06.12.1971
Neðri deild: 22. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 486 í D-deild Alþingistíðinda. (3993)
109. mál, leigugjald fyrir íbúðir
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Að sjálfsögðu hef ég ekkert á móti því, að fram fari sú könnun, sem um ræðir í þáltill., tel það raunar æskilegt og vafalaust nauðsynlegt að vita, hvernig mál eru þar í reynd. Hinu er ekki að leyna, að þessi mál verður að skoða út frá réttargrundvelli húseigenda, sem hafa sinn rétt verndaðan samkv. stjórnarskránni. En jafnframt má í þessu tilfelli svo sannarlega fara fram gæzla á því, að ekki sé farið út yfir þann rétt. Og það er vissulega gildur þáttur félagsmála að gæta þess.
Út af fsp. hv. þm. um það, hvort verðstöðvun hafi átt að ná til leiguhúsnæðis og hvort fyrrv. eða núv. ríkisstj. hafi framfylgt því, að húsnæði lyti verðstöðvunarlögunum, þá þyrfti að fara fram könnun á því, til þess að hægt væri að svara því og ég er ekki við því búinn að svara því nú, en get gefið hv. þm. upplýsingar um það undir eins og sú könnun hefur farið fram.