29.02.1972
Sameinað þing: 43. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í D-deild Alþingistíðinda. (3611)

158. mál, verðgildi íslenskrar krónu

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Í grg. þessarar till. og framsöguræðu hv. flm. er rætt um tvö atriði, sem er alveg nauðsynlegt að halda aðgreindum. Annars vegar er efni þessarar till. það að breyta mynteiningunni, þannig að í staðinn fyrir 10 kr. komi 1 kr., í staðinn fyrir 100 kr. komi 10 kr. o.s.frv., taka núll aftan af. Þessi breyting á mynteiningunni hefur út af fyrir sig ekki efnahagslega þýðingu. Hitt atriðið er svo skráning krónunnar eða gengisins út á við, sem er í rauninni allt annað mál. í grg. og raunar framsöguræðu hv. flm. kom hann nokkuð inn á gengisbreytingar, og það er auðvitað öllum nokkurt áhyggjuefni, hversu oft hefur verið lækkað gengi íslenzkrar krónu gagnvart gulli og erlendri mynt. Þá sögu skal ég ekki rekja hér, og má segja í stórum dráttum, að þessar tíðu gengisbreytingar hafi verið bein afleiðing af efnahagsástandinu hér innanlands og sumpart af verðlagi á okkar vörum erlendis. Það er stundum, að stjórnmálaflokkar taka nokkuð stórt upp í sig og lofa því fyrir kosningar, að gengisbreyting eða gengislækkun skuli ekki verða. Svo er m.a. með núv. hæstv. ríkisstj., að hún í rauninni hét því, að gengið yrði ekki lækkað eða a.m.k. ekki notað sem neitt tæki í sambandi við efnahagsmálin. Það, hvað þessi mál eru erfið viðfangs og í rauninni lítt viðráðanleg oft og tíðum, hefur náttúrlega sannazt áþreifanlega nú, því að á þessu fyrsta missiri núv. hæstv. ríkist., sem ætlaði nú ekki að lækka gengið, hefur íslenzka krónan verið lækkuð um sem næst 8%, þar sem hún var látin fylgja falli dollarans. Um þetta þarf náttúrlega ekki í rauninni að ræða, þó að reynt hafi verið að fela þetta nokkuð, en allir vita það, sem þurfa í einu eða öðru sambandi að kaupa erlendan gjaldeyri, að gjaldeyrir flestra þjóða hefur hækkað í verði, a.m.k. sem þessu svarar, sumt meira. Sem sagt, íslenzka krónan hefur fallið um ca. 8% á þessu síðasta missiri. Þetta er staðreynd. Ég segi þetta ekki í neinu átöluskyni, vegna þess að ég tel að það hafi verið óhjákvæmilegt vegna okkar atvinnuhátta að láta íslenzku krónuna fylgja dollaranum.

En í sambandi við gengisbreytingar, sem er annað atriðið, sem hv. flm. hefur gert að umtalsefni, þá vil ég líka taka það fram, að vissuleg var sú gengisbreyting, sem hann nefnir og Jón Þorláksson stóð fyrir, meðan hann var fjmrh., að mörgu leyti gagnleg fyrir þjóðfélagið, þó að því bæri ekki að neita, að hún skapaði vissa erfiðleika fyrir atvinnuvegina líka. Hann nefndi það, að síðan hefði gengið ekki verið hækkað. Ég er þeirrar skoðunar, að á einu skeiði hafi verið möguleikar fyrir gengishækkun. Það var fyrri hluta árs 1970. Þá voru efnahagsástæður þannig hér, aflabrögð og sérstaklega stórhækkandi verðlag á erlendum mörkuðum og aukning gjaldeyrissjóða eftir erfiðleikaárin, þá voru aðstæður og forsendur til þess að hækka gengi íslenzkrar krónu. Að mínu viti hefði átt að gera það þá, og hefði þá margt í okkar efnahags- og fjármálum nú í dag staðið með öðrum hætti en er.

