03.02.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í D-deild Alþingistíðinda. (3951)

84. mál, landgræðsla og gróðurvernd

Jónas Jónsson:

Herra forseti. Till. sú til þál., sem hér er til umr. og hefur reyndar alllengi verið, hefur vakið verðskuldaða athygli og í hlutfalli við mikilvægi þess málefnis, sem þar er vakið máls á. Í umr. þessum hefur stærð vandamálsins komið allmikið til umr. Það hefur verið vikið að því, hvort og hve mikil ofbeit eigi sér stað og um orsakir hennar, og nokkuð borið á karpi um orsakir fyrir gróðureyðingu. Ég álít, að í þessu máli sé ekki ástæða til þess að leggja svo mikla áherzlu á slíkt, og ekki ástæða til að karpa um orsakir. Við vitum nógu mikið um þetta til þess að fullyrða, að hér sé mikið vandamál. Og sú þjóðarvakning, sem hér hefur orðið, ber vissulega vitni um þetta. Ég vil lýsa ánægju minni yfir þessum tillöguflutningi og hef reyndar gert það og endurtek ekki að ástæðulausu, að þetta hefur vakið nokkrar umr.

En í sambandi við það, sem hér hefur komið fram um nefndarskipanina, og það, að flutningur þessarar till. hafi haft áhrif á hana, þá vil ég nú benda á það, að það mun þurfa að grípa til afstæðiskenningarinnar til að sanna það, að nefndin sé afleiðing till., en það er auðvitað ekkert aðalatriði í þessu máli. Ég vil minna á það, sem reyndar hefur komið hér fram, að í stjórnarsáttmálanum eru ákvæði, sem auðvitað var alltaf meiningin að framkvæma, þar sem segir, að gera skuli heildaráætlun um alhliða landgræðslu og skipulega nýtingu landsgæða og nefndarskipunin var sem sagt rökrétt framhald af þessu ákvæði. Það vildi svo til, að till. var flutt áður en nefndin var skipuð. Það var að vísu búið að vinna nokkuð að undirbúningsstarfi til nefndarskipunarinnar áður. En í sambandi við þá kvörtun, sem 2. flm. till. bar hér fram, að ekki hefði verið haft samráð við hann í sambandi við nefndarskipunina, þá get ég aðeins gert grein fyrir því, að haft var samráð við formann flokks hv. flm. í sambandi við till. um mann í nefndina. Það er ekkert að undra, þar sem þetta er málefni, sem mjög margir hafa áhuga á, þó að færri kæmust að en vildu, og það er ekkert við því að segja. Það er fullt af áhugamönnum um þetta málefni, bæði í röðum þm. og utan þings.

En af því að hér hefur líka verið rakin saga, finnst mér rétt, að það komi fram, að ákvæði í stjórnarsáttmálanum var rökrétt afleiðing þess, að stærsti stjórnarflokkurinn var búinn að gera þetta að ákveðnu baráttumáli sínu. Í flokksþingsályktun Framsfl. síðustu stendur svo hljóðandi í kafla um landgræðslumál. Með leyfi hæstv. forseta vil ég lesa það. Þar stendur:

„Til minningar um 11 alda byggð í landinu verði á næstu þremur árum gerð heildaráætlun um alhliða landgræðslu og skipulega nýtingu landsgæða, þar sem m.a. verði stefnt að:

1) Endanlegri heftingu allrar gróður— og jarðvegseyðingar.

2) Skipulegri nýtingu gróðurlenda og nægri ræktun beitilands, þannig að land verði hvergi ofsetið.

3) Græðslu örfoka og eyddra landssvæða.

4) Allsherjarúttekt á skógræktarmöguleikum og áætlun fyrir allt skógræktarstarfið í landinu. Síðast en ekki sízt verði gerð drög að heildarskipulagningu allra landsnytja fram til næstu aldamóta.“

Mér finnst sérstök ástæða til þess að benda á þetta, vegna þess að á bak við þetta liggur ákveðin hugsun, sem ég held, að megi segja, að nú sé orðin að sameign þjóðarinnar. Það er þetta, að 11 alda byggðar í landinu verði minnzt með sérstöku átaki í þessum málum. Að eftir 11 alda sambúð, sem sumir hafa kallað stríð við landið, þá verði saminn friður og eftir þann tíma verði það örugglega þannig, að með hverju árinu sem liður, vinnum við á í baráttunni. Það hallist ekki lengur á með þennan reikning, gróðurreikning hjá landinu. Við erum að deila um það núna, hvort meira blási upp en árlega grær, hvort meira eyðist en ávinnst. Það eru ekki til beinar mælingar yfir þetta. En eftir þetta ættum við að vera öruggir með það, að við værum í sókn í þessu máli.

