03.02.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í D-deild Alþingistíðinda. (3957)
84. mál, landgræðsla og gróðurvernd
Jónas Jónsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins geta þess, þar sem ég er nú einn nefndarmaður og hef þann heiður að vera ritari í margumræddri nefnd, að það er alls ekki afhættis enn þá með það, að nefndin hafi samráð og samband við flm. þessarar ágætu till., en nefndin þarf, eins og ég hygg, að hafi komið hér fram áður, að hafa samband og samráð við ákaflega marga aðila, ekki aðeins í þinginu og hér í höfuðstaðnum, heldur einnig ákaflega marga aðila í kringum allt land, og næsta verkefni nefndarinnar verður að fara að ferðast um landið. Hún er búin að hafa samráð við þau samtök og þá embættismenn, sem málið er skyldast, og eyddi í það meira en hálfum mánuði. (Gripið fram í.) Já, já, vel kann það að vera, og vel væri það, ef sú nefnd gerði betur. Það er munur á mannsliðinu, og vonandi verður þetta. En þó að ég þurfi nú ekki að fara að svara fyrir gerðir þess ráðh., sem nefndina skipaði hér, þá vil ég benda á, að það er alltaf hægt að hafa beint samband við menn og persónulegt samband er ágætt, og eins hlýtur að vera möguleiki fyrir stuðningsmann eða stuðningsþingmann stjórnarinnar að hafa samband við þann ráðh., sem með málið fer, ef hann hefur sérstakann áhuga á því, að ákveðinn hluti í stjórnarsáttmálanum nái fljótt og vel fram að ganga.