18.12.1971
Efri deild: 34. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (370)

126. mál, almannatryggingar

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Eins og ég tók fram við 2. umr. málsins hér í gær, þá flyt ég á þskj. 241 tvær brtt., sem ég gerði örlitla grein fyrir í gær, og reyndar skýra þær sig sjálfar, svo að ekki þarf mörg orð þar um.

Fyrri brtt. mín á þskj. 241 er um það, sem ég gat um í gær, að stundi barn kauplaust nám eftir 16 ára aldur, — ætla má, að það hafi lokið skyldunámi, — þá njóti það sömu námsaðstoðar eins og það væri í skóla, ef það getur sannað, að um 6 mánaða skólavist sé að ræða með a.m.k. 30 kennslustundum á viku.

Og í öðru lagi, að setningin „Fjölskyldubætur eru undanþegnar þessu ákvæði, en um hækkun þeirra fer eftir ákvörðun ríkisstj. hverju sinni“, falli niður í 12. gr. frv.

Þessar brtt. mínar þurfa ekki að mínu viti frekari skýringa við, þær skýra sig svo greinilega sjálfar.

En það er eitt atriði, sem mig langar til að beina til hæstv. trmrh., eða réttara sagt ein fsp., sem ég held, að sé nauðsynlegt, að liggi fyrir, áður en deildin gengur endanlega frá frv. En það er varðandi ákvæði 12. gr. frv., eins og það er eftir 3. umr. í Nd. Hvað er átt við með „vikukaupi í almennri verkamannavinnu“? Nú er það á vitorði allra hv. þdm., að kauptaxtar eru breytilegir, og þeir munu vera a.m.k. 4, ef ekki 6 talsins í almennri verkamannavinnu. Er það vegið meðaltal þessara taxta allra, sem hér er átt við, eða er átt við einhvern tiltekinn taxta? Ég held, að það sé nauðsynlegt, að þetta sé til í skjölum Alþ., því að þarna væri hæglega verið að bjóða heim misskilningi meðal bótaþega, um hvað væri í raun og veru um að ræða.

Ég lýsti því hér í gær, að ég hefði talið, að a.m.k. að þessu sinni hefði þessi viðmiðun átt að vera óbreytt, vegna þess að hlutfallslega mest kauphækkun fékkst í þeim greinum, sem miðað var áður við, þ.e. kaup fólks, sem vinnur við sjávarafla í landi, fiskvinnsluna í landi. Þá hefði sú breyting orðið 13% hækkun í staðinn fyrir, að með þessu ákvæði verður hún aðeins 10%, ef miðað er við lægsta taxta Dagsbrúnar, eftir að búið er að taka tvo neðstu taxtana af, svo sem kaup- og kjarasamningar kváðu á um.

Ég mun greiða frv. atkv., eins og það liggur fyrir. Þótt mér sé ljóst, að erfitt sé að gera á því breytingar, þá taldi ég rétt að fá það staðfest, einnig í þessari hv. þd., hvort hún væri annarrar skoðunar um þau atriði, sem ég legg til í brtt. mínum á þskj. 241, en fram kom í Nd.

Að öðru leyti, eins og ég lýsti yfir í gær, mun ég greiða frv. atkv. að undanteknum ákvæðum til bráðabirgða, sem, eins og næsti ræðumaður hér á undan sagði, samrýmast alls ekki lögum um almannatryggingar og eiga heima í allt öðrum lögum. Hér er verið að bjarga í land hlutum, sem hæstv. ríkisstj. hefur sézt yfir. Að vísu er það mannlegt og skiljanlegt, en það verður eigi að síður ekki gert með mínu atkv. Hins vegar mun ég ekki hindra framgang málsins, svo miklar bætur, sem í því felast bótaþegum til handa, en ég vil, að það liggi skýrt fyrir, að ég tel, að þessi ákvæði eigi ekki heima í þessum lögum. Auk þess óska ég skýringa á því, við hvað sé átt, þegar talað er um vikukaup í almennri verkamannavinnu.