02.11.1971
Sameinað þing: 9. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í D-deild Alþingistíðinda. (4057)

30. mál, stóriðja

Flm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að fylgja úr hlaði með nokkrum orðum till. þessari til þál. um stóriðju á Íslandi á þskj. 30, sem nú er til umr. Fyrst í stað vil ég víkja almennum orðum að eðli og tilgangi stóriðju í landinu.

Það er ekki nýtt af nálinni, að Íslendingar tengi framtíðarvonir við stóriðju í tengslum við stórvirkjanir í fallvötnum landsins. Hugtakið stóriðja er í sjálfu sér nokkuð óljóst. Við getum talað um stóriðju í iðjuverum okkar, sem hafa svo mikla framleiðslugetu, að geta allt að því fullnægt okkar eigin innlenda markaði, eins og Áburðarverksmiðjan og Sementsverksmiðja ríkisins gera. Fiskiðnaður okkar Íslendinga hefur verið og er í vaxandi mæli stóriðja miðað við hin miklu framleiðsluverðmæti, sem þaðan streyma í þjóðarbúið. Sú tegund stóriðju, sem þessi þáltill. tekur til, er öðru fremur bundin við orkufrekan iðnað í tengslum við stórvirkjanir í fallvötnum landsins eða aukna hagnýtingu jarðvarmaorku til vaxandi iðnþróunar, eins og fram kemur í 1. tölulið tillögunnar.

Hinn 5. maí 1961 skipaði þáv. iðnrh., Bjarni Benediktsson, stóriðjunefnd til athugunar á vegum ríkisstj. á því, hvort unnt væri og hagstætt að koma upp hér á landi álvinnslu eða öðrum orkufrekum iðnaði, er byggði á hinni miklu ónotuðu vatnsorku landsins. Athuganir fóru jafnframt fram á vegum raforkumálaskrifstofunnar, sem svarar til Orkustofnunar nú. Á þessum árum höfðu farið fram hagfræðilegar athuganir á hugsanlegri þróun atvinnu— og efnahagsmála næstu ára. Þóttu þær benda til þess, að ef efnahagsþróun hér á landi ætti að geta haldið í horfinu við ráðgerða efnahagsþróun í iðnþróuðum þjóðfélögum Evrópu, væri vísast fyrir okkur að freista þess að renna fleiri stoðum undir einhæft atvinnulíf. Yrði það í senn til þess að draga úr áhættu af okkar sveiflukennda atvinnulífi, einkum sjávarútvegi, og skapa um leið grundvöll aukinnar þjóðarframleiðslu með stóraukinni hagnýtingu auðlinda landsins í tengslum við nýjan efnaiðnað í landinu í stórum stíl. Mætti slíkt einnig leiða til vaxandi almennrar iðnþróunar, sem líklegust væri til þess að skapa meira atvinnuöryggi þeim mörgu, sem vænta mætti, að bætast mundu við á vinnumarkað þjóðarinnar, sem væri í örum vexti. Stefnumótun fyrrv. ríkisstj. í samræmi við framangreind sjónarmið var áréttuð af mér við ýmis tækifæri, eftir að ég hafði tekið við meðferð iðnaðarmála í ríkisstj. og m.a. á fundi í Félagi ísl. iðnrekenda þann 5. febr. 1966, en þá sagði ég eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Stefnt er að virkjun stórfljóta landsins, byggingu stórra orkuvera, sem verði grundvöllur og orkugjafi fjölþættrar iðnvæðingar í landinu. Orkuver landsins séu eign Íslendinga, en til þess að virkja megi í stórum stíl og undir lántökum verði risið á sem hagkvæmasta hátt, er tryggi ódýrari raforku, og til þess að styrkari stoðum sé rennt undir atvinnulíf landsmanna, verði erlendu fjármagni veitt aðild að stóriðju, ef hagkvæmt þykir samkv. mati hverju sinni og landsmenn brestur fjárhagslegt bolmagn eða aðstöðu til framkvæmda.“

