24.02.1972
Sameinað þing: 41. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í D-deild Alþingistíðinda. (3731)

94. mál, leiguhúsnæði á vegum sveitarfélaga

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Hér er til umr. till. um einn vanda húsnæðismálanna í landinu og þó nokkuð sérstakan vanda, því að með till. er ekki ætlunin að bæta almennt úr húsnæðisskorti með byggingu leiguhúsnæðis, heldur í sérstökum tilvikum, að mér skilst, í einstökum bæjum og kauptúnum, sem eru í vexti og þurfa á aðkomu vinnuafli að halda hluta úr ári og þá undir mjög breytilegum kringumstæðum og aðstæðum. Ef það er rétt að leggja þennan skilning í till., þá hygg ég, að það verði ýmsum vandkvæðum háð að framkvæma hana.

2. liður till., um það að láta fara fram könnun á þörf fyrir leiguhúsnæði til þess að leysa þennan vanda, finnst mér vera alveg sjálfsagt efnisatriði og í raun og veru byrjunin á þessu máli, könnunin á þörf fyrir leiguhúsnæði í þessu skyni. Og það er vafalaust, að Húsnæðismálastofnunin er fús til að láta þá könnun fara fram þegar í stað. Síðan að líta á þá niðurstöðu, sem sú könnun skilaði, og þá í næsta skrefi að taka afstöðu til þess, hvort hægt væri með útvegun aukins fjármagns að leysa úr því, sem segir í upphafi till. Síðan kæmi svo til lagasetningar í þessu skyni.

Ég vil í sambandi við þetta mál undirstrika það, sem kom fyrst fram hér hjá hv. 1. þm. Sunnl., að meginstefnan, held ég, að hljóti og eigi að vera sú að greiða með fjármagnsútvegun fyrir því, að einstaklingar geti eignazt sitt húsnæði og átt sitt húsnæði sjálfir. Og þá út frá því þarf vitanlega ekki að gera neinar sérstakar ráðstafanir vegna þess fólks, sem ákveðið er í að búsetja sig í einum eða öðrum bæ eða kauptúni úti á landi. En það er hreyfanlega vinnuaflið, sem hér er verið að gera sérstakar ráðstafanir til þess að geta fengið á staðina, þar sem álagið er mest, eða ég skil till. þannig. Það er ekkert meiri þörf á því að veita mönnum betri kjör til að byggja yfir sig vestur í Ólafsvík en í Hafnarfirði eða í Njarðvíkum eða hvar sem er annars staðar á landinu fyrir það fólk, sem er ákveðið í að eiga þar búsetu og eiga þar sitt hús, enda varla framkvæmanlegt. En mér er kunnugt um, og þannig hefur till. verið túlkuð, að í vaxandi kauptúnum, sem þurfa á aðfluttu vinnuafli að halda, sé ekkert húsnæði tiltækt, og þetta er vissuleg rétt.

Fyrir nokkrum árum síðan, nokkuð löngu síðan, var ákvæði í hafnalögum um það að reyna að mæta þessari þörf, og þá var það heimilað í hafnalögum, að verbúðir til íbúðarhúsnæðis fyrir aðkomufólk í útgerðarstöðum mætti byggja á vegum hafnanna og þær nytu til þess sérstakra styrkja. En mér er nú tjáð, að það sé búið að fella þetta ákvæði niður sökum misnotkunar, sem á þessu hafi orðið. Ég er ákaflega hræddur um það, að ef hægt verður að útvega fjármagn, sem vafalaust ætti að verða hægt, í því skyni að hjálpa sveitarfélögum til þess að byggja slíkt húsnæði og útvegað væri 90% lán til þess og að öðru leyti hagstæð lánakjör, þá væri það anzi freistandi fyrir mörg sveitarfélög að byggja slíkt húsnæði. En hvernig væri varið notkun þess? Jú, sjálfsagt fyrstu vertíð eftir að húsnæðið væri byggt, þá væri til þess gripið og það leysti úr þörf. En næstu vertíð væri kannske ekki þörf fyrir þetta aðkomuvinnuafi. og þetta sérstaka húsnæði, sem svona hefði verið byggt með sérlega hagstæðum kjörum fyrir sveitarfélögin, stæði þá autt og ónotað. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að ef þá væri þörf fyrir húsnæði í þessu sveitarfélagi, þá yrði þetta húsnæði gripið til annarra nota, og næst, þegar þyrfti að fá aðkomuvinnuafl í þetta kauptún eða þennan bæ, þá væri aftur skortur á húsnæði handa því. Ég er afar hræddur um, að sveitarfélögin mundu ekki árum eða vertíðum saman standa með þetta húsnæði, sem þau hefðu fengið svona ríflegar fjárveitingar til þess að koma upp, stæðu ekki með það árum saman ónotað, heldur tækju það til almennra nota. Og þá er spurningin, hvort þetta gæfi ekki tilefni til sams konar misnotkunar eins og ákvæðið, sem var í hafnalögunum fyrr og þótti leiða til slíks.

