18.12.1971
Efri deild: 34. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í B-deild Alþingistíðinda. (373)

126. mál, almannatryggingar

Axel Jónsson:

Herra forseti. Aðeins örfá orð í samhandi við I. liðinn í bráðabirgðaákvæði. Hv. 3. þm. Austf. hefur vikið allítarlega að þessu, og ég vil taka undir þau orð, sem hann lét falla í þessu efni. Þetta hefur aðeins komið inn í umr. hér í hv. d. í sambandi við tekjustofna sveitarfélaga og verkefnaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, að sveitarstjórnarmönnum finnst nokkur óvissa um, hver hlutur sveitarfélaganna verði, það er raunar sagt þar, að 50% af framlagi sveitarfélaga til sjúkrasamlaga taki ríkið á sig, en síðan er eftir að gera sér sem gleggstar hugmyndir um, hver verður hlutur sveitarfélaganna eftir sem áður, og það skiptir nokkru máli í þessu efni. Þess vegna teldi ég mjög nauðsynlegt, að hægt væri að fá þær forsendur, sem þessar tölur eru byggðar á.

Í því sveitarfélagi, sem ég er kunnugastur, Kópavogi, sem hér hefur nú verið vikið að, höfum við há sjúkrasamlagsgjöld. Sveitarfélögin einmitt hér á höfuðborgarsvæðinu búa við dýrustu sjúkrahúsagjöldin, og það er mjög mikill munur hvar á landinu er í þessu efni, en daggjöld til sjúkrahúsanna eru 40% af útgjöldum sjúkrasamlagsins í Kópavogi. Þegar bæjarstjórn Kópavogs gekk frá fjárhagsáætlun sinni miðað við gildandi lög í því efni, þá fékkst áætlun frá sjúkrasamlaginu um framlag bæjarins á næsta ári miðað við núgildandi lög, og það var reiknað með að hækka framlag bæjarins um 20% frá því árið áður. Þessi tala, sem hér er sett, 2 125 kr. fyrir hvern samlagsmann, er talsvert hærri en 50% af því framlagi, sem þó var gert ráð fyrir að hækka um 20% frá fyrra ári, og þess vegna endurtek ég: Það er mjög nauðsynlegt að fá vitneskju um, á hverju þetta er byggt. Ég tek undir það með hv. 3. þm. Austf., að mér sýnist, að í mörgum tilvikum geti verið ósamræmi milli þessa gjalds, 2 125 kr. fyrir hvern samlagsmann, og svo hins vegar því, að sveitarsjóður á að greiða 9.77%. Þetta hlýtur að vera mjög breytilegt hjá sjúkrasamlögunum, en það kann að vera, að þetta sé miklu nær hér á höfuðborgarsvæðinu en víða út á landi, en þrátt fyrir það tel ég nauðsynlegt að fá frekari upplýsingar um, á hverju þessi útreikningur byggist.