18.05.1972
Sameinað þing: 74. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í D-deild Alþingistíðinda. (3816)

274. mál, vegáætlun 1972-1975

Frsm. (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Við fyrri umr. um vegáætlun gerði hæstv. samgrh. ítarlega grein fyrir áætluninni, og mun ég því ekki fjalla um vegamálin almennt, heldur gera í stuttu máli grein fyrir brtt. fjvn.

Till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 1972—1975 var vísað til fjvn. hinn 10. maí s.l. Nærri viku áður hafði n. fengið áætlunina í hendur og hafið störf við athugun málsins. N. hélt alls níu fundi um áætlunina og naut við afgreiðslu hennar og athugun fulltingis Sigurðar Jóhannssonar vegamálastjóra, og á hann og starfslið hans sérstakar þakkir skildar fyrir framúrskarandi þjónustu og leiðsögn. Í því sambandi hvarflar að mér, að mikill fengur væri, að allar stofnanir ríkisins væru jafnfærar um að gegna hlutverki sínu og veita þá þjónustu, sem þeim er ætlað.

Fjvn. skilar sameiginlega nál. á þskj. 882, og brtt. hennar koma fram á þskj. 833, en algert samkomulag var í n. um allar þessar till. nema till. varðandi veggjald á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi. Nm. áskilja sér því rétt til að flytja brtt. eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma, og undirrita fjórir nm. álitið með fyrirvara að því er tekur til þessa þáttar í till. n. Ég vil við þetta tækifæri flytja meðnm. mínum þakkir fyrir mjög gott samstarf við afgreiðslu málsins og þá fyrirhöfn, sem þeir hafa á sig lagt til að ná samstöðu, sem tókst í þeim mæli, að n. skilar sameiginlegu nál., þó að ágreiningur sé um eitt atriði.

N. varð strax ásátt um að beita sér fyrir nokkrum sérstökum breytingum á vegáætluninni, eins og hún var prentuð og síðar lögð fram á Alþ. Áhugi nm. beindist í þessu efni að því, að aflað yrði lánsfjár til hraðbrautaframkvæmda árin 1973, 1974 og 1975, en í upphaflegu till. var gert ráð fyrir, að þær lántökur féllu niður eftir árið 1972. Enn fremur leit n. svo á, að framkvæmdir við Djúpveg væru á vissan hátt hliðstæðar framkvæmdum við Skeiðarársandsveg og nauðsynlegt væri að gera ráð fyrir öflun lánsfjár, til þess að þeim framkvæmdum yrði lokið á áætlunartímabilinu. Í till. n. eru í samræmi við þetta gerðar till. um lánsfjáröflun til hraðbrauta 1973—75 samtals 300 millj. kr. og við það miðað, að fást muni lán hjá Alþjóðabankanum til þeirra framkvæmda, sem uppfylla skilyrði bankans um arðsemi og nauðsynlegan undirbúning. Enn fremur er gerð till. um lánsfjáröflun til Djúpvegar, 25 millj. á hverju ári 1972-1975, og lánsfjáröflun til Norðurlandsáætlunar verði aukin úr 100 millj. kr. 1972 í 120 millj., og nemur fjáröflun til þeirra framkvæmda því alls 620 millj. kr. á áætlunartímabilinu samkv. till. nefndarinnar.

Þegar n. kannaði þáltill. í upphafi, var hún einnig sammála um, að hver svo sem afstaða einstakra nm. væri til álagningar veggjalds á áætlunartímabilinu, þá væri algjörlega óeðlilegt að hugsa sér, að áfram yrði lagt veggjald á Reykjanesbraut, en ekki á sambærilega vegi, eins og gert var ráð fyrir í framlagðri þáltill. Um annað tveggja væri að ræða, að ekkert veggjald yrði á lagt og till, um veggjald á Reykjanesbraut þá felld niður eða slíkt gjald þá almennt tekið og þá hafin innheimta á Suðurlandsvegi eftir næstu áramót. Um það, hvora lausnina ætti að velja, var, eins og ég áður sagði, ekki samkomulag í n. Í till. n. varð því að stilla tekjuáætluninni upp með annarri hvorri þessara till. og á þskj. 833 er gert ráð fyrir innheimtu veggjalds á báðum umræddum hraðbrautum, en fyrri till. fylgja ekki allir nm., heldur eru sumir hlynntir hinni till., að á hvorugri akbrautinni verði innheimt veggjald eftir næstu áramót. Þar sem algjör samstaða var í n. um öll önnur atriði, sáu nm. ekki ástæðu til að skipta liði við heildarafgreiðslu málsins vegna þessa eina atriðis. Afstaða hvers og eins nm. mun eins og afstaða annarra hv. þm. að sjálfsögðu koma fram við endanlega afgreiðslu málsins hér í Sþ.