Ég vil þá líka greina frá því, að þessi hugsun á víða stuðning, og þessi barátta er háð á fleiri sviðum, því að á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands 1970, sem haldinn var á Akureyri, var gerð ályktun, sem gekk í þá átt, að Skógræktarfélagið beitti sér fyrir því, að gerð yrði allsherjar skóggræðsluáætlun fyrir landið og þessi áætlun yrði gerð í samvinnu við Skógrækt ríkisins. Þessir aðilar beita sér nú fyrir gerð þessarar áætlunar, og hún er hluti, vissulega mikilvægur hluti af þessari heildarlandnýtingar— og landgræðsluáætlun, sem nú er verið að vinna að, og þar sem Skógræktarfélag Íslands hefur lengi verið í fararbroddi á þessu sviði, þá finnst mér rétt, að þess sé getið hérna, að það er þegar verið að vinna að þessari áætlun, og hún fellur vissulega inn í þetta heildarstarf.

Af því að hér í umr. á undan var vikið að landgræðslulögunum frá 1965, sem vissulega mörkuðu tímamót, viss tímamót í þessari baráttu, þar sem tekinn var inn nýr kafli varðandi gróðurvernd, þá get ég nú ekki stillt mig um að minnast á það, að kannske hefur ekki orðið eins mikill árangur af setningu þeirrar löggjafar og efni hefðu getað staðið til, þar sem gróðurverndarkaflinn hefur ekki reynzt eins virkur, vegna þess að löggjafinn þá hafði nú ekki meira víðsýni eða meiri stórhug í þessum málum en svo, að ekki fékkst inn í þau lög, að gróðurverndarnefndir, sem þá voru settar í hverju héraði, í hverri sýslu, yrðu launaðar. Nú í starfi þeirrar nefndar, sem um þetta mál fjallar, landnýtingar— og landgræðslunefndar, hefur það að vísu komið í ljós, að þessar gróðurverndarnefndir hafa sums staðar unnið ágæt verk, en þetta, að ekki var heimilt að greiða þeim laun fyrir sína vinnu, hefur vissulega orðið til þess, að þær hafa ekki starfað sem skyldi. En það er eitt, sem er öruggt í þessum málum, og það er það, að þau verður að vinna heiman frá í héruðunum. Þetta er bæði ákaflega stórt hagrænt atriði fyrir bændur landsins og þá, sem lifa við landið og lifa af landinu, en það er líka stórt félagslegt atriði, og allar aðgerðir eins og gróðurvernd og annað slíkt verður að byggja á félagslegum grundvelli og í takt við búskapinn og lífið í landinu. Það á ekki að gera það með boðum og bönnum. heldur með jákvæðum aðgerðum, og til þess að það megi verða, þá eru gróðurverndarnefndirnar alveg grundvallaratriði. Það hefur komið í ljós, að sums staðar hafa þær unnið hreint áhugamannastarf, því að þær hafa ekki fengið greitt fyrir störf sín, þar sem ekki er heimild til að greiða þeim fyrir þau.

Nefnd sú, sem minnzt hefur verið hér á, hefur gert sér þetta ljóst. Hún hefur sem sagt snúið sér heim í héruðin og mun vinna þessa áætlun ákaflega mikið í samvinnu við heimamenn. Með þessum orðum er þó engan veginn verið að kasta rýrð á þann mikla áhuga, sem hefur komið fram hjá öllum landsmönnum, bæjarmönnum jafnt og þeim, sem búa úti um landið og sjómönnum jafnt eins og bændum, á þessu mikla máli, sem vissulega er mál allra landsmanna. Og þá vil ég aðeins geta þess, að þetta mál er auðvitað margþætt og er ákaflega stórt, því að það varðar það í raun og veru, hvernig við ætlum að haga því, sem við getum kallað sambúðina við landið, hvernig Íslendingar ætla að fara með Ísland og nota það í framtíðinni, en það er annar hluti þessarar stóru áætlunar, sem er landnýtingaráætlunin, og hún snertir náttúrlega svo beint alla landsmenn. Það þarf að haga henni þannig, að óskum sem allra flestra sé þar fullnægt, svo að við fáum út úr þessu það land, sem við getum verið ánægðir með að skila til eftirkomenda okkar. Og það hygg ég, að þessar umr. hafi þó sýnt. Hér eru allir sammála um það, að hér þarf að taka á, og þess vegna vonast ég t.d. til þess, að þm. verði nú áfram minnugir þessa við gerð næstu fjárlaga, og ég er viss um það, að þetta getur sem sagt orðið hrein þjóðarvakning og á þessum tímamótum verði öll þjóðin sameinuð um það að skila til eftirkomendanna því landi, sem veitir fólkinu mesta ánægju og velferð í framtíðinni.