En þetta er aðeins önnur hlið þessa máls og snertir í rauninni ekki beinlínis þá till. sem hér liggur fyrir, en ég minnist á þessa gengisbreytingu, vegna þess að hv. flm. hefur gert hana að umtalsefni. Það sem hér er um að ræða, er í rauninni allt annað. Það er það að taka núll aftan af krónunni, eins og það er stundum kallað, eða að auka verðmæti krónunnar, kannske öllu réttara að taka upp nýja verðmætari mynteiningu. Þetta mál hefur komið til orða hér alloft áður, og ástæðan til þess, að ég stend nú upp hér til þess að taka þátt í þessum umr. er sú, að ég hef tvívegis fjallað um þetta mál áður. Það var á Alþ. vorið 1958. Í almennum stjórnmálaumræðum hér á Alþ. varpaði ég því fram, að rétt væri að taka til athugunar að taka upp nýja og verðmeiri mynt, til þess að fólk mæti hana meira og örvaðist til sparnaðar. Eftir að ég kom til starfa í fjmrn., var þetta mál tekið upp, og á árinu 1962 fól ég þremur starfsmönnum ríkisins að kanna þetta mál. Það voru þeir dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, Klemens Tryggvason hagstofustjóri og Sigtryggur Klemenzson ráðuneytisstjóri í fjmrn. Þeim var m.a. falið að athuga, hvort ekki væri æskilegt að taka upp nýja og stærri mynteiningu en krónan er nú. Þessum þremenningum voru falin fleiri verkefni í þessu sambandi, þ.e. athugun á myntsláttunni almennt, sem ríkissjóður hafði þá með höndum, en þótti æskilegt að fela Seðlabankanum, eins og orðið er núna.

Þremenningarnir skiluðu álitsgerð um þetta efni, og niðurstaða þeirra varð sú, eins og segir, með leyfi hæstv. forseta, í þessari grg. þeirra frá því í sept. 1962:

„Við höfum komizt eindregið að þeirri niðurstöðu, að rétt væri að hefja nú undirbúning að því, að tekin verði upp ný mynteining, tíu sinnum stærri en núgildandi króna.“

Það var sagt í þessari álitsgerð þessu til rökstuðnings, að m.a. mundu með stærri mynteiningu falla niður allar myntir undir 10 aurum og við það sparast mjög verulegur kostnaður, þar sem kostnaður við sláttu þessarar smámyntar væri tiltölulega mjög mikill. Í öðru lagi væri hér um að ræða verulegt hagræði og vinnusparnað fyrir fyrirtæki og allan almenning, og með stærri mynt mundi falla niður einn aukastafur úr öllum peningaupphæðum. Í þriðja lagi, og það er það atriði, sem ég legg nú langsamlega mesta áherzlu á, eins og hv. flm. þessarar till. er það, eins og þeir segja þremenningarnir í sínu nál.:

„Loks teljum við, að breyting mynteiningarinnar og upptaka verðmeiri myntar muni hafa góð sálræn áhrif og stuðla að því að styrkja á ný traust til verðgildis íslenzku krónunnar eftir verðbólguþróun s.l. tvo áratugi.“

