17.12.1971
Efri deild: 32. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (362)
126. mál, almannatryggingar
Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Þegar ég mælti fyrir þessu máli í Nd., gerði ég það allítarlega, fjallaði um hverja gr. frv. fyrir sig og gerði grein fyrir röksemdum mínum fyrir þeim. Ég vildi hins vegar leyfa mér hér í Ed. að fjalla um frv. í dálítið styttra máli, vegna þess að ég veit, að þm. eru ákaflega önnum kafnir og langar ræður eru ekki vel þegnar, og hafi menn hug á því að kynna sér frekar þær röksemdir, sem ég var með í Nd., þá er ræða mín þar að sjálfsögðu tiltæk hjá skrifstofu Alþingis.
Lög um almannatryggingar nr. 67 frá 1971, sem samþ. voru á Alþ. á s.l. vori, átti að taka gildi, eins og kunnugt er, hinn 1. jan. n.k. Núv. ríkisstj. taldi óhjákvæmilegt að flýta gildistöku bótaákvæða lífeyristrygginganna, og var þetta eitt af atriðum málefnasamnings ríkisstj., og því voru gefin út brbl. þar að lútandi hinn 19. júlí 1971, og voru þessar bótahækkanir greiddar frá 1. ágúst. Það var einnig eitt af atriðum málefnasamnings ríkisstj., að tekið skyldi til endurskoðunar allt almannatryggingakerfið, einkum með það fyrir augum að gera greiðslur almannatrygginga til aldraðs fólks og öryrkja það háar, að það nægði til framfæris þeim bótaþegum, sem ekki hafa aðrar tekjur. Í samræmi við þetta var á s.l. sumri skipuð nefnd, sem fékk það hlutverk að endurskoða tryggingalöggjöfina, og hefur sú nefnd starfað síðan og starfar enn. Af hálfu ríkisstj. var lögð á það áherzla, að nefndin ynni starf sitt í tvennu lagi. Annars vegar að gerð tillagna um ráðstafanir, sem nauðsynlegt væri að koma í framkvæmd um leið og lög um almannatryggingar taka gildi hinn 1. jan. n.k. Hins vegar að halda áfram heildarendurskoðun almannatryggingalaganna. Nú var vitað, að sú endurskoðun tæki mun lengri tíma.
Það lagafrv., sem hér liggur fyrir, eru þær breytingar, sem nefndin hefur talið, að þyrftu að komast fram og taka gildi um leið og almannatryggingalögin nr. 67 frá 1971. Þó á þetta ekki við um 11. gr. og ákvæði til bráðabirgða, sem eru samin á vegum ríkisstj.
Meginbreyting þessa lagafrv. felst í 5. gr. frv., en þar er gert ráð fyrir breytingu á núv. 19. gr. laganna, þannig að lágmarksbætur elli- og örorkulífeyrisþega hækki, ef þeir hafa ekki aðrar tekjur, úr 84 þús. kr., eins og er í frv. í dag, í 120 þús. kr. á ári, eins og segir í 4. gr. laganna, þ.e. 10 þús. kr. á mánuði fyrir einstakling og 18 þús. kr. fyrir hjón, ef bæði eiga rétt á tekjutryggingu. Þá er einnig gert ráð fyrir í þessari gr., að heimildarákvæði haldist um frekari greiðslur, ef sýnt þykir, að lífeyrisþegi komist ekki af án hækkunar, en sú meginbreyting er gerð, að nú verður gert ráð fyrir því, að hér verði um tryggingabætur að ræða, en ekki framfærslugreiðslur, því að þáttur sveitarfélaganna í þessum uppbótum er felldur alveg niður. Með þessari breytingu, eins og hún er sett fram í 5. gr. frv., er stigið stórt skref í áttina til þess markmiðs, sem sett var fram í málefnasamningi ríkisstj., en þar sagði orðrétt:
„Greiðslur almannatrygginga til aldraðs fólks og öryrkja verði hækkaðar að því marki, að þær nægi til framfæris þeim bótaþegum, sem ekki styðjast við aðrar tekjur.“
Þær breytingar, sem orðið hafa núna á fáeinum mánuðum, fela í sér meira en 100% hækkun á greiðslum til þess fólks, sem nýtur tekjutryggingar. En þrátt fyrir þessa háu prósentutölu vil ég vekja athygli manna á því, að hér er ekki verið að bjóða til neinnar veizlu. Þessar bætur eru þrátt fyrir allt ekki hærri en sem svarar 50–60% af dagvinnulaunum verkamanna, eftir þær hækkanir, sem fram koma vegna fyrsta áfanga nýgerðra kjarasamninga.