Eftir að störfum stóriðjunefndar miðaði áfram þótti einsýnt, að Alþ. ætti að geta fylgzt náið með framvindu mála. Hinn 14. nóv. 1964 skilaði stóriðjunefnd ítarlegri skýrslu til ríkisstj. um álverksmiðju og stórvirkjun, en þar eru störf nefndarinnar og gangur viðræðna við erlend álfyrirtæki rakin fram til þess tíma. Skýrslu þessari fylgdu allmörg fskj., er einkum fjölluðu um raforkumál og stórvirkjanir. Skýrsla þessi ásamt fskj. var afhent öllum alþm. sem trúnaðarmál skömmu síðar. Einnig var þm. afhent framhaldsskýrsla stóriðjunefndar um málið, dags. 6. febr. 1965. Loks var útbýtt á Alþ. þann 5. maí 1965 skýrslu ríkisstj. til Alþ. um athugun á byggingu álverksmiðju á Íslandi. Fóru síðan fram umr. um þá skýrslu á Alþ. Þá er einnig þess að minnast, að skipuð var þingmannanefnd til þess að fylgjast með framvindu mála. Í þessari nefnd áttu sæti tveir fulltrúar allra þingflokka. Þingmannanefndin hóf starfsemi sína í byrjun febr. 1965, en frá ársbyrjun 1965 má segja, að byrjað hafi undirbúningur þess að semja uppköst að samningi milli ríkisstj. og Swiss Aluminium ásamt fylgisamningum, rafmagnssamningi, hafnar— og lóðarsamningi og fleiri samningum og fskj.

Þessi þingmannanefnd hélt 26 fundi. Hún hafði á hverjum tíma aðgang að öllum gögnum málsins, bæði varðandi orkumál og álbræðslu. Hún kynnti sér eðli og rekstur álbræðslu, bæði í Noregi og Sviss. Sömuleiðis gat hún kynnt sér uppbyggingu og starfsemi hins svissneska álfyrirtækis. Hún yfirfór öll samningsuppköst aðalsamningsins, og henni var kynnt efni fylgisamninga. Hún starfaði eins og hver önnur þingnefnd að undirbúningi málsins án hliðsjónar af afstöðu þm. í grundvallaratriðum til þess, hvort þeir teldu æskilegt, að samningar um álbræðslu í tengslum við stórvirkjun við Búrfell næðu fram að ganga eða ekki. Nefnd sérfræðinga var til aðstoðar við samningagerðina.

Ég hef nú rifjað upp fyrri þætti stóriðjumála til þess m.a. að réttlæta í ljósi reynslunnar þann tillöguflutning um stóriðju á Íslandi, sem nú er á dagskrá. Sú stefna hefur verið mörkuð og er mér vitanlega ekki umdeild, að Alþ. hafi jafnan úrslitaráð í þessum mikilvægu málum. Þess vegna er talið tímabært, sbr. grg. fyrir till., að Alþ. setji á laggirnar stóriðjunefnd til þess bæði að fylgjast með framvindu mála og eiga frumkvæði að tillögugerð á Alþ., þegar þess er talin þörf. Með þessum hætti skapast náin tengsl við Alþ. um framvindu iðnþróunarmála í landinu.

Freistandi er að víkja nokkrum orðum nánar að þjóðhagslegu gildi stóriðju í samanburði við annan atvinnurekstur, ef það kynni að styrkja rökin fyrir nauðsyn sérstakrar stóriðjunefndar, eins og hér er lagt til, að Alþ. kjósi. Álfélagið ÍSAL greiddi til innlendra aðila eftirfarandi árið 1970: Framleiðslugjald 54.5 millj. kr., raforkukostnað 160.6 millj., vexti og afborganir 21.1 millj., launagreiðslur 180 millj. og ýmsar greiðslur 50 millj., eða samtals 466.2 millj. kr. Útflutningur (fob) var um 1.708 millj. kr. Hreinar gjaldeyristekjur geta því talizt um 460 millj. kr. og nema því um 27% af útflutningi. Á hinn bóginn er áætlað, að heildargreiðslur ÍSALS til innlendra aðila muni nema á ári, þegar verksmiðjan er fullgerð, en það er á árinu 1972, á 9. hundrað millj. kr., nánar tiltekið líklega um 812 millj. á verðlagi ársins 1970.

