17.12.1971
Neðri deild: 29. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 469 í B-deild Alþingistíðinda. (407)

119. mál, verðlagsmál

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir, gerði upphaflega ráð fyrir því, að ákvæðin um verðlagsnefnd yrðu framlengd, eins og þau hafa verið, að öðru leyti en því, að ákvæðunum um skipun formanns nefndarinnar var vikið örlitið til af ástæðum, sem hér hafa verið skýrðar. Framlenging þessara ákvæða hefur verið endurtekin nokkrum sinnum hér á þingi undanfarin ár með fullu samkomulagi allra, og það hefur einfaldlega byggzt á því, að um mjög víðtækt samkomulag er að ræða um skipun þessarar nefndar á milli verkalýðshreyfingarinnar annars vegar og stjórnvalda og vinnuveitenda í landinu, og það hefur öllum þótt rétt að halda þessu samkomulagi, en rifa það ekki upp.

Auðvitað geta verið uppi ýmsar skoðanir um það, hvernig bezt væri fyrir komið skipun verðlagsnefndar. Það er ekkert óeðlilegt, að fram komi till. um t.d. neytendasamtökin í landinu, að þau ættu þarna fulltrúa o.s.frv. Hv. 12. þm. Reykv. flytur hér till. um að gefa Kvenfélagasambandinu kost á því að tilnefna hér einn mann, og auðvitað geta komið fram miklu fleiri till. eða ábendingar um það, hverjir mættu eiga fulltrúa í þessari nefnd, en kjarni þessa máls er það, að þessi nefnd hefur verið sett saman með sérstöku samkomulagi á milli þeirra aðila, sem hér hafa verið nefndir, verkalýðshreyfingarinnar annars vegar og atvinnurekenda hins vegar og ríkisvaldsins, og við höfum talið á undanförnum árum og teljum enn, að rangt sé að rifa upp þetta samkomulag. En það er auðvitað alveg augljóst mál, að ef till. frá hv. 12. þm. Reykv. á þskj. 169 yrði samþ., þá er búið að rjúfa þetta samkomulag, sem gilt hefur um þessa nefnd. (Gripið fram í.) Það gildir svo lengi sem þessir aðilar og stjórnarvöldin hafa ekki sagt því upp, og auðvitað getur Alþ. breytt því og ákveðið að taka upp nýtt skipulag, það er alveg rétt, það er opið þannig, en samkomulagið á milli þessara aðila stendur enn þá, og ég hélt satt að segja, að það þyrfti ekki að verða ágreiningur um þetta atriði, og það hefur ekki verið hér á undanförnum árum. Af þessum ástæðum mæli ég eindregið gegn samþykkt till. á þskj. 169, af því að hún mundi alveg steypa þessu samkomulagi, sem þarna hefur verið, og ég held, að af því gætu hlotizt ýmiss konar erfiðleikar varðandi framkvæmd á þessu máli.

Hitt atriðið, sem síðan hefur verið tekið hér upp í sambandi við þetta mál, er till. um bráðabirgðaákvæði á sérstöku þskj. 226, till. frá fjhn. samkv. beiðni ríkisstj. Þar er um að ræða að taka orðrétt upp úr verðstöðvunarlögum öll þau atriði, sem varða sérstaklega verðlagningarmál, því að þótt gert sé ráð fyrir því, að verðstöðvunarlögin sem slík falli úr gildi um næstu áramót, þá er það vilji ríkisstj., að áfram verði í gildi ákvæði þess efnis, að óheimilt sé að breyta verðlagningu í landinu, jafnt á vörum og þjónustu, nema til komi leyfi víðkomandi yfirvalda. Við lítum hins vegar svo á, eins og ég hef sagt hér áður, að það væri ekki eðlilegt að framlengja út af fyrir sig verðstöðvunarlögin, því við teljum það varla eðlilegt, að kalla það ástand, sem hér kemur til með að verða eftir áramótin, verðstöðvun, af því að beinlínis er gert ráð fyrir því, að í ýmsum tilvikum verði að breyta verðlagi. En við teljum, að óhyggilegt sé að leyfa hinum ýmsu aðilum að ákveða verðlagið sjálfir, eins og annars mundi verða, ef þetta yrði ekki framlengt. Það hefur t.d. komið í ljós síðustu daga, að bæði sveitarstjórnir og aðrir aðilar eru að gera samþykktir um að hækka verðlag í ýmsum greinum, og þeir mundu sýnilega gera það, ef ekki yrðu áfram einhver ákvæði í lögum um það, að þeir yrðu að sækja um leyfi fyrir slíkum hækkunum til stjórnarvalda, og þær yrðu að metast í hverju einstöku tilviki. Ég vil því vænta, að hv. þm. geti fallizt á það að framlengja áfram með því að samþykkja þessi bráðabirgðaákvæði þau ákvæði úr verðstöðvunarlögunum, sem snerta eftirlit með verðlagi á öllum sviðum.

Þá sýnist mér, að hér sé ekki í rauninni um annað að ræða í sambandi við þetta frv. í heild en framlengingu á ákvæðum, sem hafa verið í gildi, og ég hefði því viljað vænta þess, að það gæti tekizt samkomulag um þetta og að ekki þyrftu að verða hér mjög langar umr. um það atriði út af fyrir sig, hvernig æskilegast væri að dómi manna að skipa verðlagsnefnd. Ég efast auðvitað ekkert um, að um það eru uppi margar og misjafnar skoðanir. Spurningin er aðeins þessi: Geta menn ekki fallizt á, að það samkomulag, sem gilt hefur um þetta mál á milli jafn þýðingarmikilla aðila og hér eiga hlut að máli, fái að standa áfram, eins og nú er ástatt um þessi mál öll?

Ég vænti þess, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem er að finna á þskj. 226 og fjhn. stendur að, en leggst gegn því, að till. á þskj. 169 frá hv. 12. þm. Reykv. verði samþ.