Ljóst er, og Tryggingastofnun ríkisins hefur þegar fengið af því nokkra reynslu, að ýmis vandamál rísa, þegar taka á afstöðu til bótahækkunar samkv. þessari gr., og er þá gert ráð fyrir því, að sett sé reglugerð um nánari framkvæmd lífeyrishækkunarinnar, að fengnum till. tryggingaráðs, sem að sjálfsögðu mun gera slíkar till. í samræmi við þá reynslu, sem Tryggingastofnunin hefur nú þegar af framkvæmd þessa bótaákvæðis.
Aðrar breytingar, sem frv. gerir ráð fyrir, eru rýmkun á ákvæðum barnalífeyris, sem um er fjallað í 3. gr. Þar er gert ráð fyrir, að ýmis atriði, sem nú eru heimildarákvæði, breytist í skyldugreiðslur, svo sem barnalífeyrir vegna örorku móður. Þá verða tekin upp ný heimildarákvæði, svo sem að greiða barnalífeyri vegna manna, sem sæta gæzlu- eða refsivist, svo og vegna barna, sem ekki hefur tekizt að feðra. En að sjálfsögðu er gert ráð fyrir því, að feðrun hafi verið reynd fyrir dómi, en ekki tekizt, þannig að þarna er gert ráð fyrir mjög fáum tilvikum, en slík tilvik eru því miður til. Svipaðar breytingar eru lagðar til með 4. gr., þar sem gert er ráð fyrir, að tekið verði upp jafnrétti kynjanna, þannig að ekkjur og ekklar njóti sama réttar við fráfall maka. Þá er gert ráð fyrir breytingum á greiðslum dagpeninga sjúkratrygginga og slysatrygginga, og gert er ráð fyrir að miða allar dagpeningagreiðslur við einstaklinga, án tillits til kynferðis og hjúskaparstéttar, og hækka verulega greiðslur vegna barna á framfæri og sé greitt fyrir hvert barn á framfæri. Um þetta er fjallað í 8. og 9. gr. frv.
Í 11. gr. frv. er gert ráð fyrir viðbót við 54. gr. laganna, og er viðbótin sett til að ítreka skyldur sjúkrasamlaga, Tryggingastofnunar og umboðsmanna hennar til þess að kynna bótaþegum sem rækilegast rétt þeirra, og er með gr. lögð skylda á starfsfólk þessara stofnana til þess að kynna sér rækilega allar aðstæður þeirra, sem til stofnananna leita. Þessi gr. hvetur Tryggingastofnunina og starfsdeildir hennar til þess að taka upp sérstaka kennslu í tryggingafræðum, þ.e. þeim þáttum þeirra, sem lúta að starfi stofnananna, lagaákvæðum, bótareglum og því um líku, svo að enginn geti starfað við þessar stofnanir í neinni stöðu, þar sem eitt af hlutverkum er að gefa upplýsingar og ráðleggingar, án þess að hafa til að bera þá kunnáttu, sem nauðsynleg er slíku starfsliði.
Í 12. gr. er gert ráð fyrir breytingu á núv. 78. gr., og er breytingin tvíþætt, annars vegar sú að miða breytingar á tryggingabótum við breytingar á vikukaupi í almennri verkamannavinnu. Hins vegar sú að undanþiggja fjölskyldubætur þeim ákvæðum, sem gr. fjallar um, en gera það að ákvörðunarvaldi ríkisstj. hverju sinni, hvernig um það skuli fjallað.
