30.11.1971
Sameinað þing: 18. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í D-deild Alþingistíðinda. (4026)
53. mál, íslenskt sendiráð í Kanada
Flm. (Stefán Gunnlaugsson):
Herra forseti. Efni þeirrar till. til þál., sem hér er til umr. er, að Alþ. skori á ríkisstj. að staðsetja nú þegar íslenzkt sendiráð í Kanada.
Um það hefur verið rætt á opinberum vettvangi, að tímabært sé orðið að taka til endurskoðunar staðsetningu íslenzkra sendiráða á erlendri grund. Í stefnuyfirlýsingu núv. ríkisstj. er gert ráð fyrir, að utanríkisþjónustan verði endurskipulögð og staðsetning sendiráða endurskoðuð. Í fljótu bragði kann hv. alþm. að finnast, að eðlilegt sé, að sú hugmynd, sem í till. felst, komi til athugunar við þá endurskoðun. En það er nú svo með þá loforðalista, sem ríkisstjórnir gefa út, þegar þær koma til valda, að þeir bera fyrst og fremst vitni um góðan ásetning. Reynslan af efndum á slíkum loforðum hjá þeim ríkisstj., sem ósparastar hafa verið á þess háttar yfirlýsingar á liðnum áratugum hér á landi, er nefnilega sú að mínum dómi, að öruggast sé að taka slíka óskalista með hæfilegri varúð og vera við því búinn, að bið geti orðið á ýmsu því, sem þar stendur skrifað, svo að ekki sé meira sagt. Mér sýnist örlætið í fyrirheitum um hvers konar aðgerðir og framkvæmdir í stefnuyfirlýsingu núv. hæstv. ríkisstj. vera á þann veg, að tryggilegast sé að gera ráð fyrir, að dráttur geti orðið á ýmsu, sem þar er fyrirhugað að gera, án þess að ég vilji vera með nokkrar hrakspár í því efni. Svo mikið er víst, að það hefur ekki tekið hæstv. utanrrh. langan tíma að afgreiða þá hugmynd, sem felst í þessari þáltill. um sendiráð Íslands í Kanada og hér kemur til umr., án þess að hafa heyrt gerða grein fyrir málinu í framsögu hér á hinu háa Alþingi, en neikvæð afstaða hans til þess kom fram í umr. hér á þessum vettvangi fyrir skömmu. Afgreiðsla þess í huga hæstv. utanrrh. hefur ekki þurft mikillar umhugsunar eða athugunar við. Sýnir þetta e.t.v. betur en margt annað, hversu mikil alvara og áhugi eða hitt þó heldur hefur legið að baki fjálglegu tali og skrifum framsóknarmanna í stjórnarandstöðu um nauðsyn þess að endurskipuleggja utanríkisþjónustuna með það fyrir augum að gera hana virkari og öflugri í þágu útflutningsatvinnuveganna. Því að það eru einkum vissir sameiginlegir hagsmunir Íslands og Kanada, sem tengdir eru fiskveiðum og sölu sjávarafurða, sem valda því, að mikilvægt er að staðsetja nú þegar sendiráð Íslands í Kanada, að áliti flm. þessarar till., svo sem nánari grein verður gerð fyrir hér á eftir. Það mál getur ekki beðið þeirrar endurskoðunar, sem ríkisstj. segist ætla að láta gera og óhjákvæmilega tekur sinn tíma, ef hún verður þá framkvæmd.
