22.11.1971
Neðri deild: 15. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (39)
71. mál, innlent lán
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Ég skal nú ekki fara að þreyta hér langar umr. um frv. á þskj. 78, sem hér liggur fyrir til 2. umr., enda hef ég óskað eftir því, að því yrði hraðað í gegnum þingið, og ég hef að sjálfsögðu ekkert við það að athuga, þó hv. 1. þm. Reykn., frsm. minni hl. fjhn., telji, að núv. ríkisstj. hafi aðra stefnu og önnur vinnubrögð en kannske fyrirrennarar hennar, því að núv. stjórnarsinnar töldu þá stefnu ekki rétta, og ég hygg, að það sé eins frá hans hendi um okkar stefnu. Þetta leiðir að sjálfsögðu af því, að við erum ekki samherjar í stjórnmálum og hugsum þessi mál á annan veg.
Svo hlýtur það að sjálfsögðu að vera nokkuð annað að hafa aðeins nokkra mánuði til þess að undirbúa stór fjárhagsmál eins og fjárlagafrv. og þær aðrar aðgerðir, sem eru tengdar því, eins og núv. ríkisstj. hefur haft, en fyrirrennarar okkar, sem sátu hér ár eftir ár, voru auðvitað búnir að aðlaga vinnubrögð að sínum siðum og höfðu góðan tíma til þess að geta látið þetta falla saman. Það er því ekkert undarlegt, þó að við þurfum á fyrsta stigi málsins, eins og þeir þurftu á fyrstu stjórnarárum sínum, að hafa hraðari vinnubrögð og önnur en þeir höfðu á síðari stjórnarárum, sem leiddi af því, að þá voru þeir búnir að laga kerfið að sínum starfsháttum og því, sem þeir stefndu að.
Ég held, að það orki ekki tvímælis, að það er mikil þörf á því, að innlend lán séu fengin til framkvæmda á vegum ríkisins. Það er alveg óhugsandi, að það sé hægt að fjármagna þær framkvæmdir, sem hæstv. núv. ríkisstj. ætlar sér að vinna að, með fjárlagaafgreiðslunni einni saman, og það var ekki heldur hægt hjá fyrrv. ríkisstj., og það eru ekki heldur skynsamleg vinnubrögð að haga því þannig til. Það er líka stefna núv. ríkisstj. að reyna að vinna að því að ná til innlendra íána til framkvæmda á vegum ríkisins, eins og nokkur tök eru til, því að reynslan af erlendum lánum til framkvæmda, eins og t.d. vegagerðar, er slík, að inn á þá braut má að dómi núv. ríkisstj. ekki fara, nema aðrar leiðir séu gersamlega þrotnar. Þetta veit ég, að hv. 1. þm. Reykn. er mér sannarlega sammála um, enda er þar að finna bitra reynslu af því að taka erlend lán til framkvæmda í vegamálum. Þess vegna held ég, að við séum alveg sammála um það, að sú stefna sé rétt að afla innlends fjár til framkvæmda á vegum ríkisins, og einnig um það að afla lánsfjár til framkvæmda, því að annars yrðu þær allt of litlar, ef ætti að fjármagna þær eingöngu með fjárlagaframlagi.
Hitt er svo annað, sem hv. 1. þm. Reykn., frsm. minni hl., hefur haldið fram, að um einsdæmi væri að ræða, að ráðstöfun á fénu skuli ekki hafa átt sér stað, áður en leitað hafi verið eftir því, að lánsheimild væri gefin. Í því sambandi nefndi ég enska framkvæmdalánið, sem á sínum tíma var í raun og veru upphaf að þessari aðferð til að fjármagna ríkisframkvæmdir, og að sjálfsögðu féllst Alþ. á að afgreiða það mál, þó að fénu yrði siðar ráðstafað. Frá 85. löggjafarþingi 1964 hef ég frv. frá ríkisstj., sem þá sat, um innlent lán. Þar segir svo í 4. gr. frv., með leyfi hæstv. forseta:
„Lánsfé því, sem aflast með sölu bréfa og spariskírteina skv. 1. gr., er ríkisstj. heimilt í samráði við fjvn. að verja til framkvæmda á vegum ríkisins og til greiðslu á skuldum ríkissjóðs og ríkisábyrgðasjóðs.“
Ekki var nú gerð grein fyrir því þá, með hvaða hætti ætti að nota þetta fé, heldur var heimildin fengin til þess að ná til fjárins, og síðar átti með samþykki Alþ. og í samstarfi við fjvn. að ráðstafa því. Það er heldur ekkert óeðlilegt, þegar ekki liggja fyrir, eins og nú er, drög að framkvæmdaáætlun, sem ég hef áður gert grein fyrir að ríkisstj. taldi sig ekki vera tilbúna til að leggja fram með fjárlagafrv. í haust, og ég tel, að það sé vel afsakanlegt, þótt svo hafi verið, með tilliti til þess tíma, sem ríkisstj. hafði þá setið, og tilliti til þess, að hún var að undirbúa frv. að Framkvæmdastofnun, sem snertir að sjálfsögðu verulega þetta mál, sem hér er verið að ræða um.
Í sambandi við það, sem hv. þm. sagði um viðskiptabankana, þá efast ég ekkert um það, að hankastjórar þeirra hafa talið, að þetta mundi þrengja þeirra kosti að einhverju leyti. Ég vil líka segja það, að það hafi verið umr. um það, ekki sízt núna seinni hluta sumarsins, að verulegt fjármagn væri í umferð hér á landi og meira en verið hefur og það svo, að það hafi haft áhrif á sölu fasteigna. Þess vegna hæri nauðsyn til að gera ráðstafanir til þess að draga úr þeim verðbólguáhrifum, sem þar gætu verið á ferðinni. Ég þekki það af heimsóknum í viðskiptabanka, að þar er eins og á öðrum bæjum aldrei of mikið um fjármagn. Það mun ekki verða nú heldur, ég efast ekkert um það. Ég vil hins vegar segja það, að núv. ríkisstj. hefur með ráðstöfunum sínum í sambandi við afurðalánin létt nokkuð á viðskiptabönkunum í lánastarfsemi þeirri, þannig að það er að sjálfsögðu og með eðlilegum hætti tekið tillit til þeirra, eins og vera ber.
Ég skal, eins og ég sagði áðan, ekki fara að þreyta neinar kappræður um þetta mál hér, það þjónar engum tilgangi. Ég tel, að rökin fyrir því, að frv. er seint fram komið á árinu, séu stjórnarskiptin, sem fram fóru á miðju sumri, og hin nýja ríkisstj. þurfti að sjálfsögðu nokkurn tíma til þess að vinna að undirbúningi þeirra mála, sem hún er að vinna að. Hún hefur uppi áform um verulegar framkvæmdir á vegum ríkisins á næsta ári og stefnir að því að reyna að ná til þess eins miklu af innlendu fjármagni, að því leyti sem lánsfé á að nota, og möguleikar eru til. Hún vill einnig með þessu draga úr því, að verðbólguáhrif eigi sér stað, eins og rætt hefur verið um seinni partinn í sumar, vegna þess að fjármagn í umferð væri geysilega mikið. Það er á engan hátt nema eðli búmannsins að reyna að ná til fjárins, svo að eitthvað verði til, þegar til framkvæmdanna á að taka, og það ætti ekki að verða nein höfuðsynd hjá okkur, þótt við hefðum með þessum hætti safnað til framkvæmda á næsta ári, og ég er sannfærður um það, að hv. 1. þm. Reykn., — hann er svo mikill búmaður, — kann í hjarta sínu að meta það, hvað sem hann kann að segja í þessu efni.