Fyrri breytingin er tilkomin annars vegar vegna hlutfallsbreytingar, sem hefur orðið á dagvinnukaupi, sem til var vitnað í fyrri gr., og vikukaupi vegna styttingar vinnutíma, og hins vegar vegna þess, að eðlilegra þótti að miða hér við almenna verkamannavinnu, en ekki almenna fiskvinnu, eins og gr. gerir ráð fyrir nú. Ég tel það afar óeðlilegt að miða þetta ákvæði við tiltekinn starfshóp í verkalýðshreyfingunni, og stundum getur af því hlotizt ávinningur fyrir viðskiptavini almannatrygginga, og stundum getur hlotizt af því tap. En hitt finnst mér þó mestu máli skipta, að mér finnst það ekki vera hægt að leggja það á hóp innan verkalýðshreyfingarinnar og það hóp, sem er jafn viðkvæmur að mínu áliti og starfsfólk í fiskvinnu, að það bætist ofan á samningsaðstöðu þeirra, að þetta fólk eigi einnig að semja um útgjöld almannatrygginga.
Eins og ég sagði áðan, felst einnig í þessari gr. að taka fjölskyldubætur undan skylduákvörðun ráðh. og gera hækkun fjölskyldubóta að ákvörðunaratriði ríkisstj. allrar, þar sem fjölskyldubætur hafa sérstöðu. Þær eru tryggingabætur af sérstöku tagi og greiðast að fullu úr ríkissjóði. Fjölskyldubæturnar eru fyrst og fremst hugsaðar sem aðferð til tekjujöfnunar í þjóðfélaginu, og ég hygg, að það væri mikil nauðsyn að endurskoða það kerfi og íhuga, hvort ekki sé hægt að hagnýta þær miklu upphæðir, sem þar er um að ræða, mun betur en nú er gert, einmitt til þess að ná betri tekjujöfnun. Og þetta verður eitt þeirra atriða, sem um verður fjallað af þeirri nefnd, sem áfram starfar að heildarendurskoðun almannatrygginga. Í sambandi við þetta vil ég einnig minna á það, að í sambandi við verðstöðvunarlögin var ákveðin veruleg hækkun á fjölskyldubótum, og það er ákveðið, að sú hækkun muni haldast, þó að verðstöðvunarlögin falli úr gildi að forminu til, þannig að þetta atriði brennur ekki sárt á mönnum, eins og sakir standa.
Í upphafi frv. er gr. um, að settur verði á stofn sérstakur tryggingadómur og um hann verði sett sérstök löggjöf. Það hefur lengi verið um það rætt, að nauðsynlegt væri, að í tengslum við almannatryggingakerfið starfaði sérstakur tryggingadómstóll, sem bótaþegar gætu skotið úrskurðum og ákvörðunum um bætur til, og ég tel þetta vera mjög mikilvægt atriði, en um það verður á sínum tíma fjallað í sérstöku frv.
Reynt hefur verið að gera sér grein fyrir því, hvaða kostnaðarauka þetta lagafrv. hefur í för með sér, og hefur þar verið stuðzt aðallega við útreikninga tryggingafræðings Tryggingastofnunar ríkisins. Gert er ráð fyrir, að kostnaðaraukinn í heild verði um 311 millj. kr., sem skiptist þannig, að vegna lífeyristrygginga verði kostnaðaraukinn 296 millj., vegna slysatrygginga 3.4 millj. og vegna sjúkratrygginga 11.8 millj. Ef litið er á fjárlög gildandi árs og frv. til fjárlaga fyrir árið 1972, eins og það var lagt fyrir Alþ., þá kemur í ljós, að þar var gert ráð fyrir 465 millj. kr. hækkun á útgjöldum lífeyristrygginga Tryggingastofnunar ríkisins, eða um 22% hækkun. Þegar tekið er tillit til þeirra breytinga, sem hér eru lagðar til, þá verður hækkunin milli ára um 760 millj. eða um 35% miðað við fjárlög ársins 1971. Auk þessa munu eftir áramótin verða ákveðnar hækkanir samkv. 78. gr. eða samkv. 12. gr. þessa frv., eins og skylda ráðh. er, og þessar bætur munu hækka samkv. þessu ákvæði um rúmlega 10%, og óvarlegt er að gera ráð fyrir, að bótahækkun síðar á árinu nemi ekki a.m.k. 6% til viðbótar. Að frádregnum fjölskyldubótum nema þessar hækkanir vegna lífeyristrygginganna um 240 millj. kr. eða sennilegt, að bætur lífeyristrygginga muni verða allt að 1000 millj. hærri á árinu 1972 en þær voru á árinu 1971. Með tilliti til þessa alls má gera ráð fyrir því, að lífeyrisgreiðslur ársins 1972 verði um 45–50% hærri en ársins 1971. Ríkisstj. telur sig með þessum ákvörðunum hafa komið nokkuð til móts við það markmið sitt að gera tryggingabætur þannig, að þær nægi bótaþegum til framfæris, en heildarendurskoðun tryggingakerfisins mun halda áfram, eins og ég hef áður getið, en þess er tæplega að vænta, að lokatillögur þeirrar nefndar geti legið fyrir fyrr en á næsta þingi.
