðu um þetta mál tók enginn hv. alþm. til máls. Till. vakti enga athygli, og það var enginn vilji til þess að samþykkja hana. Þetta var nokkuð breytt í síðara skiptið, sem ég hafði framsögu fyrir þessari till. Það var breytt á þann veg, að þá var talað mjög sterklega gegn þessari till. af þáv. formanni Sjálfstfl. Nú hefur orðið sú ánægjulega breyting í þeim röðum, að nú þykir þetta mál sem sjálfsagt sé að samþykkja. Ég er ekki að rifja þetta upp til þess að leggja neitt sérstaklega út af því. Ég bara minni á, að svona hefur málið æxlazt, og það sýnir það, að hér er um þarft mál að tefla, og ég fagna því, að fleiri aðilar, fleiri og fleiri gera sér grein fyrir því, að við getum haft mjög mikið gagn af þessu embætti.

Það var alveg rétt, sem fram kom hjá hv. flm., að strax við 1. umr. um málið, það var áður en ég fór að hafa framsögu fyrir því, þá var einn þáv. hv. þm. mjög óánægður með nafnið lögsögumaður. Það var Einar Olgeirsson. Og þá var því strax lýst yfir af flm. till. og endurtekið af mér í tvö skipti í samráði við hann, að nafnið væri honum og okkur flm. ekkert atriði og það mætti breyta því, eftir því sem Alþ. þætti henta. Nú hafa komið hér fram tvö ný heiti fyrir menn til þess að velta fyrir sér, hvað heppilegast verði að nefna þessa stöðu. Enn þá vil ég undirstrika það, að slíkt er ekkert atriði í mínum augum, heldur hitt, að þessi umboðsmaður, lögsögumaður eða ármaður, getur rétt hlut einstaklinga í samskiptum við ríkisvaldið. Á því var full þörf 1964, og á því er vafalaust full þörf enn, og skiptir ekki máli, hvaða flokkar það eru, sem fara með völdin í landinu.

Ég vildi, áður en þessari umr. lýkur, aðeins láta það koma fram, að bæði ég og aðrir höfum staðið að flutningi þessa máls og að sjálfsögðu hlýt ég sem fyrrv. meðflm. þessarar till. og fyrrv. frsm. hennar í tvö skipti hér á hv. Alþ. að fagna því, að hún er enn þá komin fram, og styðja að því, að hún nái fram að ganga.