Þegar bráðabirgðavegáætlun fyrir árið 1972 var afgreidd, var áætlun um kostnað við framkvæmdir þess árs á vegáætlun 1969—1972 breytt til samræmis við breytt verðlag og tekjuáætlun endurskoðuð á sama hátt. Þegar tekið hafði verið tillit til halla frá 1971 og þá gert ráð fyrir að flytja 29.8 millj. kr. yfir á árið 1972, voru eftir til viðbótarframkvæmda árið 1972 32.8 millj. kr. þ.e. þar var um að ræða fjármagn til viðbótarframkvæmda árið 1972 fram yfir það, sem áætlað hafði verið og skipt á ákveðin verkefni á vegáætlun 1969–1972. Við afgreiðslu bráðabirgðaáætlunarinnar fyrir 1972 var þessari upphæð ekki skipt á einstök verk, heldur færð í þá áætlun í einu lagi, og ætlunin er að ráðstafa henni í þeirri vegáætlun, sem hér er til umr. Síðan hafa þær breytingar orðið á tekjuáætlun, að beint framlag ríkissjóðs hefur verið aukið á árinu 1972 um 153 millj. kr. greiðsla ríkissjóðs á afborgunum og vöxtum lána aukin og enn fremur gert ráð fyrir 50 millj. kr. lántöku. Samtímis hefur verðlag hækkað, og ráðgerðar framkvæmdir til tiltekinna verka í bráðabirgðaáætlun ársins 1972 krefjast því aukins fjármagns. Þegar tekið hafði verið tillit til alls þessa, reyndust 74.1 millj. kr. vera til ráðstöfunar 1972 í framkvæmdir, er ekki hafði verið slegið föstum í bráðabirgðaáætlun fyrir árið 1972.

Í fjvn. varð samkomulag um að leggja til, að af þeirri upphæð yrðu 17.2 millj. kr. teknar til sérstakra verkefna, en afgangurinn kæmi til almennrar skiptingar á þjóðbrautir og landsbrautir. Sá hluti, sem hér var tekinn út úr, var þannig til kominn, að hér var um að ræða nokkur smærri verkefni, sem bundin voru af liðnum tíma, en þó fyrst og fremst framkvæmdir, sem nm. voru sammála um að telja sameiginleg verkefni án tillits til kjördæma, framkvæmdir innan þjóðgarðsins á Þingvöllum og á Álftanesvegi. Þess má geta, að einnig er gerð tillaga um að verja 5 millj. kr. til vegaframkvæmda innan þjóðgarðsins á árinu 1973. Það koma því 56.9 millj. til skipta í viðbótarframkvæmdir við þjóðbrautir og landsbrautir 1972 umfram þær framkvæmdir, sem ákveðnar voru í bráðabirgðavegáætlun, sem samþ. var í fyrra.

Til heildarframkvæmda í þjóðbrautum og landsbrautum 1973 komu 218.3 millj. kr., 1974 228.2 millj. og 1975 273.5 millj. Varðandi hraðbrautaframkvæmdir á árinu 1972 stóð dæmið þannig, að á þáltill. um vegáætlun 1972—1975 er beint framlag til hraðbrauta á þessu ári hækkað úr 195.5 millj. kr. í 245.8 millj., auk þess sem lánsfé nemur 145 millj. Þessar fjárhæðir eru þegar bundnar í þær framkvæmdir, sem samþykktar eru á bráðabirgðavegáætlun fyrir árið 1972, sem samþykkt var fyrir ári, og um þær framkvæmdir hefur verið samið við verktaka.

Heildarframkvæmdir við hraðbrautir á árunum 1972—1975 í þáltill., eins og hún var lögð fram, voru áætlaðar um 650 millj. kr., þar með talið lánsfé árið 1972, en samkvæmt brtt. n. á þskj. 833 hækkar sú upphæð í 950 millj. kr., þar sem þar er gert ráð fyrir lántökum á árunum 1973, 1974 og 1975, 300 millj. kr. samtals. Allar till. n. um skiptingu fjár til einstakra framkvæmda í hinum ýmsu þáttum vegamála eru gerðar í samráði við þm. viðkomandi kjördæma og ekki annað vitað en um þær sé fullt samkomulag.