Af og til hefur verið vakin athygli á utanríkisþjónustunni á opinberum vettvangi í sambandi við ýmiss konar bollaleggingar um sparnað í ríkisrekstri. Munu slíkar umr. hafa átt sér stað hér á hinu háa Alþingi. Jafnframt slíkum sparnaðarhugmyndum hafa komið fram kröfur á hendur utanríkisþjónustunni um stóraukið starf og vinnu að viðskiptamálum í íslenzkum sendiráðum. Ég vil taka fram í þessu sambandi, að mér hefur virzt á umr. og blaðaskrifum um þessi mál, að fjölmargir geri sér alls ekki grein fyrir því, hversu ákaflega umfangsmikil störf utanríkisþjónustunnar eru. En þetta stafar nú sjálfsagt fyrst og fremst af ókunnugleika. En með hliðsjón af þeim sparnaðaranda. sem ríkt hefur í hugum manna gagnvart utanríkisþjónustunni og því viðhorfi hjá sumum, að nær væri að fækka sendiráðum en fjölga þeim, er tekið fram í grg. með till., að ekki beri að skoða hana sem áskorun til ríkisstj. um fjölgun sendiráða. Þeir sem eru andvígir fjölgun íslenzkra sendiráða af sparnaðarástæðum, geta því ekki verið andstæðir þessari till. á þeim grundvelli. Auk þess eru þau rök, sem liggja að baki þessu máli, á þann veg, að forsvaranlegt er að færa til staðsetningu eins af sendiráðum okkar, þannig að það hafi aðsetur í Kanada.
Áður en ég kem að því að gera grein fyrir þeim röksemdum. sem liggja til grundvallar mikilvægi þess að staðsetja íslenzkt sendiráð í Kanada nú þegar, skal með örfáum orðum drepið á, hvernig staðsetningu íslenzkra sendiráða er nú háttað. Þau eru nú 11 talsins og eru í Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmi, Washington, London, Bonn, París, Moskvu, Brüssel, New York og Genf, en í tveimur hinum síðast nefndu borgum er um að næða fastar sendinefndir Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og Fríverzlunar samtökum Evrópu. Samtals mun Ísland nú hafa stjórnmálasamband við 42 ríki og margar alþjóðastofnanir. Sendiherrarnir annast því stjórnmálasamband við fleiri ríki, en það land, sem þeir eru búsettir í. Þannig er sendiherra Íslands í Bandaríkjunum með búsetu í Washington jafnframt sendiherra Íslands í Kanada og sendiherra Kanada á Íslandi staðsettur í Noregi, en þar er hann jafnframt sendiherra lands síns. Ísland hefur verið í stjórnmálasambandi við Kanada frá því árið 1947, og hefur það ávallt heyrt undir sendiráðið í Washington, þar sem ekki hefur verið talið unnt að hafa sérstakt sendiráð í Kanada.
Í Kanada er talið að séu a.m.k. 40 þús. einstaklingar af íslenzku bergi brotnir. Eru þetta að mestu leyti afkomendur um 7 þús. manna, er fluttust af Íslandi árið 1874 og næstu árin á eftir, en þá var fólksfjöldi hér á landi talinn um 80 þús. Tildrög þessara miklu mannflutninga munu hafa verið þau, að landstjóri Kanada á árunum 1872—1878 að nafni Dufferin lávarður lagði til við Kanadastjórn, að hún sendi fulltrúa sína til Íslands í því skyni að hvetja menn til vesturferða, en lávarðurinn hafði alllöngu áður en þetta gerðist gist Ísland og eignazt þar fjölda vina og orðið kunnugur sögu landsins og bókmenntum. Fögur fyrirheit sendimanna Kanadastjórnar um frjálsræði og ónotuð tækifæri í Kanada fengu góðan hljómgrunn hjá mörgum hér á landi á þeim árum, sem ekki var óeðlilegt, eins og högum þjóðarinnar hafði þá verið háttað allt frá því um miðbik 19. aldar a.m.k. og fram til þess tíma, sem hér um ræðir. Miklir erfiðleikar höfðu steðjað að íslenzkri þjóð á þessu tímabili, einkum þeim, sem byggðu norðanvert landið. Hafís hafði verið landfastur jafnvel um hásumarið og hamlað fiskveiðum. Óvenjulega kaldviðrasöm tíð og oft ákaflega rýr grasspretta olli því, að fénaður féll unnvörpum. bæði af völdum fóðurskorts og sjúkleika. Eldgos höfðu einnig þjarmað að þjóðinni og öskufall lagt byggðir í auðn. Þá var verzlunin í landinu að miklu leyti í höndum danskra með þeim óheilla afleiðingum. sem því voru samfara. Það var því ekki að undra, þótt margir yrðu til þess að ljá eyra gylliboðum fulltrúa Kanadastjórnar og flytjast vestur um haf.
