03.02.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í D-deild Alþingistíðinda. (3912)
27. mál, fóstureyðingar
Frsm. (Bjarni Guðnason):
Herra forseti. Allshn. hefur tekið til athugunar till. þá, sem er á þskj. 27, um fóstureyðingar, og komizt að niðurstöðu í nál., sem er svo hljóðandi:
„Nefndin hefur tekið málið til athugunar og umr. og leitað umsagnar nokkurra aðila. Þar sem fram hefur komið, að stjórnskipuð nefnd vinnur nú að endurskoðun laga um fóstureyðingar, leggur nefndin til, að málinu verði vísað til ríkisstj.“
Í þessu sambandi vil ég bæta því við, að allshn. leitaði umsagna hjá Kvenfélagasambandi Íslands, landlækni og þeirri nefnd, er vinnur að endurskoðun laga um fóstureyðingar og vananir, og þykir mér rétt í því sambandi að lesa upp umsögn frá Pétri Jakobssyni prófessor. sem skrifar undir nál. frá hinni stjórnskipuðu nefnd. Í þessu bréfi Péturs Jakobssonar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Nefndin telur mjög mikilvægt við endurskoðun laganna að kanna, hvernig núgildandi lög hafa reynzt í framkvæmd. Vinnur nefndin því að söfnun ítarlegra gagna um fóstureyðingar og vananir, sem framkvæmdar hafa verið á undanförnum árum hér á landi, í því skyni að athuga, hvernig konu vegnar heilsufarslega og félagslega eftir þessar aðgerðir. Hefur nefndin snúið sér til kvenna, sem gengizt hafa undir fóstureyðingu og/eða vönun á ákveðnu tveggja ára tímabili á fæðingardeild Landsspítalans, og beðið þær að miðla af reynslu sinni í þessu efni í viðtali hjá félagsráðgjafa og læknisskoðun. Enn fremur kynnir nefndin sér að sjálfsögðu reynslu annarra þjóða á þessu sviði. Störfum nefndarinnar verður hraðað eftir föngum. og hefur nefndin fullan hug á að vinna að frjálslegri löggjöf.“
M.ö.o. niðurstaðan er sú, að þessu máli verði vísað til ríkisstj.