Þeirri aukningu á lánsfé til Norðurlandsáætlunar, 20 millj. kr. á árinu 1972, sem till. var gerð um, er ekki skipt á einstakar framkvæmdir, og framlag til aðalfjallvega er ekki sundurliðað, þar sem ekki er á þessu stigi ljóst, hversu miklu fé þarf að verja til vegaframkvæmda í sambandi við þá brúargerð á Hvítá og Sprengisandsleið, sem gerðar eru till. um. Till. um framlög til einstakra verka í liðnum „Aðrir fjallvegir“ markast m.a. af því, að þm. úr Norðurl. e. hafa lagt til framkvæmdir við ákveðin verk fyrir fé, sem ella hefði komið til ráðstöfunar til annarra vegaframkvæmda í þeirra kjördæmi. Þá vil ég geta þess um liðinn „Til tilrauna í vegagerð“, að við það er miðað, að af þeim lið verði varið fé til undirbúnings, rannsókna og kannana á möguleikum á að byggja yfir tiltekin gil á Óshlíðarvegi• og Ólafsfjarðarvegi, þar sem hætta er á grjóthruni.

Í þeirri till. til þál. um vegamál sem hér liggur fyrir, er sú nýbreytni upp tekin, að í henni kemur fram öll fjáröflun og allar framkvæmdir í vegamálum, þ.á.m. landshlutaáætlanir fyrir Austurland og Norðurland, hraðbrautaframkvæmdir allar, þar með talið fyrir lánsfé, svo og allar aðrar framkvæmdir fyrir lánsfé, svo sem vegagerðin yfir Skeiðarársand og Djúpvegur og auk þess kostnaður við öll lán, sem tekin hafa verið til vegaframkvæmda. Þetta gefur að sjálfsögðu miklu gleggri mynd af vegamálunum en áður hefur fengizt á einum stað, en samanburður á heildarniðurstöðu vegáætlunar nú og fyrri ára er ekki eins auðveldur að þessu sinni vegna breyttrar uppsetningar. Slíkan samanburð á fjáröflun til vegamála nú og samkv. áætlunum fyrri ára bar samt nokkuð á góma við fyrri umr. þessa máls.

Ég hef fengið Vegamálaskrifstofuna til að setja vegaáætlun fyrir árið 1971 upp með nákvæmlega sama hætti og nú er á hafður um árin 1972—1975 í þál. um vegáætlun fyrir þessi ár. Í þeirri uppsetningu á vegáætlun fyrir árið 1971, hinni sömu og nú er viðhöfð, nam fjáröflun til vegamála á því ári alls 1.307.1 millj. kr., en í till. á þskj. 833 nemur fjáröflun fyrir árið 1972 1.790 millj. kr. eða er 37% hærri.

Samkv. brtt. á þskj. 833 er gert ráð fyrir, að niðurstöðutölur vegáætlunar verði árið 1972 1.790 millj. kr., árið 1973 1.957.7 millj., 1974 2.103.6 millj. og 1975 2.029.5 millj. eða alls á áætlunartímabilinu 7.880.8 millj. kr. Lækkunin á árinu 1975 frá árinu 1974 stafar af því, að á árinu 1975 er gert ráð fyrir miklu minni fjárveitingu vegna vegar yfir Skeiðarársand en árið áður. Á næsta fjögurra ára tímabili er því gert ráð fyrir, að nær 8 milljörðum kr. verði varið til vegaframkvæmda.

Af þeim framkvæmdum, sem mest hefur verið varið til samkv. þeim till., sem hér liggja fyrir, má nefna: Vegagerð yfir Skeiðarársand 647 millj. kr. á árunum 1972—1975. Brú yfir Borgarfjörð 287 millj. á árunum 1974 og 1975. Hraðbraut um Brynjudal og Botnsvog 196.9 millj. á árunum 1973, 1974 og 1975. Aðrar hraðbrautaframkvæmdir á Vesturlandsvegi 268 millj. á árunum 1972—1975. Hraðbrautarframkvæmdir á Suðurlandsvegi 181,2 millj. kr. á árunum 1972, 1973 og 1974. Hraðbrautarframkvæmdir til Grindavíkur og Sandgerðis samtals 83.9 millj. á árinu 1973 og jarðgöng á Norðfjarðarvegi 64.5 millj. kr. á árunum 1972—1974, og fleira mætti til nefna. En þótt skiptar geti verið skoðanir um. hve miklu fjármagni skuli verja til vegaframkvæmda á hverjum tíma og hvernig því skuli ráðstafað, þá er ljóst, að, að loknu því áætlunartímabili, sem sú vegáætlun, sem hér er til meðferðar, tekur til, hafa mörg stórvirki verið unnin og á því áætlunartímabili, sem fram undan er, verða vegaframkvæmdir á Íslandi meiri en nokkru sinni hefur áður þekkzt á jafnlöngu tímabili.