Í fiskiðnaðinum eru frystihúsin gullæð okkar Íslendinga, þegar vel gengur. Meðaltal 71 frystihúss árið 1970 er talið um 64.5 millj. kr. í framleiðsluverðmæti. Lauslega áætlað fer um 35% af framleiðslu verðmætinu til greiðslu á erlendum kostnaði í framleiðslukeðjunni. Hrein gjaldeyrisöflun er því u.þ.b. 42 millj. kr. á frystihús. Í samanburði við álið árið 1970 þyrfti því 11 frystihús til þess að afla sama gjaldeyris nettó, en meira en 20 meðalfrystihús miðað við framleiðslu álbræðslunnar á næsta ári, þegar hún nær fullum afköstum.

Sé gjaldeyrisöflunin íhuguð miðað við fjárfesta krónu annars vegar í álframleiðslu og hins vegar í sjávarútvegi, fæst einnig fróðlegur samanburður. Stofnkostnaður Búrfellsvirkjunar fullgerðrar er um 40 millj. dala, eða um 3.520 millj. kr. á núgildandi gengi. Miðað við fullnýtingu fara um 63% orkunnar til ÍSALS, en 37% til innanlandsnotkunar. 63% stofnkostnaðar, en það er okkar fjárfesting vegna álversins, er um 2.243 millj. kr. Nú þarf einnig að hafa í huga, að hefðum við þurft að byggja minni virkjanir í fleiri áföngum, mundi aukakostnaður til innanlandsnotkunar sennilega hafa orðið a.m.k. 40% meiri. Þessi þáttur samsvarar um 521 millj. kr., sem að réttu lagi ætti að dragast frá stofnkostnaði Búrfellsvirkjunar vegna orkunotkunar álversins, og er því fjárfesting okkar þess vegna eða vegna álversins um 1.722 millj. kr. Fyrir þessa fjárfestingu fáum við um 812 millj. kr. í nettógjaldeyristekjum á ári, þegar álverið í Straumsvík er fullgert. Hrein gjaldeyrisöflun á fjárfesta krónu af okkar hálfu vegna álbræðslunnar er því um 47% á ári, en stofnkostnaðurinn að sjálfsögðu í eitt skipti.

Sé sjávarútvegsdæmið tekið til samanburðar, lítur það í stórum dráttum þannig út: Stofnkostnaður um 20 frystihúsa, um 50 millj. kr. hvert, væri um 982 millj. kr. Til þess að fiska fyrir þessi frystihús þyrfti mjög varlega reiknað um 20 skuttogara, sem kosta mundu um 1.888 millj. kr. og stofnkostnaður 80—90 105 tonna báta, ef þeir ættu að afla frystihúsunum hráefnis, yrði enn meiri. Hrein gjaldeyrisöflun þessara frystihúsa og togara, sem að stofnkostnaði næmu sömu upphæð og stofnkostnaður álversins, yrði aðeins 28% af fjárfestingarupphæðinni á móti 47%, þegar áldæmið var reiknað. Þetta sýnir okkur, að hrein gjaldeyrisöflun á hverja fjárfesta krónu í álbræðslu með þeim hætti, sem af okkar hálfu var um samið, er allt að því 67% meiri en í sjávarútvegi, aðalatvinnuvegi okkar. Vissulega getur skakkað einhverju í slíkum útreikningi, en varlega held ég, að mætti áætla, að hrein gjaldeyrisöflun á fjárfesta krónu vegna álframleiðslunnar sé a.m.k. helmingi meiri, en í aðalatvinnuvegi okkar, togaraútgerð og frystihúsarekstri.