Auk þeirra atriða, sem ég hef talið, eru í frv. ákvæði til bráðabirgða, sem víkja að þeim breytingum, sem verða á tekjuþáttum almannatrygginga í sambandi við breytingar á þessum lögum og aðrar breytingar, sem gerðar eru nú á tekjum ríkis og sveitarfélaga. Röksemdum fyrir þessum breytingum var útbýtt hér, og þær liggja á borðum þm., þannig að ég verð að láta mér nægja í sambandi við það að vísa til þeirra.
Ég vil hins vegar láta þess getið, að í Nd. var það gagnrýnt af stjórnarandstöðunni, að þessi ákvæði til bráðabirgða hefðu borizt ákaflega seint, og vissulega er það rétt. Bæði málið allt og þessi ákvæði hafa borizt svo seint, að það er farið fram á ákaflega mikið af hv. þm. að biðja þá að afgreiða þetta mál á jafn skjótum tíma og til er ætlazt.
Efnislega virtist mér þó, að gagnrýnin á ákvæðum til bráðabirgða í Nd. beindist fyrst og fremst að einu atriði, að þarna er í III. lið í ákvæðum til bráðabirgða ákvæði um, að á árinu 1972 skuli leggja á sérstakan launaskatt, er nemi 11/2%. Hér er ekki um að ræða neina nýja ákvörðun af hálfu ríkisstj. Fyrir þessu var gert ráð þegar í fjárlagafrv. Þetta er ekki neinn nýr launaskattur, heldur sá launaskattur, sem lagður var á með verðstöðvunarlögunum. Það er aðeins gert ráð fyrir því, að verið sé að framlengja hann. En nú eiga verðstöðvunarlögin að falla úr gildi að forminu til um þessi áramót, og þá hefði þessi skattur sjálfkrafa fallið úr gildi, þannig að nauðsynlegt var að endurnýja hann. Og sá háttur hefur verið á hafður, að það er gert með því að fella það inn í þetta frv. Þetta var gagnrýnt í Nd., og vissulega má færa rök að því, að eðlilegra hefði verið að framlengja þennan skatt með öðru móti. En þó er þarna fremur um form að ræða en efnisatriði, og ég vona, að hv. þm. geti eftir atvikum sætt sig við þessa aðferð, þó að mönnum falli hún ekki alls kostar í geð.
Þegar ég mælti fyrir þessu máli í Nd., fór ég fram á það við hv. heilbr.- og félmn. þeirrar d. og þm. alla í d., að þeir afgreiddu þetta mál á mjög skjótum tíma, til þess að hægt væri að tryggja því fullnaðarafgreiðslu fyrir jól. Þessi beiðni mín fékk ákaflega góðar undirtektir í Nd. Mér er óhætt að segja, að fulltrúar allra flokka þar hafi lagzt á eitt um að greiða götu þessa máls og afgreiða það með svo skjótum hætti, að það var ekki nokkur leið að ætlast til þess, að það gæti gerzt á skemmri tíma. Ég vil leyfa mér að beina hliðstæðum óskum til hv. heilbr.- og félmn. þessarar d. og hv. þm. allra, að reynt verði að hafa þann hátt á vinnubrögðum, að unnt verði að samþykkja þetta mikilvæga mál fyrir jól. Það hefur komið í ljós, að það er enginn ágreiningur um meginefni frv., og ég hygg, að við þm. allir mættum ákaflega vel við una að geta afgreitt mál af þessu tagi fyrir jól.
Að svo mæltu legg ég til, herra forseti, að málinu verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr: og félmn.