16.11.1971
Sameinað þing: 14. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í D-deild Alþingistíðinda. (3975)

32. mál, námskostnaður og styrkir til að jafna námsaðstöðu æskufólks í strjálbýli

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr., en mér finnst eins og þegar hafi komið dálítið fram í þeim, að það sé nánast fyrirmunað ungum og nýjum þm. að brydda hér á málum, vegna þess að þau séu ýmist á loforðalista ríkisstj., sem hún setti saman, er hún var mynduð, eða í öðru lagi, að þeir séu málum svo ókunnugir, að þeir megi ekki flytja slík mál, það sé nánast óviðurkvæmilegt, ótímabært, svo að ekki sé meira sagt.

Nú skal ég fyrstur manna viðurkenna það, að unglingar og börn í sveitum eiga við erfiðust kjör að búa í þeim efnum. sem till. þessi fjallar um. En þeim orðum vildi ég mjög gjarnan beina til hæstv. menntmrh., að hann léti þá einnig fara fram könnun á hag þeirra foreldra, sem börn eiga í þéttbýli, en þurfa að senda til náms í strjálbýli, og það gæti orðið útkoma, sem kynni að gera hag þessa fólks ekki ólíkan þeim í mörgum tilfellum. sem í strjálbýli búa. Það er vitað mál, að fjöldi unglinga verður að gjalda þess, að foreldrar þeirra hafa ekki þær tekjur, að þeir geti leitt þá til náms. Og það ástand ríkti hér um tíma vegna t.d. húsaskorts í menntaskólum, að menn urðu að flýja í menntaskóla úti á landi, ef þeir vildu veita börnum sínum brautargengi í þessum efnum. Þessu vildi ég mjög gjarnan koma að, um leið og ég lýsi eindregnum stuðningi mínum við till. hv. þm. og tel, að þeir hafi vissulega enn einu sinni vakið máls á góðu málefni, en það þýðir ekki, að það hafi ekki verið gert hér áður. Og ég vil beina því til ungra og nýrra þm. hér á þingi að vera alls ófeimnir við að láta til sín heyra um þau vandamál, því að ég trúi því ekki, að loforðalisti hæstv. ríkisstj. hafi verið saminn til þess að varna mönnum máls eða varna mönnum þess hér á þingi, að þeir mættu flytja mál, þó að þeirra væri með loðnum hætti getið á þessum margnefnda loforðalista. Og sízt af öllu kann ég við það, að þeir, sem lengur hafa setið á þingi, séu hálfgert að snupra yngri þm. fyrir að brydda á slíkum málum. Ég tel það Alþ. ósæmilegt.