Við skulum hugsa okkur, t.d. að þegar þrýstingur var mestur í síldarvinnslukaupstöðunum norðanlands, þá hefði verið rokið í að byggja svona húsnæði. Það hefði vafalaust leyst úr þörf í bili, en þó að ekki hefði verið heimilt að nota það fyrir aðra en aðkomufólkið, hefði það samt ekki verið gripið til að leysa almenn húsnæðisvandamál þess kaupstaðar og þá með forréttindum fram yfir aðra? Eða á Austfjörðum nú fyrir nokkrum árum? Það þarf ekki að bregða upp fleiri myndum til þess að beina athyglinni að því, að breytileiki okkar atvinnulífs og hvernig þungi hans færist til frá einni verstöð til annarrar, frá einu ári til annars og frá einum landshluta til annars gerir það að verkum. að það að veita sérstök fríðindi til þess að leysa úr húsnæðisvandanum. sem við þetta skapast, er talsverðum vandkvæðum bundið.

Þá er spurningin, hvort Húsnæðismálastofnunin eða Byggingarsjóður ríkisins sé fær um að veita sérstaka aðstoð í þessu skyni. Því miður er það ekki svo, og það kom hér fram í umr. áðan, að svo mundi ekki vera. Ég get gefið þær upplýsingar, að á síðasta ári, árinu 1971, vantaði nokkuð á annað hundrað millj. kr. til þess, að húsnæðismálastjórnin gæti afgreitt allar þær umsóknir, sem rétt áttu á lánaafgreiðslu fram til 1. nóv. Það vantaði nokkuð á annað hundrað millj. kr. til þess, að slíkt væri hægt, og það fé var útvegað með bráðabirgðaráðstöfunum. Nú liggur fyrir yfirlit frá Húsnæðismálastofnuninni um árið 1972, og er niðurstaðan sú, að til þess að fullnægja skyldum Byggingarsjóðs ríkisins gagnvart byggjendum á árinu 1972 með líku sniði og áður, þ.e. að afgreiða lögmætar umsóknir fram til 1. nóv., skulum við segja, þá mun vanta 520 millj. kr., sem þarf að útvega sem nýtt fjármagn til stofnunarinnar, sem annars hefur sem fastar tekjur 900—1.000 kr. sem eigið ráðstöfunarfé. En það hrekkur ekki til og þarf þarna um að bæta um allt að því þriðjung.

Það er því alveg hárrétt, sem fram hefur komið, að húsnæðislánakerfið verður ekki, nema með útvegun mikils fjármagns, fært um það að inna sínar skyldur af hendi, hvað þá heldur að taka á sig nýja fyrirgreiðslu, sem leggi því auknar fjárhagsbyrðar á herðar.

Ég sé vandkvæði á að taka vissa og einstaka staði út úr, ef það á að vera til þess að leysa hina almennu húsnæðisþörf, því að þá er gert upp á milli manna eftir því, hvar þeir eru á landinu, en sé sú hugsunin að hafa til húsnæði í vaxandi útgerðarstöðum. sem þurfi mjög breytilegt aðkomu vinnuafi. og hafa húsnæði til handa því, þá held ég, að þar verði anzi mörg ljón á vegi og jafnvel full hætta á því, að ef sérstaklega hagstæð lánakjör væru veitt til þess að leysa þann vanda, þá yrði það fljótlega notfært á annan hátt en tilgangurinn upphaflega var og þá væri sem sé komin úrlausn í húsnæðismálum vissra staða, sem væri í algeru ósamræmi við það, sem húsnæðismálakerfið gæti almennt veitt öðrum, og veit ég ekki, hvort Alþ. teldi slíkt fært.

Ég tel sjálfsagt, að 2. liður þessarar till. verði framkvæmdur tafarlaust og fram fari könnun á þörf fyrir leiguhúsnæði í sveitarfélögum um land allt og síðan verði sú niðurstaða metin og vitanlega reynt að bæta úr þessari þörf, sem þarna er fyrir hendi með einhverjum þeim hætti, að þörfin leysist, en komið sé í veg fyrir misnotkun. Ég hefði haldið, að það væri raunar eðlilegra að taka upp aftur ákvæði í hafnalögin um, að heimilt væri að greiða fyrir sérstöku húsnæði fyrir aðkomufólk í vaxandi verstöðvum til þess að tryggja möguleika fyrir aðfengnu vinnuafli og búa betur um, að ekki ætti sér misnotkun stað vegna þessara sérréttinda, sem slíkum vaxandi stöðum væri með þessu veitt.