03.02.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í D-deild Alþingistíðinda. (3888)

95. mál, upplýsingaskylda stjórnvalda

Flm. (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Samhljóða till. var flutt á síðasta þingi, og var henni þá fylgt allítarlega úr hlaði, og tel ég ekki þörf á því að rifja það upp hér. En efni þessarar till. er, að Alþ. álykti að fela ríkisstj. að láta undirbúa og leggja fyrir næsta þing frv. til l. um skyldu stjórnvalda og ríkisstofnana til að skýra opinberlega frá störfum sínum og ákvörðunum og veita þeim, sem þess óska, aðgang að reikningum og skjölum, sem almenning varða. Það á að sjálfsögðu að vera hlutverk almennings að dæma um gerðir stjórnvalda og ríkisstofnana, en til þess að eiga kost á því þarf að sjálfsögðu að eiga aðgang að sem áreiðanlegustum og greinilegustum upplýsingum um störf þessara stofnana og þær ákvarðanir, sem þær taka, og þær framkvæmdir, sem þær hafa með höndum. En mjög hefur skort á það að undanförnu, bæði hér og reyndar annars staðar, að almenningur ætti kost slíkra upplýsinga. Þess vegna er það, að í mörgum nágrannalöndum okkar hefur á undanförnum árum verið sett sérstök löggjöf um þessi efni, m.a. nú nýlega bæði í Noregi og Danmörku, þar sem það er nánar tilgreint, hvaða upplýsingar og skjöl og reikningar það eru, sem eðlilegt er, að almenningur hafi aðgang að, og svo jafnframt, hvað það er í starfsemi og reikningum og bókum þessara stofnana, sem sé eðlilegt, að sé haldið leyndu, a.m.k. um nokkurt skeið, vegna þess að þar sé um upplýsingar að ræða, sem ekki sé heppilegt, að komi fyrir almenningssjónir, a.m.k. að svo stöddu. Ég held, að það væri mjög æskilegt, að svipuð löggjöf væri sett hér og almenningi þannig gefinn betri kostur á því, en nú er að fylgjast með störfum umræddra aðila.

Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta að sinni, en leyfi mér að leggja til, að umr. verði frestað og till. vísað til hv. allshn.