En hvers konar fólk skyldi það hafa verið, sem yfirgaf ættjörð sina til búsetu í Kanada á þessum árum, kynnu einhverjir að spyrja. Nokkrar vísbendingar er hægt að fá um það m.a. af eftirfarandi orðum Dufferins lávarðar í ræðu, sem hann hélt í Gimli, höfuðborg nýlendunnar Nýja Ísland við Winnipegvatn, 14. sept. 1877. Honum fórust þá svo orð m.a. með leyfi hæstv. forseta:
„Enginn þjóðflokkur verðskuldar fremur búsetu vor á meðal en þér, því að það er e.t.v. harðfengi íslenzkra sjógarpa að þakka, að þetta meginland var uppgötvað.“ Og enn fremur sagði Dufferin lávarður: „Ég hef hvergi þar komið hér í nýlendunni, ekki í eitt einasta hús eða einn einasta kofa, að ekki blasti við augum 20 eða 30 binda bókasafn, enda þótt veggskrauti væri ekki til að dreifa og húsbúnaður í fátæklegra lagi. Mér hefur og verið tjáð, að naumast sé það barn til yðar á meðal, að ekki sé bæði læst og skrifandi.“ Á öðrum stað í þessari ræðu hafði landstjórinn einnig sagt: „Ég treysti því, að þér munið ætíð meta og virða hinar ágætu bókmenntir yðar og að mann fram af manni muni þeir hinir yngri í yðar hópi halda áfram að sækja þangað djörfung og dug og styrkja þannig þann eiginleika sinn, sem ég vildi nefna þrákelknislega þrautseigju, en sá eiginleiki hefur einmitt verið höfuðeinkenni hins ættgöfuga íslenzka kynstofns.“
Af því, sem hér hefur verið haft eftir landstjóra Kanada um Íslendinga og íslenzka landnema í Kanada, má segja, að ekki þurfi að koma á óvart, þótt þessir landnemar og afkomendur þeirra hafi látið sig miklu skipta viðhald íslenzkrar tungu, sögu landsins og bókmenntir, svo og efling gagnkvæms skilnings og samvinnu milli Íslendinga austan hafs og vestan. Ég mun ekki rekja hér margháttað starf, sem kanadískir Vestur-Íslendingar hafa unnið í þágu Íslands í heimalandi sínu á liðnum árum. Í því efni er af miklu að taka. Mætti í því sambandi benda á starfsemi Þjóðræknisfélagsins, sem stofnað var árið 1919, Íslenzka-kanadiska félagið, útgáfustarfsemi þess, en það var stofnað á fjórða tug þessarar aldar, blaða útgáfu Vestur-Íslendinga á liðnum árum og menningarfélagið „Canada-Iceland Foundation“, svo að nokkuð sé nefnt. Ég skal heldur ekki ræða hér, hvað gert hefur verið af hálfu Íslendinga hérna megin hafsins til að viðhalda og efla tengslin við þjóðbræður og —systur í Kanada, né leggja dóm á, hvernig að því hefur verið staðið, en vil hvetja til þess, að enn meira verði gert af okkar hálfu, Íslendinga austan hafs, til þess að treysta þau bönd menningar, vináttu, skilnings og bræðraþels, sem tengja okkur Kanadamönnum af íslenzkum ættum. Staðsetning íslenzks sendiráðs í Kanada væri ákaflega mikilvægur þáttur í slíkri viðleitni af Íslands hálfu og mundi vafalaust mikils metinn af Vestur-Íslendingum. Og þó ekki væru önnur veigamikil rök fyrir staðsetningu sendiráðs á vegum Íslands í Kanada en gildi þess að efla samskiptin við Vestur-Íslendinga í Kanada, þá væri það út af fyrir sig fullnægjandi til þess, að mjög réttlætanlegt og eðlilegt væri að setja niður slíka starfsemi þar í landi sem hér um ræðir og ekki ætti að telja eftir þá fjármuni, sem í það færu. En það eru einnig fleiri gild rök, sem liggja að baki þeirri till., sem hér er til umr., og mun ég nú víkja að þeim örfáum orðum.
