12.05.1972
Sameinað þing: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í D-deild Alþingistíðinda. (3563)

87. mál, sjálfvirk radíódufl í skipum

Frsm. (Jónas Árnason):

Herra forseti. Allshn. athugaði þessa till,. og eins og fram kemur í nál., leitaði hún umsagnar hjá póst— og símamálastjórninni, Slysavarnafélagi Íslands og siglingamálastjóra. Og er skemmst frá því að segja, að umsagnir allra þessara aðila voru jákvæðar og allshn. er sammála um það, að þetta sé hið ágætasta mál og mælir einróma með því, að till. verði samþykkt.