22.11.1971
Neðri deild: 15. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (41)

71. mál, innlent lán

Björn Pálsson:

Herra forseti. Það er búið að ræða dálítið um þetta mál, en mér virðist ekki hafa verið lögð nægileg áherzla á aðalatriði málsins. Þau eru sérstaklega tvö. Í fyrsta lagi, að þetta eru óhagkvæm lán, vísitölubundin lán. Og mér er tjáð, að hverjar 100 kr., sem teknar voru að láni 1964, séu orðnar að 383 kr. nú, m.ö.o. hefur upphæðin nærri fjórfaldazt. Af þessu þarf að borga vexti og afborganir. Við vitum vel, hvernig fólk ber sig yfir því að taka þessi vísitölulán hjá húsnæðismálastjórn út á íbúðirnar sínar. Einstaklingar gera það ekki, nema þeir séu tilneyddir.

Í öðru lagi hefur það atriði ekki verið skýrt, að þetta skapar ranglæti í þjóðfélaginu. Það eru aðeins örfáir menn, sem eiga kost á því að vísitölutryggja sitt sparifé á þennan hátt, en fjöldinn verður alveg utan við það. Og það eru menn, sem eiga mikla peninga, sem það gera, því að þeir bíða nú sumir með peninga svo skiptir milljónum, til að geta keypt þessi bréf. Og á þann hátt búa þjóðfélagsþegnarnir ekki við sömu kjör hvað verndun sparifjárins snertir. Og það er ríkið, sem ætlar að ganga á undan og hefur gengið á undan með því að gera þetta misjafnt.

Ég get tekið undir það, sem hæstv. forsrh. sagði hér um daginn, að við eigum að gera okkar framkvæmdir sem mest með innlendu fé, einkum í góðæri, og ekki taka erlent fé að láni nema til framkvæmda, sem gefa verulegar beinar tekjur aftur. Hæstv. fjmrh. kom líka inn á þetta sama atriði. Þar er ég þeim alveg sammála. En hvernig í ósköpunum stendur á því, að ríkið er til neytt að taka þessi ókjaralán? Síðan 1964 hefur gengið lækkað, svo að krónan er rúmlega tvöfalt minna virði miðað við skráð gengi, þannig að vísítalan hefur hækkað meira en gengisbreytingunni nemur, og ég sé ekki útlit á því, að vísitölunni verði haldið óbreyttri, því að yfirleitt fer verðlag í heiminum hækkandi. Auk þess eru líkur til verulegra kauphækkana, og við vitum allir, að á s.l. ári hefur vísitölunni verið haldið niðri með geysilegum niðurgreiðslum. Hvað um það verður í framtiðinni, get hvorki ég né e.t.v. neinn annar fullyrt neitt. En það eru vægast sagt miklar líkur til, að vísitalan hækki verulega, jafnvel þó að gengisskráning haldist óbreytt.

Ég get ómögulega séð, að það sé þörf fyrir ríkið að taka svona óhagkvæm lán, bjóða út þessi bréf. Því fer það ekki í sinn eigin banka og biður um lán? Ég veit ekki betur en ríkið eigi alla aðalbanka landsins, og er nokkuð verra að taka lán í sínum eigin bönkum heldur en vera að bjóða út bréf, þar sem einstakir menn sitja algerlega fyrir kaupunum, því að menn t.d. úti á landsbyggðinni hafa litla möguleika á að fá þessi bréf keypt? Þau eru öll seld á svipstundu til peningamanna hér í bænum. Ég veit ekki, hvort Akureyri hefur fengið eitthvað smávegis, en ég dreg það mjög í efa. Hinir almennu sparifjáreigendur, sem eiga tiltölulega litlar upphæðir, hafa algerlega orðið af kaupum á þessum bréfum.