Stundum er rætt um Kísiliðjuna við Mývatn í sambandi við stóriðju, ekki vegna þess, að um svo mikið stórfyrirtæki sé að ræða, fremur vegna hins, að hér er um nýjan efnaiðnað að ræða í hlutafélagi með erlendu áhættufjármagni, en ríkið á þar meiri hluta hlutafjár. Kísiliðjan er vissulega athyglisvert iðnfyrirtæki, og jafnframt er rekið sérstakt sölufyrirtæki í tengslum við hana með aðsetri á Húsavík. Þessi fyrirtæki hafa haft margháttaða þýðingu fyrir héraðið, sérstaklega Mývatnssveit og Húsavík. Brúttó tekjur Kísiliðjunnar í erlendum gjaldeyri munu hafa numið um 150 millj. kr. árið 1970. Áætlað er, að hreinar gjaldeyristekjur séu um 100 millj. kr., en það svarar til tveggja til þriggja meðalstórra frystihúsa eða tveggja til fjögurra togara í hreinni gjaldeyrisöflun nú, þegar verðlag á sjávarafurðum er hins vegar í hámarki. Það er því sízt ástæða til þess að gera lítið úr gildi slíks iðjuvers, eins og stundum hefur verið gert. Þá má ekki gleyma því, að hrein gjaldeyrisöflun leiðir að jafnaði til aukinna þjóðartekna hjá okkur Íslendingum, sem nemur nálægt fjórfalt því, sem hinum auknu gjaldeyristekjum nemur. Hver ný iðnvæðing í landinu leiðir líka að jafnaði til örvunar í annarri iðnþróun, bæði beint og óbeint.

Rekstrarform stóriðjunnar getur að sjálfsögðu verið með mismunandi hætti. Slíkt er ákvörðunaratriði hverju sinni, sem Alþ. ætti úrslitaákvörðun um. Við gerð álsamninganna var það form valið, að við værum ekki eignaraðilar að álbræðslunni og rekstraráhættan þar af leiðandi öll á höndum svissneska álfélagsins. Okkar hagur liggur svo í umsömdu framleiðslugjaldi, sem fyrirtækið greiðir, í rafmagnssamningnum, sem lánsfé til Búrfellsvirkjunar og lægra rafmagnsverð til almennings grundvallast á, í höfninni í Straumsvík, sem fyrirtækið ber kostnaðinn af, í vinnulaunum til Íslendinga, bæði á byggingartíma og við rekstur, en við álbræðsluna vinna nær eingöngu Íslendingar. Að öðru leyti höfum við svo annan hag af beinum og óbeinum viðskiptum fjölmargra fyrirtækja og einstaklinga við ÍSAL, í málmiðnaði, rafmagnsiðnaði, skipaflutningum og mörgu fleira. Á þetta allt ber að líta í heild, þegar metnar eru samningagerðir og samskipti við ÍSAL.

Oft var deilt hér á Alþ. um ýmis atriði þessara samninga, og skal ég ekki fara að rifja það upp nú. Rafmagnsverðið þótti ekki nógu hátt, framleiðslugjaldið var talið of lágt o.s.frv. Rafmagnið er greitt í dollurum, og álverið er skuldbundið til þess að greiða rafmagnið, hvort sem það notar það eða ekki. Þetta er nú ástæðan til þess, að þegar offramleiðsla er á hrááli á heimsmarkaði og víða er dregið úr framleiðslu álbræðslna eða þeim lokað í bili, heldur stöðug framleiðsla áfram hér. En einmitt svissneska álfélagið hefur dregið úr álframleiðslu sumra af sínum álbræðslum annars staðar. Gjaldið á hvert framleitt tonn kemur því einnig til greiðslu, en það er, eins og kunnugt er, aðaltekjulind Atvinnujöfnunarsjóðs, sem gegnir því mikilvæga hlutverki að renna stoðum undir atvinnulifið um gjörvallt land með lánveitingum til kaupa atvinnutækja þar, fiskiskipa og annars, sem til uppbyggingar leiðir og jafnar aðstöðu fólksins í landinu. Það hefur verið áætlað, að tekjur Atvinnujöfnunarsjóðs frá álverinu yrðu strax á árinu 1973 100 millj. kr. af framleiðslugjaldinu og færi síðan ört hækkandi á næsta áratug og yrði um og yfir 200 millj. kr. árlega með núverandi gengi dollars. Við Íslendingar eigum ekki annan sjóð, sem byggir sig örar upp með árlegu eigin framlagi. Vitaskuld hefur svo Hafnarfirði verið álbræðslan og Straumsvikurhöfnin ómetanleg. Hafnarfjörður fær, eins og kunnugt er, fyrst í stað 25% framleiðslugjalds ÍSALS, en síðan 20%, og Straumsvíkurhöfn fær Hafnarfjörður í sinn hlut.

