16.05.1972
Sameinað þing: 71. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í D-deild Alþingistíðinda. (3841)

123. mál, endurgreiðsla söluskatts til rithöfunda

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Hv. 3. landsk. þm. hefur gert nokkra grein fyrir brtt. hv. 5. þm. Reykv.. sem liggur hér fyrir Alþ. Efnislega er hér ekki um breytingu að ræða á upphaflegu till., en hins vegar mun orðalag taka af tvímæli um nokkur atriði, sem hv. þm. hafa velt fyrir sér, svo sem fram hefur komið. Það var aldrei ætlunin hjá flm. að knýja mál þetta fram utan fjárlaga, en ég hef orðið vör við, að nokkurs misskilnings hefur gætt í því efni. En ég hygg, að brtt. hv. 5. þm. Reykv. kveði glöggt á um þetta.

Frsm. meiri hl. n., hv. 1. þm. Norðurl. e., tók það líka fram, að brtt. væri gleggri, og margir eru sama sinnis. Ég vil því taka það fram. að til þess að mál þetta fái framgang hér á þingi og í þeirri von. að um það náist meiri samstaða. þá hef ég tekið þá ákvörðun að greiða brtt. á þskj. 826 atkv. Ég vil af þessu tilefni lýsa sérstakri ánægju minni yfir því, að hv. 5. þm. Reykv., Gunnar Thoroddsen, hefur lagt málinu lið á þennan hátt.

Ég mælti á sínum tíma fyrir þessari till. og ætla ekki að fara að fjölyrða meira um þetta mál að öðru leyti en því, að ég vil minna hv. þm. á bréf, sem þeim hefur öllum borizt, að ég hygg. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Þetta er eina raunverulega lífshagsmunamál rithöfunda, sem fyrir þinginu hefur legið í áratugi og því höfðu höfundar vænzt, að hv. þm. ynnu þeim þessarar réttarbótar allir án undantekningar.“

Margir þjóðkunnir menn skrifa undir þetta bréf, og þá þarf ekki að kynna fyrir hv. þm. Ég vil þó leyfa mér að benda á eitt nafn, sem stendur undir þessu bréfi, nafn Sigurðar Nordals. Þegar Sigurður Nordal tjáir sig um málefni. er varða íslenzka menningu, telja fleiri en Íslendingar sér skylt að leggja við hlustir. Ég tel það heiður fyrir alþm. að þiggja ráð og hvatningu þessa manns.