Ég hygg, að á liðnum árum hafi Kanadastjórn reynzt að ýmsu leyti einn öflugasti talsmaður þeirra sjónarmiða, sem Íslendingar hafa barizt fyrir í sambandi við ráðstafanir gegn ofveiði og rányrkju á fiskimiðum og útfærslu fiskveiðilandhelgi. Má segja, að Kanadamenn og Íslendingar hafi að ýmsu leyti staðið saman í þeim málum á erlendum vettvangi. Það er mikilvægt fyrir Íslendinga að styrkja þá samstöðu, sem í þessum efnum hefur verið á milli Íslendinga og Kanadamanna, og ekki hvað sízt er þetta knýjandi um þessar mundir og á næstu mánuðum, þegar Ísland stendur á örlagaríkum tímamótum í baráttu sinni fyrir verndun fiskistofna og útfærslu fiskveiðilandhelgi. Öflug liðveizla Kanadamanna við málstað Íslendinga á komandi mánuðum gæti haft talsvert að segja um það, hvernig um þessi mál fer. Af þessum ástæðum fyrst og fremst legg ég áherzlu á, að ekki dragist, að íslenzkt sendiráð verði staðsett í Kanada. Eitt meginhlutverk þess á næstu mánuðum yrði væntanlega, ef til kæmi, að skýra sjónarmið Íslendinga í landhelgismálum og afla stuðnings við málstað okkar á því sviði svo sem frekast væri kostur. Á það hefur verið lögð áherzla í umr. um þau mál hér á hinu háa Alþingi, að okkur beri að vinna með þeim þjóðum, sem stefndu að stækkun landhelgi eða hefðu fært landhelgi sína út og miðað að þeirri þróun í þjóðarétti, sem styddi málstað okkar. En þjóðarétturinn er fyrst og fremst skapaður af hinum eldri og voldugri þjóðum. Eitt þeirra ríkja, sem gæti orðið okkur einn öflugasti bandamaðurinn að þessu leyti, er einmitt Kanada.
En á fleiri sviðum hafa Íslendingar og Kanadamenn haft gott samstarf, sem báðum hefur orðið til ávinnings. Í því sambandi skal bent á samskipti, sem Kanadamenn höfðu frumkvæði að og snerti markaði fyrir helztu útflutningsvöru okkar, freðfiskinn. Að þeim eiga einnig aðild Norðmenn og Danir, en þau byggja á upplýsinga skiptum og öðru, sem að gagni má koma til að stuðla að traustum og öruggum freðfiskmarkaði. Aðdragandi þessara samskipta var sá, að Kanadastjórn gerði ráðstafanir til að rétta við hag freðfiskiðnaðarins þar í landi, sem var illa á vegi staddur eftir verðfall á Bandaríkjamarkaði á árunum 1967 og 1968. Til þess að reyna að fyrirbyggja slík skakkaföll í framtíðinni, ákvað Kanadaþing að leggja fram talsvert fjármagn úr ríkissjóði, sem nota skyldi, ef á þyrfti að halda, til uppkaupa af birgðum af kanadiskum freðfiski, þegar útlit væri fyrir tímabundið offramboð á mörkuðunum. sem kynni að geta valdið verðfalli. Slíkar birgðir yrðu svo settar á sölumarkað síðar, þegar framboð væri minna. Hefur þetta fyrirkomulag Kanadamanna reynzt með miklum ágætum og alveg vafalaust stuðlað að styrkari og traustari freðfiskmarkaði. Ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að það sé skoðun þeirra, sem til þekkja og hafa með höndum sölu á freðfiskafurðum á vegum Kanadamanna, Íslendinga, Norðmanna og Dana, að samskipti þessara aðila um sölumál freðfisks hafi orðið til mikils gagns, svo að ekki sé meira sagt, þó að ekki megi að sjálfsögðu gleyma því, að hér er um að ræða keppinauta á freðfiskmörkuðunum.
