17.05.1972
Neðri deild: 82. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í D-deild Alþingistíðinda. (3717)
146. mál, lágmarksmöskvastærð þorskfiskneta
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Ég kveð mér ekki hljóðs til þess að gera neina aths. við efni þessarar till., sem ég hef allt hið bezta að segja um. Ég vildi aðeins benda hv. dm. á, að fyrir nokkrum mínútum var samþ. hér í Nd. sem lög frá Alþ. frv. um breytingar á þingsköpum, og ein breytingin, sem gerð var með þessu frv., sem nú er orðið að lögum, þó að enn hafi ekki verið staðfest, er sú, að þáltill. er ekki hægt að afgreiða í annarri deild, heldur skal till. fara til beggja deilda. (Grípíð fram í.) Mér er það ljóst, að þessi lög taka kannske ekki gildi fyrr en þau verða staðfest, en hér er um það sérkennilega tilviljun að ræða, að ef menn ekki fylgja eða vilja fylgja því, sem þeir samþykktu í fyrra á þessum sama fundi, þá verðum við a.m.k. að gera okkur ljóst, að þetta verður kannske síðasta þáltill., sem er samþ. í annarri deild Alþingis.