Áður en ég lýk máli mínu, vil ég láta koma fram mína persónulegu afstöðu til þess eina atriðis í vegáætluninni, sem ósamkomulag var um í fjvn., álagningar veggjalds. Ég er samþykkur þeirri till. um fjáröflun, sem fram kemur á þskj. 833, þar sem gert er ráð fyrir, að veggjald verði áfram lagt á umferð á Reykjanesbraut og hafin verði innheimta þess á Suðurlandsvegi eftir næstkomandi áramót. Ég sé ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um þetta atriði. Ég tel, að þeir, sem aka á vegum með varanlegu slitlagi, hafi af því fjárhagslegan hagnað miðað við þá, sem við malarvegi og vegleysur búa, fjárhagslegan hagnað, þrátt fyrir að greitt sé veggjald. Þótt ég búi í þéttbýli, þá er ég sammála því, sem hér hefur áður komið fram, að þeir, sem búa við vegleysurnar, greiða þyngsta skattinn og á það beri að líta, hversu yfirgnæfandi hluti vegafjár fer og hefur farið á undanförnum árum til framkvæmda við varanlega gatnagerð á þéttbýlustu svæðunum. Þeirri stefnu, að verja fénu til þessara framkvæmda, er ég sammála, og ég lagði reyndar á það sérstaka áherzlu við 1. umr. um þau vegalög, sem nú gilda, að fjármagninu yrði beint sérstaklega til framkvæmda, þar sem umferðin er mest, því að umferðin þar var að lenda í óleysanlegum hnút. En ég tel ekki ósanngjarnt, að þeir, sem njóta þeirra stórfelldu úrbóta, sem á þessum svæðum hafa verið gerðar, greiði til baka nokkurn hluta af þeim beina peningalega hagnaði, sem þeir hafa af því að hafa fengið þessar úrbætur á undan öðrum og að þessum skatti verði varið til að hraða framkvæmdum, þar sem þörfin er mest. Bezt væri auðvitað að geta verið laus við allar skattgreiðslur, en ég hef t.d. ekki orðið var við, að Reykvíkingar eða utanbæjarmenn í Reykjavík kvarti sérstaklega yfir því að greiða alltaf 20 kr. á klukkustund fyrir að mega hafa bifreiðar sínar kyrrstæðar í miðbænum og víðar í Reykjavík. Ég tel svo augljósa og brýna þörf Vegasjóðs fyrir framkvæmdafé til að geta haldið hraðbrautaframkvæmdum áfram og til að geta sem hraðast haldið áfram úrbótum, þar sem vegleysurnar eru mestar, að sá skattur, sem lagður er á umferð á hraðbrautum, eftir að þær hafa náð ákveðinni vegalengd, sé réttlætanlegur. Notendur hafa eftir sem áður fjárhagslegan hagnað af því að aka slíkan veg í stað þess vegar, sem þar var áður.

Þeir, sem nú hyggjast greiða atkv. gegn því, að veggjald skuli greitt, bæði af umferð á Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut, hafa áður staðið að því við afgreiðslu vegáætlunar, að gert væri ráð fyrir veggjaldi á Reykjanesbraut, meira að segja gjaldi, sem var að raungildi a.m.k. tvöfalt hærra en gert er ráð fyrir á næsta áætlunartímabili í brtt. á þskj. 833. Ég verð að segja, að mér þykir heldur hlálegt, að loks þegar kemur að því, að aðrir ættu að fara að greiða hliðstætt og þó í raun lægra gjald en notendur Reykjanesbrautar hafa greitt með samþykki allra hv. þm. við afgreiðslu vegáætlana, þá skuli þeir, sem staðið hafa að skattlagningu af umferð á Reykjanesbraut, loks láta verða af því að greiða við afgreiðslu vegáætlunar atkv. gegn því að gera ráð fyrir tekjum af slíku gjaldi. Satt að segja held ég, að úr því að þeir hafa verið þeirrar skoðunar við afgreiðslu vegáætlunar, að greiða skuli slíkt gjald um ákveðið árabil, eins og þeirra stefna hefur í raun verið miðað við liðinn tíma, þá ættu þeir heldur að beita sér fyrir því, að sú regla yrði þá viðurkennd gagnvart öllum, og leggja þá til, að veggjald skuli greiða í ákveðinn árafjölda eftir að hraðbraut hefur verið tekin í notkun, þannig að veggjald falli nú niður af umferð á Reykjanesbraut, en verði greidd af umferð um Suðurlandsveg í jafnlangan tíma og gilt hefur þar syðra með raunverulegu samþykki allra hv. þm.

Herra forseti. Ég hef þá gert grein fyrir störfum og brtt. hv. fjvn. og persónulegri afstöðu minni til þess eina atriðis, sem ágreiningur var um í n., og læt máli mínu þar með lokið.