07.12.1971
Sameinað þing: 21. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í D-deild Alþingistíðinda. (3934)

84. mál, landgræðsla og gróðurvernd

Flm. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Till. sú til þál., sem við hv. 3. landsk. þm. flytjum á þskj. 94, fjallar um eitt hið mesta mál, sem úrlausnar bíður með þjóð vorri. Má raunar segja, að gróðureyðingunni megi jafna til þess, að eyddust fiskistofnar í hafinu umhverfis landið. Eins og segir í grg. fyrir till., hefur gróðureyðingin verið um aldaraðir alvarlegasta vandamálið á sviði náttúruverndar hér á landi. Um stærð þess vandamáls vísast til þess, sem segir í grg. og haft er eftir sérfróðum mönnum um þessi efni. Óþarft er raunar að hafa hér um mörg orð, þar sem öllum hv. þm. mun fullljós knýjandi nauðsyn þess, að hafnar séu stórfelldar framkvæmdir í landgræðslu og gróðurvernd.

Fjórir eru þættir þessa máls og allir samtengdir, sem okkur flm. sýnist, að beri að leggja höfuðáherzlu á. Í fyrsta lagi: Myndun einnar heildarstjórnar þessara mála með skipan fimm manna landgræðslunefndar, sem við svo nefnum. Á það skal lögð áherzla, að með þessu er ekki verið að lýsa vantrausti á þær stofnanir, sem mikil og verðmæt störf hafa unnið á þessum vettvangi á liðnum árum. En augljóst virðist, að stórvirki verða ekki unnin í þessum efnum nema undir einni heildarstjórn. Þá forustu ber Alþ. að veita. Um það má auðvitað deila, hvort skipan í landgræðslustjórn skuli vera með þeim hætti, sem við flm. leggjum hér til, að hver þingflokkur tilnefni mann í nefndina. Þó virðist þessi skipan mála í hæsta máta eðlileg, eigi Alþ. á annað borð að veita þessa forustu, sem við teljum sjálfsagt.

Í öðru lagi leggjum við áherzlu á, að lokið verði rannsóknum á gróðri landsins og gróðureyðingu og þar með gerð heildarúttekt á ástandinu, eins og það nú er. Unnið hefur verið að víðtækum rannsóknum á gróðri landsins til þess að ákvarða beitarþol þess og að finna, hvar gróðureyðing á sér stað eða er yfirvofandi, og enn fremur til þess að reyna aðferðir til þess að auka beitarþol úthagans, græða upp örfoka land og hefta uppblástur. Gerð hafa verið gróðurkort af um 2/3 hlutum landsins. Á allar þessar rannsóknir þarf að leggja aukna áherzlu og ljúka gróðurkortagerð af öllu landinu.

Í þriðja lagi ber að leggja áherzlu á gerð heildar landgræðsluáætlunar, sem að sjálfsögðu verði byggð á niðurstöðum fyrrgreindra rannsókna. En þótt svo verði að vera, vita menn nægjanlega mikið um, hvar skórinn kreppir mest, til þess að hefjast megi handa um miklar framkvæmdir þegar í stað. Er hér átt við þann þátt sérstaklega að hefja ræktun lands, svo létta megi af ofbeit.

Í fjórða lagi er svo afl hlutanna, sem gera skal, fjármagnið: Fróðir menn telja, að næstu fimm ár þurfi að verja um 150 millj. kr. árlega til að rækta land, svo að létta megi af ofbeit. Þetta er auðvitað mikið fé, en hafi menn í huga, hvað í húfi er, þá þykist ég þess fullviss, að þeim muni ekki ofbjóða þessar fjárhæðir, enda mun vissulega þurfa meira fé til, þegar framkvæmd heildaráætlunar hefst. Gamall þingskörungur hefur raunar kennt mér að láta mér ekki í augum vaxa, þegar tala eins og 150 millj. flýgur fyrir, heldur minnast þess, að hér sé aðeins um eins og eitt skuttogaraverð að ræða.

Til viðbótar því að vísa til þess, sem allítarlega er rakið í grg. til stuðnings þessu máli, vil ég svo að lokum nefna hið mikla afl, sem við þurfum að leysa úr læðingi með því að vekja athygli og áhuga allra landsmanna á landgræðslu og gróðurvernd. Félagsskap áhugamanna um þessi efni hefur á síðustu árum vaxið mjög fiskur um hrygg. En takist að fylkja allri þjóðinni fram til stórsóknar í þessum málum og einnig allri annarri umhverfisvernd, þá munu verkin vinnast bæði fljótt og vel.

Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að máli þessu verði vísað til fjvn. að þessari umr. lokinni.