24.02.1972
Sameinað þing: 41. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (3733)

94. mál, leiguhúsnæði á vegum sveitarfélaga

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Það er nú búið að flytja margar og ágætar ræður um þessa till., sem hér liggur fyrir til umr., og er í sjálfu sér ekki mjög miklu þar við að bæta. En þó vildi ég nú leyfa mér að gera örfáar aths.

Ég tek mjög undir það, sem fram hefur komið í ræðum flestra þeirra, sem talað hafa hér, að þeir hafa lýst yfir þeirri skoðun sinni, að hver og einn eigi að eiga sitt íbúðarhúsnæði sjálfur, og það er mjög ánægjuleg stefnuyfirlýsing fulltrúa flestra stjórnmálaflokka á Alþingi Íslendinga að líta þannig á málin, og það má því segja, að á síðustu árum hafi orðið mjög ánægjuleg breyting í þessa átt.

Út af því, sem hv. frsm. þessarar till. sagði og jafnframt að nokkru leyti hv. 1. þm. Austf., að hér væri jafnvel um að ræða verkefni Framkvæmdastofnunar ríkisins eða nánar til tekið, eins og síðasti ræðumaður sagði, verkefni Byggðasjóðs, þá er það að vísu rétt, að það hafa verið verkefni þeirra stofnana, sem áður fóru með þessi mál t.d. Framkvæmdasjóðs, að útvega heildarlán til stærri framkvæmda og áætlunargerða í hinum ýmsu málaflokkum, og þar af leiðandi hygg ég, að Framkvæmdasjóður ætti auðvitað í framtíðinni að útvega húsnæðismálakerfinu fjármagn til þess að standa undir eðlilegri uppbyggingu þess og þá jafnframt að taka tillit til breytinga á því sviði. Hins vegar er það mín skoðun, eins og fram kom hjá hv. 1. landsk. þm., að í húsnæðismálum ætti að vera ein stofnun, sem hefði með þau að gera, og ég fyrir mitt leyti tel enga ástæðu til þess að snúa frá því, og ég vil segja hv. frsm. þessarar till. það sem mína skoðun, að ég álít verkefni Framkvæmdastofnunar ríkisins þegar vera orðin svo mörg, að það sé illa á bætandi næsta aldarfjórðung að benda á fleiri verkefni.

Hæstv. félmrh. ræddi hér skynsamlega um þessi mál og hann benti auðvitað á það, sem er rétt, að ef hið opinbera fer skefjalaust út í að styrkja íbúðabyggingar, þá geti auðvitað svo farið, ef það hleypur mikill þróttur í atvinnulíf í eitt eða tvö ár, að menn grípi til þess að byggja margar íbúðir, sem fólkið hverfur svo aftur frá. Þessi áætlanagerð verður auðvitað að byggjast með öðrum hætti. Hún verður að byggjast fyrst og fremst á því, hvar sé líklegt, að vinnuaflið sé, hvar sé líklegt, að þurfi að bæta við húsnæði. Og það er hverju orði sannara og réttara, sem hv. 1. þm. Austf. sagði; það verður engin fjölgun á neinum stað, ef hvergi er til leiguhúsnæði. Menn flytja ekki til nýrra staða með tjald með sér og byrja að byggja. Menn þurfa auðvitað fyrst og fremst að fá á leigu húsnæði, vita hvort þeir kunna við sig á þessum stað, hvort þeir festa þar rætur, og þá síðar meir hefja þeir byggingu, ef þeir kunna við sig á þessum stöðum.

Mér finnst þessi till., sem hér liggur fyrir og stefnir alveg í rétta átt, samt engan veginn ganga nógu langt, því að í 2. lið hennar segir, að leggja skuli fyrir Alþ. frv. til l. um útvegun fjármagns og útlán þess til sveitarfélaga, þannig að þeim sé gert fjárhagslega kleift að byggja og reka leiguhúsnæði, þar sem þess sé þörf. Mér finnst, að hér sé um veigamikinn misskilning að ræða hjá hv. flm. þessarar till., og sömuleiðis þeirri hv. n., sem fjallað hefur um till. og mælir með samþykkt hennar, því að mjög víða eru sveitarfélögin það fámenn, að þau geta ekki staðið undir neinum verulegum framlögum til byggingar slíks leiguhúsnæðis. Og í mörgum tilfellum er það jafnvel enn sterkara, að atvinnulífið á viðkomandi stöðum sé aðili að slíkum byggingum, og ég veit um það, veit þess mörg dæmi, að það mun ekkert standa á því að ná samstarfi á milli hreppsfélags og stærstu atvinnufyrirtækjanna á stöðum um að byggja leiguhúsnæði, þar sem mikill skortur er á leiguhúsnæði. Hins vegar má segja það, að okkar húsnæðismálalöggjöf var auðvitað í fyrstunni sett af vanefnum. Það var skortur á fjármagni eins og fyrri daginn, og hún var byggð upp á því að byggja eingöngu nýjar íbúðir og lána eingöngu eitt lán út á hverja íbúð. Aðilum, sem vildu byggja á stöðum, þar sem skortur var á leiguhúsnæði, var fyrirmunað að fá slík lán, og úr því þarf að bæta. Það hefur hv. 1. þm. Austf. tekið mjög myndarlega undir og bent með rökum á, sem ég þarf ekki að endurtaka hér, og sömuleiðis hæstv. félmrh., hann hefur gert það líka. Það, sem fyrst og fremst þarf að gera í breytingu á húsnæðismálalöggjöfinni, er að heimila félögum á stöðum, þar sem skortur er á leiguhúsnæði, þar sem leiguhúsnæði finnst ekki, félögum, sem stofnuð eru í samvinnu og sameign við sveitarfélögin, að byggja leiguhúsnæði, en ekki sveitarfélögunum einum. Sveitarfélögin ein á sumum þessum stöðum, þar sem er mikið fámenni, þar sem þau standa í mjög kostnaðarsömum framkvæmdum, geta ekki staðið ein undir þessu. Hinu skulum við gera okkur grein fyrir, sem ég er sammála hæstv. félmrh. um, að þegar við gerum breytingu í þessa átt, þá verðum við auðvitað að reyna að greiða skynsamlega fyrir framkvæmdum á þessu sviði, en ekki það óhóflega, að allir fari af stað í það sama, þannig að jafnvel verði eftir eitt eða tvö ár auðar íbúðir á stöðum, þar sem áður var mikil þörf fyrir íbúðir. Þess vegna þurfa auðvitað að vera ábyrgir aðilar heima fyrir á þessum stöðum, bæði hreppsfélögin sjálf og helztu atvinnufyrirtækin, en það á engan veginn að láta standa á forsjá og fyrirgreiðslu ríkisvaldsins í þessum efnum.