Til skamms tíma hafa Íslendingar verið mikils ráðandi á Norður-Evrópu mörkuðunum fyrir saltsíld, grásleppuhrogn og þorskhrogn. Það er staðreynd, sem ekki er unnt að líta fram hjá og útflytjendur hafa gefið gaum, að Kanadamenn reyna nú að koma sér fyrir á þessum mörkuðum. Söltuð grásleppuhrogn eru nú seld í samkeppni við íslenzk í Þýzkalandi og Danmörku, en svo var ekki til skamms tíma. Þá hófu Svíar kaup á saltsíld frá Kanada árið 1969 og hafa verið að athuga um kaup á sykursöltuðum þorskhrognum undanfarið þaðan. Þá skal einnig vakin athygli á því, að Kanadamenn eru í vaxandi mæli að reyna að hasla sér völl á rækjumörkuðum Evrópu í samkeppni við íslenzka rækju. Hugsanlegt er, að í náinni framtíð geti Íslendingar átt að mæta samkeppni Kanadamanna einnig á saltfiskmörkuðum, en svo hefur ekki verið til þessa.
Í framhaldi af því, sem ég hef hér sagt um samkeppni við Kanadamenn á fiskmörkuðum og samskipti við þá á því sviði, vil ég undirstrika, að það er afar mikilvægt og gagnlegt að hafa sem allra bezt og vinsamlegust samskipti við þær þjóðir, sem átt er í samkeppni við á sviði verzlunar viðskipta. Íslenzkt sendiráð í Kanada gæti unnið ómetanlegt starf í þessum efnum, ef rétt er á málum haldið. Það ætti þar að fylgjast náið með öllu, er snerti fiskveiðar, vinnslu sjávarafurða, með söluverði, kjörum og samningum, sölumálum og öðrum atriðum, sem að gagni mættu koma til samanburðar á Íslandi og til upplýsinga fyrir íslenzka sölumenn hérlendis og erlendis. Þá gæti skipulagt og öflugt starf sendiráðs í Kanada orðið að góðu liði til frekari markaðsöflunar fyrir íslenzkar iðnaðarvörur í Kanada, en þar hefur opnazt slíkur markaður fyrir skömmu.
Að lokum vildi ég benda á, að sendiráð Íslands í Bandaríkjunum sinnir nú stjórnmálasambandi við þau ríki, sem Ísland hefur haft slíkt samband við í SuðurAmeríku, með einni undantekningu, en þessi lönd munu nú vera átta talsins. Það verður alveg vafalaust í auknum mæli að leggja áherzlu á að efla góð samskipti við þjóðir Suður-Ameríku með viðskipta— og fiskveiðihagsmuni fyrir augum á komandi tímum. Ef íslenzkt sendiráð yrði staðsett í Kanada, lægi beint við, að það sinnti stjórnmálasambandi við Suður-Ameríkuríki ásamt sendiráðinu í Washington, enda væri það í alla staði eðlilegur hlutur, m.a. með hliðsjón af því, að sendiráð í Kanada mundi væntanlega, ef til kæmi, hafa að meginverkefni fyrsta kastið a.m.k. að sinna fiskimálum og verkefnum þeim skyldum, en þar er landhelgismálið að sjálfsögðu efst á blaði, eins og sakir standa. Það eru einmitt þau málefnin, sem mest kalla að í samskiptum við Suður-Ameríkuríkin á næstu árum. ef að líkum lætur.
Herra forseti. Ég hef farið nokkrum orðum um þær röksemdir, sem liggja til grundvallar þeirri till., sem hér er til umr., en þær byggjast einkum á þremur meginatriðum, sem eru:
1. Mikilvægi þess að efla tengslin við kanadíska Vestur-Íslendinga.
2. Aðkallandi þörf fyrir aukin samskipti við Kanadamenn á sviði landhelgis— og viðskiptamála.
3. Nauðsyn þess að efla góð samskipti við þjóðir Suður-Ameríku með viðskipta— og fiskveiðihagsmuni fyrir augum. Slík verkefni væri heppilegt að sendiráð Íslands, staðsett í Kanada, hefði með höndum ásamt sendiráði okkar í Washington.
Ég leyfi mér að svo mæltu að leggja til, að umr. um till. verði frestað og henni vísað til utanrmn.