Við vitum ósköp vel, að það hefur verið þrengt að bönkunum á allan hátt. Í fyrsta lagi hefur með endurteknum gengislækkunum svo að segja verið upprættur allur sparifjáráhugi hjá fólki. Það hafa allir reynt að eyða sínum peningum, annað hvort í bila, byggingar eða festa þá í einhverju, sem það hefur trúað, að héldi verðmæti. Það, sem er mest virði viðvíkjandi okkar fjárhag, er að skapa traust verðgildi peninga, þannig að fólkið vilji eiga peninga. Þá hefðu bankarnir nóga peninga, og þá þyrftu hvorki einstaklingar eða ríki að sæta neinum ókjaralánum. En þetta tekur sinn tíma, því að það er búið að hvekkja fólkið hvað eftir annað.

Ég vil taka það fram, að ég held, að núv. ríkisstj. ætti að athuga það að þræða ekki alveg sömu slóð og fyrrv. ríkisstj. Vitanlega tók fyrrv. ríkisstj. upp á því að bjóða þessi lán út með þessum kjörum. En ég sé ekki endilega, að núv. ríkisstj. þurfi að þræða sömu götuna. Við getum aldrei gert mikið af viti í fjármálum, ef við ætlum að apa allt eftir fyrrv. ríkisstj. Við vorum vanalega á móti þessu, og enginn hélt betri ræður um þetta en hæstv. utanrrh., Einar Ágústsson. Hann var bankamaður og skildi vel ganginn í bankakerfinu. Hann hélt góðar ræður um þetta atriði, sérstaklega hvað þetta þrengir að bönkunum. En það má öllum ljóst vera, að þetta eru ókjaralán og fjármálaleg glópska að taka þau. Vitanlega er þetta tekið frá bönkunum, og það er mesti misskilningur að halda, að sparifjáreigendur eigi eitthvað meiri innstæður í heild, ef þetta er tekið út úr bönkunum. Þeir hafa aðgang að sínum bókum og geta tekið út alveg eins og þeim sýnist. Það verður ekki dregið úr neinni eyðslu með þessu móti. Það aðeins þrengir að viðskiptabönkunum. ríkisstj. getur hæglega bætt úr því með því að lækka þá bindiprósentu, sem Seðlabankinn tekur af viðskiptabönkunum, lækka þá upphæð, sem víðskiptabankarnir verða að binda hjá Seðlabankanum.

Ég get vel skilið, að Seðlabankinn mæli með þessu. Hann hefur alltaf mælt með öllum vitleysum í fjármálum. Þeir sitja uppi á efsta lofti í Landsbankanum og segja viðskiptabönkunum að koma með peningana, sem þeir eigi að láta í Seðlabankann. Svo eru þeir á grænni grein. Hví lána þessir herrar það ekki sjálfir?

Það virðist hafa verið helzta áhugamál þeirra að pína þessa viðskiptabanka.

Annars er þessi bankastarfsemi hér á landi þannig, að það er í raun og veru ekki hægt að biðja bankastjóra um lán. Þó að það séu ekki nema fáir tugir þúsunda, og krónan er ekki orðin mikils virði, þá er eins og þetta sé gert af einhverri náð, þó að margfaldar tryggingar séu boðnar. Peningarnir eru alls ekki til. Það er ekki af því, að þessir menn séu neitt verri en aðrir menn og vilji ekki gjarnan gera mönnum greiða. Þeir hafa bara peningana ekki til, sem er ósköp eðlilegt, þegar Seðlabankinn bindur verulegt fé fyrir þeim, og svo er búið að minnka krónuna fjórum sinnum í valdatið fyrrv. stjórnar, þannig að verðmæti sparifjárins hefur alltaf minnkað, þó að krónunum hafi fjölgað.

Það er ekkert aðalatriði, sem sjálfstæðismenn halda hér fram, að það eigi að draga þetta þangað til næsta ár og bjóða þá út þessar 200 millj. Það er aðeins hagræði fyrir bankana nú fyrir áramótin, viðskiptabankana. En það er ekki nein sérstök fjármálavizka í því. Það á að endurtaka sömu vitleysuna, taka þessi vísitölulán. Stefnan er alveg jafnvitlaus, hvort sem hún er framkvæmd eftir áramót eða fyrir áramót. (Gripið fram í.) Þetta er bara vitlaus stefna, sem fyrrv. ríkisstj. fann upp og fór eftir, en við megum alls ekki fara eftir, ef við ætlum að gera eitthvað af viti. Það ætti að vera hægurinn hjá fyrir Seðlabankann að lána ríkinu án vísítölutryggingar þessar 200 millj. Honum yrði varla óglatt af að hækka bindiféð um 1–2% boðizt brattara.

