11.04.1972
Sameinað þing: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í D-deild Alþingistíðinda. (3660)

190. mál, skólaíþróttahús við Hamrahlíð í Reykjavík

Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Fyrir 10 mínútum hljómaði hér inn í salinn glaðvær söngur úti á Austurvelli, Fyrr var oft í koti kátt o.s.frv. Ég stóðst ekki freistinguna að rísa upp og líta út um gluggann og sá hvar skálmaði yfir Austurvöll hressilegur og hnarreistur hópur ungra meyja klæddur peysufátum. Það var auðséð á allri framgöngu og limaburði þessarar rösku sveitar, að hún hafði fengið einhverja þjálfun í framgöngu, og vafalaust nýtur þessi hópur leikfimikennslu í sínum skóla.

Þessi till., sem hér er til umr., fjallar um það að veita fjölmennum skólum tveimur í austurborginni sams konar aðstöðu, sem sé aðstöðu til leikfimikennslu. Í Menntaskólanum við Hamrahlíð stunda nám núna á 8. hundrað nemendur, og þeir njóta engrar leikfimikennslu. Það verður vafalaust ekki minna úr því gert að því er þennan hóp ungs fólks varðar heldur en aðra hópa æskumanna fyrr og síðar, hve nauðsynlegt er til heilsugæzlu og almennra krafta og varðveizlu krafta og væntanlega þá einnig námsgetu, að veitt sé hæfileg líkamsþjálfun jafnframt hinum andlegu menntum, sem þar eru stundaðar. Núna er engin leikfimikennsla á stundaskrá þessa skóla. Þar hefur ekkert íþróttahús verið reist. Ekki svo að skilja, að þessi skóli sé öðrum skólum fremur vanhaldinn um húsnæði, en hitt er það, að ætlunin var að reisa þennan skóla í áföngum og fullnægja þörfum hans svo fljótt sem verða mátti. Og núna var á dagskrá í næsta áfanga í byggingum þessa skóla einmitt íþróttahús, en fjárframlögum til þess var synjað nú við afgreiðslu fjárlaga í vetur. Nú er það vitanlega öllum hv. þm. kunnugt og skiljanlegt, að slíkar framkvæmdir kosta mikið fé. Engu að síður er öllum einnig vel ljóst, að þær eru nauðsynlegar.

Svo stendur á þarna, að í næsta húsi er annar skóli, barnaskóli, unglingaskóli, sem einnig vantar íþróttahús. Í þeim skóla þarf að senda lítil börn yfir hættulega umferðargötu, til þess að þau fái þá leikfimikennslu, sem þeim er ætluð eftir námsskrá barnaskólanna, og þau sækja leikfimikennslu í íþróttahús Vals, sem er sunnan Reykjanesbrautar, en Hlíðaskólinn, barnaskólinn, stendur við Hamrahlíð.

Nú mun vera ætlun að hefjast mjög fljótlega handa við byggingu íþróttahúss fyrir barnaskólann, Hlíðaskólann, en hins vegar eru ekki uppi áform í náinni framtíð um, að hafizt verði handa um byggingu íþróttahúss fyrir menntaskólann. Mér sýnist einsýnt, að í þessu tilviki hljóti að vera hagkvæmt að reisa eitt og sama íþróttahúsið fyrir báða þessa skóla, ella höfum við eftir nokkur ár þá mynd fyrir augum, að eitt íþróttahús stendur öðrum megin lítillar götu og annað íþróttahús hinum megin, ef þau ekki standa þá alveg hlið við hlið. Það mundi skapa möguleika á sparnaði á almannafé auk miklu betri og fjölbreyttari nýtingarmöguleika, að í þessu tilviki væri reist íþróttahús eitt og hið sama fyrir báða skólana. Ég á ekki við það, að Hlíðaskólanum sé ekki full þörf á íþróttahúsi af vanalegri stærð, eins og þau eru ætluð fyrir barnaskóla, heldur er það, sem fyrir mér vakir, hugmynd um, að reist sé stærra íþróttahús með þá væntanlega tveimur sölum, sem hugsanlegt væri að hafa laust eða létt skilrúm á milli, þannig að auðvelt væri að stækka salinn og nota hann til kappleikja eða annarrar félagsstarfsemi á þeim tímum dags, sem ekki færi þar fram leikfimikennsla. Get ég ekki séð annað með mínum leikmannsaugum en þetta hlyti að geta lyft talsvert ýmiss konar íþróttastarfsemi hér í borginni og gefið henni byr. Auk þess væri þarna hugsanlega einhver möguleiki til þess, að fleira samkomuhald, sem væri í sambandi við þessa skóla, gæti farið fram í slíku húsi. Till. okkar hljóðar svo:

„Alþingi ályktar, að leitað skuli samstarfs við Reykjavíkurborg um að reisa sameiginlegt íþróttahús fyrir Hlíðaskóla og Menntaskólann við Hamrahlíð, enda tryggi ríkisstj., að framkvæmdir geti hafizt á þessu ári.“

Við ætlum, að athugun þessi þurfi ekki að verða svo ákaflega víðamikil eða flókin, að nokkur ástæða sé til að ætla, að ekki væri framkvæmanlegt að hafa tilbúna áætlun og hægt væri að hefjast handa síðar á þessu ári, ef vilji á annað borð er fyrir hendi til þess að spara þarna fé skattborgara og veita æskunni þá aðstöðu, sem verið gæti með slíkri byggingu, sem við leggjum til, að þarna verði reist. Vitanlega mundi svo Reykjavíkurborg taka þátt í kostnaði að sínum hluta af sínum eignarhluta, eins og vera mundi, ef reist væri hús sérstaklega fyrir þann skóla, sem rekinn er á vegum borgarinnar, Hlíðaskólann. Aftur á móti er menntaskólinn rekinn á vegum ríkisins, og mér virðist það skjóta ákaflega skökku við, ef þarna þyrfti að reisa þessar byggingar á óhagkvæman hátt vegna þess eins, að annar skólinn væri rekinn af ríki, en hinn af borg. Í augum okkar skattborgaranna er þetta aðeins hagræðingaratriði og svo augljóst, að ég vil leyfa mér að leggja til, að þetta mál fái sem fyrst afgreiðslu, þannig að úr hv. n. gæti það komið hér til 2. umr. svo fljótt sem verða má, til þess að framkvæmdir drægjust örugglega ekki á langinn.

Ég leyfi mér svo að leggja til, að þessu máli verði vísað til hv. fjvn. og til 2. umr.