Á sínum tíma töldu, sumir hér í þinginu, að Norðmenn hefðu búið betur um viðskipti sín við Svisslendinga við byggingu og rekstur svipaðrar álbræðslu í Husnes í Noregi. Við vitum nú um skattgreiðslurnar í Noregi, eftir að rekstur hófst þar, og höfum nú samanhurð hér. Skattgreiðslur í Husnes voru árið 1969 um 765 kr. á hverja lest af framleiddu áli. Á tímabilinu frá 1. okt. 1969, en þá var rekstur ÍSALS að hefjast hér og til 31. des. 1970 greiddi ÍSAL 1.343 kr. á hverja framleidda lest af áli, sem er 75,5% hærra en í Noregi. Mér er tjáð, að skattgjald ÍSALS þetta ár sé um fimm sinnum hærra pr. tonn en skattar verksmiðjunnar í Noregi, því að árið 1970 munu skattgreiðslur í Noregi hafa orðið sáralitlar vegna óhagstæðs rekstrar. Þessi ár, 1969, 1970 og eins í ár, liggur fyrir, að þegar saman er talið skattgjald og greiðsla fyrir rafmagn á framleitt tonn af hrááli, þá eru greiðslurnar samtals verulega hærri hér en hjá hliðstæðri álbræðslu í Noregi.

Segja mætti, að fyrr hefði verið ástæða til að setja slíka nefnd á laggirnar á vegum Alþingis, sem þessi þáltill. gerir ráð fyrir. Á það get ég fúslega fallizt, og má þá telja til minnar yfirsjónar að hafa ekki beitt mér fyrir því sem iðnrh. Ég dreg ekki í efa, að slík nefndarskipan fyrr, hefði komið að góðum notum. Þegar heimildarlög til stórframkvæmda í orkumálum voru afgreidd á síðasta þingi, hlaut að því að koma, að efnt yrði til slíkrar nefndarskipunar eða frekari aðgerða til undirbúnings frekari stóriðju. Ég fann sárt til þess oft og einatt, hversu litlum mannafla við höfðum á að skipa til þess að ryðja veginn áfram til frekari stóriðju í tengslum við stórvirkjanir. Ég vil því leyfa mér að vona, að ekki þurfi að koma til ágreinings um þetta mál nú, er hindri framgang þess í þinginu.

Sagt hefur verið frá því opinberlega, að hæstv. iðnrh. hafi skipað sérstaka nefnd til ráðuneytis í stóriðjumálum. Ég fagna því sérstáklega, að dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri er formaður þeirrar nefndar, eftir því sem sagt er, en á honum hvíldi langmestur þungi við undirbúning fyrstu stóriðjunnar hér á landi. Slík ráðunautanefnd ráðherra á fyllsta rétt á sér, en dregur á engan hátt, nema síður sé, úr nauðsyn skipunar þeirrar stóriðjunefndar Alþingis, sem þáltill. á þskj. 30 lýtur að.

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að leggja til að þessari till. verði að lokinni fyrri umr. vísað til hv. allshn.