Nú var það svo, að um þessar mundir voru tvær þjóðir að breyta sinni mynteiningu. Frakkar höfðu nýlega lokið því, og Finnar höfðu ákveðið að gera það. Hjá báðum þjóðum var ákveðið að stækka mynteininguna hundraðfalt, þannig að í staðinn fyrir 100 franka franska skyldi koma einn nýr franki og tilsvarandi hjá Finnum. Sem sagt, það voru tekin tvö núll aftan af. Hjá þeim var um tvenns konar aðferð að ræða. Frakkar ákváðu þetta með mjög stuttum fyrirvara, tóku upp þessa nýju mynteiningu, nýja frankann, sem var hundrað sinnum verðmeiri en gamli frankinn. Það var ákveðið hjá þeim, að báðar myntirnar, sú gamla og nýja, skyldu vera í umferð um nokkurt skeið, og var það vegna þess, að þar þótti ekki vegna hins skamma fyrirvara framkvæmanlegt að eiga strax nægjanlegt magn seðla og myntar til þess að breytingin gæti farið fram á — skömmum tíma. Ég ætla, að þeir hafi tekið um það bil tvö ár til þess að skipta að fullu, og á því tímabili voru gamla og nýja myntin notaðar jöfnum höndum í öllum viðskiptum í Frakklandi. Til þess að draga úr hættu á misgáningi, var hin nýja mynt látin líta út eins og jafnverðmæt mynt, sem hún leysti af hólmi. T.d. var einn nýr franki að stærð og útliti mjög svipaður og gamall 100 franka peningur

Í Finnlandi var annar háttur á. Þeir tóku sér töluvert lengri tíma til undirbúnings, en létu myntskiptin svo koma til framkvæmda á tiltölulega mjög skömmum tíma, þegar á annað borð var í það ráðizt. Ég held, að allir séu sammála um það, að þessar breytingar hafi tekizt mjög vel og orðið vinsælar bæði hjá Frökkum og Finnum. Þær voru eitthvað umdeildar í byrjun. En eftir á, held ég, að flestir séu þar á einu máli.

Þeir þremenningarnir, sem ég nefndi, höfðu kynnt sér till. og framkvæmdir varðandi þetta mál í báðum þessum löndum og aflað mikilla gagna um það; sem lágu þá fyrir, ef í þetta yrði ráðizt. Þeir lögðu til, að við hefðum finnsku aðferðina, þ.e. tækjum allgóðan tíma til undirbúnings, sem þeir töldu þó, að þyrfti ekki að vera nema um það bil eitt ár. Og síðan þegar ákveðið væri að ráðast í þetta, skyldi skipta um myntina á sem skemmstum tíma, eins og hjá Finnum. Töldu þeir, að því ætti að geta lokið á einum mánuði.

Það er auðvitað augljóst mál, og er rétt að segja það til skýringar, að um leið og slík breyting er gerð, skipt um mynt og seðla, í þessum báðum tilvikum var þarna um að ræða hundraðföldun, breytast vitanlega allar fjárhæðir um leið, allar launagreiðslur, allt vöruverð, allar skuldir o.s.frv. Sem sagt, allar fjárhæðir í landinu breytast að sama skapi. Þannig má segja, að hér sé fyrst og fremst um formbreytingu að ræða, en ekki efnisbreytingu, en þessi formbreyting getur haft og hefur vafalaust haft veruleg áhrif í þessum löndum, fyrst og fremst á því sálræna sviði, eins og hv. flm. lýsti hér mjög greinilega í sinni framsöguræðu. Þegar mynteiningin er mjög lítil, þá finnst mönnum svo litið til hennar koma, og hugsunin um það að spara verður þess vegna miklu minni en ella. Strax þegar mynteiningin er meira virði, ég tala nú ekki um, ef hún er stærri en mynteining margra okkar nágrannaþjóða, t.d. Norðurlandaþjóða. þá hefur það sín miklu sálrænu áhrif og hvetur til aðgæzlu og eykur sparnað.

Mér þótti rétt að rekja gang þessa máls hér og hina ítarlegu athugun, sem fór fram 1962 á þessu máli, og mér finnst allt, sem þá var athugað og sagt um þetta mál hníga í þá átt, að styðja mál hv. flm., styðja það, að þetta mál verði nú tekið til gagngerðrar athugunar. Nú kunna menn að spyrja: Hvers vegna var þetta ekki framkvæmt á sínum tíma, fyrir 9—10 árum? Ástæðan er einfaldlega sú, að um það náðist ekki samstaða í þáv. ríkisstj. Það tókst ekki að vinna nægilegt fylgi fyrir þessari breytingu þá, og féll málið því niður.