Út af fyrir sig er þetta ekkert atriði, hvort þessar 200 millj. yrðu samþykktar. Það getur farið svo, að ríkið fengi að borga þær með 400 millj. aftur eða 500 millj., en það ætti ekki að setja okkur á hausinn. En aðalatriðið er, að þetta er röng stefna. Það er aðalatriðið. Hún er ranglát gagnvart sparifjáreigendum, og hún er heimskuleg fyrir ríkið sjálft. Þetta eru höfuðatriðin. Hitt er svo annað mál, að þegar góðæri er eins og nú, þá er óhyggilegt að taka mikil lán til framkvæmda. Þá eigum við að leggja féð til sjálfir. Til hins getur verið ástæða, þegar vantar atvinnu, að ríkið taki þá lán til að bæta úr atvinnuskorti og framkvæma þá meira.

Ég álít, að það sé hægðarleikur, ef ríkisstj. vill, að breyta þessu frv. þannig, að þessar 200 millj. séu teknar til láns í Seðlabankanum. Það er alveg sama upp á gang framkvæmdanna, en er miklu hagkvæmara fyrir ríkið, og það er ólíklegt, að Seðlabankinn geti ekki lánað þessar krónur, þegar hann heldur, að viðskiptabankarnir eigi auðvelt með það, nú rétt fyrir áramótin, þegar bankinn gengur jafnríkt eftir að þeir fari ekki yfir strikið eins og hann gerir, þannig að ég er ekki í neinum vafa um það, að ef ríkisstj. fer þá leið að taka þetta lán í Seðlabankanum og hættir við þessi vísitölubréf sin, mundi ríkið græða á því, sennilega svo að skiptir hundruðum millj. Það er þess vegna, sem ég hef viljað benda á þetta atriði.

Þetta eru aðalatriði málsins í raun og veru. Þau eru ekki nema tvö. Það er óviturleg aðferð fyrir ríkið að taka svona lán, og það er jafnvel betra að taka þetta í sköttum af fólkinu, en það dregur ef til víll ofurlítið úr eyðslunni. En það, að fáeinir peningamenn fái að kaupa bréf með miklu betri kjörum en almenningur á nokkurn kost á, er ranglæti, og það dregur ekkert úr eyðslunni, því að þessir menn, sem hafa verið svo forsjálir að eignast þessa miklu peninga, eyða ekki peningunum sínum í neina vitleysu. Þeir hafa einhvern veginn lag á að vernda þá, þannig að það ætti hverjum manni með nokkurn veginn skýra hugsun að vera ljóst, að þetta er óviturleg leið. Það er verra að verða að taka þessi lán en taka erlend lán, því að það hefði þá aldrei orðið lakara en það, að hverjar 100 kr. væru orðnar að rúmum 200 kr. frá 1964. En samkv. vísitölunni er mér tjáð, að þetta sé orðið 383 kr., hverjar 100 kr. Ég held, að það þurfi því enga fjármálagarpa til að sjá, að hér er um hreina vitleysu að ræða.

Ég vil alls ekki fallast á, að þm. séu vitlausari fjármálamenn en gerist og gengur, en það þarf bara óbreyttan alþýðumann til að sjá það, að þetta eru óhyggileg lán fyrir ríkissjóð og ranglát gagnvart sparifjáreigendum. En hitt gæti verið annað mál, ef ríkið vildi nú ganga inn á það að verðtryggja allt sparifé í landinu. Þá væri ekkert að segja um þetta. Ég er ekki mikill fjármálamaður, en ég sé, að hér er um fjármálaglópsku að ræða, og það hefur alltaf verið fjármálaglópska. Núv. ríkisstj. þarf að gæta þess að þræða ekki sömu götu og fyrrv. ríkisstj. í fjármálavitleysu.