12.05.1972
Sameinað þing: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í D-deild Alþingistíðinda. (3617)

158. mál, verðgildi íslenskrar krónu

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins lýsa í fáum orðum þeirri sérstöðu, sem ég hafði í allshn. um þetta mál. Ég hef ekki gefið út sérstakt nál. Mér fannst ekki taka því, en ég vildi vekja athygli á því, að það væri raunverulega lítils virði að fela hæstv. ríkisstj. athugun á þessu máli, sem till. fjallar um, vegna þess að þetta mál hefur verið í athugun á undanförnum árum og ýmislegt gert í því.

Það er rétt, sem hér var sagt áðan, að það var starfandi nefnd, sem þáv. fjmrh. skipaði 1962, og hún skilaði áliti og mælti með því, að verðgildi íslenzkrar krónu yrði breytt, þannig að 10 krónur yrðu gerðar að einni og þannig yrði gjaldmiðillinn gerður sterkur. Eins og bent var á hér áðan, þá hefur náttúrlega ýmislegt gerzt síðan. Krónan hefur rýrnað. Ef tíföldun hefði verið eðlilegur mælikvarði 1962, þá væri hann tæplega réttur nú. Þá ætti sennilega að hafa þetta eitthvað meira nú.

Ég skilaði ekki sérstöku áliti, vegna þess að ég tel það auðvitað alveg meinlaust, að hæstv. ríkisstj. fái áskorun um athugun á þessu máli, og ég geri ekki ráð fyrir því, að það leiði til þess, að það verði gert, sem till. fer fram á, enda dró allshn. dálítið úr þessu með orðalagsbreytingunni, það er aðeins til að gera athugun á málinu, en ekki til þess að fela hæstv. ríkisstj. að láta framkvæma breytinguna.

Eins og sjá má á þskj. 670, þá fylgir umsögn Seðlabankans og fleiri banka um þessa till. Ég veit nú, að hv. flm. hefur ekki mikið álit á því, sem Seðlabankinn segir, og finnst ekki takandi mikið mark á því. Hann talar um vald Seðlabankans, að hann vilji ráða bæði fyrir hæstv. ríkisstj: og Alþ., en rétt er að minna á það, að vald Seðlabankans er ekki meira en það, sem Alþ. vill veita honum, og Alþ. hefur veitt Seðlabankanum talsvert vald, t.d. það að sjá alveg um myntsláttu og myntgreiningu, sem áður var í höndum ríkissjóðs. Þetta var Seðlabankanum falið árið 1968, og við værum ákaflega illa komnir, ef ekki mætti að neinu leyti leita ráða hjá stjórn Seðlabankans í peningamálum og fjármálum, vegna þess að þeir bæru ekki skyn á þessi mál.

Hitt er svo alveg rétt, sem hv. flm. gefur í skyn, að það á hvorki að trúa stjórn Seðlabankans eða öðrum í blindni, ef það fer í bága við heilbrigða skynsemi. Alþm. gera það vitanlega ekki og hæstv. ríkisstj. ekki heldur. Umsagnir sérfræðilegs eðlis, sem koma frá Seðlabankanum, eru vitanlega lesnar, og þær eru metnar og athugað, hvort það geti verið rétt, sem þar er haldið fram, eða rangt. Í þessum umsögnum og grg. frá Seðlabankanum er skýrt frá því, hvað hefur verið gert hin síðari ár, t.d. það, að gefinn hefur verið út nýr 5.000 kr. seðill, einnig endurnýjaður 500 kr. seðill. Þá hafa verið gerðar breytingar á myntinni, þannig að litlu seðlarnir hurfu úr umferð og málmpeningar komnir í staðinn, 5, 10 og 50 kr., og mynteining undir 10 aurum er fallin úr gildi. Það, sem Seðlabankinn telur, að eðlilegt sé að gera sem fyrst, er, að bankinn fái heimild til þess að fella 10 aurana niður, þannig að 50 aurar verði minnsta eining. Ég held, að þessi mynt, sem núna er í umferð, sérstaklega þegar 10 aurar eru fallnir frá, sé mjög hentug mynt og góð í viðskiptum, en mönnum getur nú sýnzt ýmislegt um þetta. Viðhorf flm. hefur nú komið fram í grein, sem hann hefur skrifað og birzt hefur í blöðunum.

Eins og ég sagði áðan, tel ég ekkert við því að segja og ekki nema eðlilegt, að hæstv. ríkisstj. hafi þetta mál áfram til athugunar, en ég er nokkurn veginn sannfærður um, að ef hún athugar málið, þá muni hún spyrja stjórn Seðlabankans um álit á þessu máli, vegna þess að það er staðreynd; að þar eru menn, sem Alþ. hefur falið umsjón þessara mála.

Ef ég tryði því, að breyting á myntinni, eins og lagt er til í till., yrði til þess að skapa hér heilbrigðara ástand í efnahagsmálum og peningamálum, þá væri náttúrlega alveg sjálfsagt, að þessi breyting færi fram sem allra fyrst. En það hefur nú sýnt sig í þeim löndum, þar sem þetta hefur gerzt, að það hefur dugað skammt. Það hefur verið verðbólga í Finnlandi, og það hefur verið verðbólga í Frakklandi, enda þótt myntinni hafi verið breytt, og það hafa farið fram gengisbreytingar í þessum löndum eftir að tilraun var gerð til þess að skapa harðan gjaldeyri. Það sýnir aðeins, að það þarf margt að koma til og fylgjast að, ef árangur á að nást í þessum málum.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að tefja tímann með langri tölu um þetta. Ég vildi aðeins koma þessum sér sjónarmiðum að.