Ég er sömu skoðunar nú eins og þegar ég hreyfði þessu hér á Alþ. 1958 og eins þegar þessar athuganir voru gerðar á vegum fjmrn. 1962. Ég er enn sömu skoðunar, að við eigum að breyta um mynteiningu og taka upp stærri einingu en nú er. Hins vegar er náttúrlega orðin veruleg breyting á þessum síðasta áratug, og það hvarflar að manni, hvort það eigi ekki fremur þá nú á næstunni að tala um tvö núll heldur en eitt.

Finnar og Frakkar breyttu þannig, að þeir miðuðu við 100, þ.e. ein ný eining kom í staðinn fyrir 100 hinna gömlu. ég skal ekki neitt fullyrða um það á þessu stigi, hvað gera skuli í þessu efni varðandi eitt eða tvö núll. Ég held, að það sé í rauninni liðinn tími að tala nú um að miða við töluna 10. Þær breytingar hafa orðið á síðasta áratug, að•ég held, að við höfum misst af þeim strætisvagni. Auðvitað er hugsanlegt að miða stærri mynteiningu við eitthvað annað en l0 eða 100. Það er hugsanlegt að fara þar einhverja millileið. En vissuleg er vegna okkar tugastafakerfis langsamlega einfaldast og auðveldast að miða við 10 eða 100.

Ég mæli eindregið með því, að þessi till. verði samþ. og vænti þess, að þetta mál verði nú tekið að nýju til vandlegrar athugunar. Ég er sammála hv. flm. um það, að stærri mynteining mundi geta haft veruleg sálræn áhrif og verða til gagns í okkar efnahagslífi.

Varðandi heiti á þeirri nýju mynteiningu, sem valin yrði, þá var það mál einnig tekið til athugunar 1962. Það var bent á það í þessari álitsgerð, að krónan kom fyrst til sögunnar 1875, en þá urðu myntskipti í Danmörku. Hugsanlegt er náttúrlega að nota krónuna áfram, en önnur orð, önnur heiti koma vissuleg til athugunar. Og þar verður í huga manns kannske fyrst og fremst orðið mörk, sem var mynteining um langan aldur á okkar þjóðveldistíma. Þær einingar, sem elstar eru í sögu Íslands og helzt gætu komið til greina, eru mörk og alin, en þessi orð voru notuð á þjóðveldistímanum. Mörkin var sú eining, sem silfur var metið í. Hugsanlegt væri, að hin nýja stærri mynteining yrði kölluð mörk, sem skiptist í 100 aura. Það er ákaflega margt, sem mælir með þessu frá þjóðlegu og sögulegu sjónarmiði.

Á móti þessu hefur verið bent á það m.a., að beyging orðsins er óregluleg og væri hætta á því, að það yrði skakkt beygt í daglegu tali eða notkun. Ég skal ekki segja, hvort þetta er svo hættulegt, en þá kæmi einnig til greina að nota aðra orðmynd í staðinn fyrir mörk, sem er þá í fleirtölu merkur, að nota orðið mark, sem er í fleirtölu mörk og er vafalaust einfaldara í beygingu. En það orð hefur einnig verið mynteining um nokkurt skeið á Íslandi. Mark var 16 skildingar á sínum tíma.

Vel má vera, að mönnum þyki, að orðið króna hafi unnið sér hefð í málinu á þessum nær 100 árum, sem það hefur verið notað, og því er ekki að neita, að það orð er að mörgu leyti þægilegt í notkun, bæði innan lands og utan.

Ég vildi af þeim ástæðum, sem ég greindi, láta það koma fram. sem helzt hefur gerzt í þessu máli áður, og ég vona, að það upplýsi þá vissar hliðar á þessu máli, en ég tel, að hér sé hreyft merku máli og vænti þess, að þessi till. hv. þm. nái samþykki.