02.11.1971
Sameinað þing: 9. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 523 í D-deild Alþingistíðinda. (4063)

30. mál, stóriðja

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. Ég vil aðeins taka það fram, að valið milli Sigöldu og Hrauneyjafossa var ekki byggt á verkfræðilegum ástæðum fyrst og fremst nema að því leyti til, að verkfræðilegt álit sagði sem svo, að það væri að öðru jöfnu alltaf eðlilegra að virkja ofar í á en neðar. En Hrauneyjafossvirkjun var hagkvæmari fjárhagslega og í framkvæmd, ef önnur hvor virkjunin átti ein að standa um lengri tíma og það er þetta, sem gerir það að verkum, að Sigalda var valin, að það er vísbending um, að við verðum að leggja áherzlu á að tengja þessar tvær stórvirkjanir saman.