17.12.1971
Neðri deild: 29. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (357)

126. mál, almannatryggingar

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Ég lét þess getið við 2. umr., að hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir hefði bent mér á ákvæði í 2. gr. um barnalífeyri, sem betur mætti fara en var í frv. upphaflega, og ég er sammála hv. þm. um þetta atriði.

Í 2. málsl. 2. gr. var komizt svo að orði í hinu upphaflega frv.: „Séu báðir foreldrar látnir eða ófærir um að inna framfærsluskyldu sína af hendi, skal greiddur tvöfaldur barnalífeyrir.“ Þetta mætti túlka þannig, að tryggingarnar væru að taka á sig skyldur gagnvart þjóðfélagshópum, sem tryggingarnar hafa ekki fjallað um til þessa, og það var ekki ætlunin með þessu frv. Þess vegna legg ég til, að 2. málsl. orðist svo: Séu báðir foreldrar látnir eða örorkulífeyrisþegar, skal greiddur tvöfaldur barnalífeyrir. Í því sambandi vil ég minna á, að í sömu gr. eru ákvæði um heimild til að greiða barnalífeyri með barni ellilífeyrisþega.

Ég bar þetta undir hv. heilbr.- og félmn. í morgun, og það varð samhljóða álit n. að vera með þessari brtt. Hún er skrifleg og of seint fram komin, og ég víl biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir henni.