16.05.1972
Sameinað þing: 71. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í D-deild Alþingistíðinda. (4169)

31. mál, fálkaorðan

Frsm. minni hl. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Eins og hv. frsm. meiri hl. lýsti hér, varð ekki samkomulag í allshn. um afgreiðslu þessa máls. Ég held nú samt, að það hafi enginn hiti verið í nm., þegar var verið að ræða þetta mál, því að minni hl., þótt hann gæti ekki fallizt á álit meiri hl., hann saknaði þess ekkert út af fyrir sig, þó að þeir fengju ekki orðu sjálfir, en minni hl. vildi vekja athygli á því, að þetta er ekki alveg vandalaust mál, ekki alveg vandalaust.

Það hafa komið hér fram ýmsar brtt. við þetta mál. Ég ætla ekki að gera þær að umtalsefni, vegna þess að álit minni hl. er á þá leið að vísa till. til hæstv. ríkisstj. til nánari athugunar. Og minni hl. telur eðlilegt, að þær reglur, sem farið hefur verið eftir um úthlutun, verði endurskoðaðar. Ég vil vekja athygli á því, að ef orðuveitingin er bundin aðeins við útlendinga, þá gæti verið, að útlendingum þætti lítið varið í að fá þetta heiðursmerki, sem Íslendingar sjálfir vilja ekki þiggja. En það getur verið nauðsynlegt og mikils virði að heiðra útlendinga, sem leggja mikið upp úr því að fá þetta, sem oft er kallað „húmbúkk“. En þetta er ekki „húmbúkk“ í augum þeirra og mér hefur verið sagt, að sendiráðsmenn ýmsir hafi orðið fyrir því að vera ekki eins mikils metnir í augum ýmissa, vegna þess að þeir höfðu ekki orðu. Þetta er hlægilegt í okkar augum. En það er bara öðruvísi litið á þessi mál víða annars staðar en hér. Orður eru veittar bæði í lýðveldum og konungsríkjum og það er gert í ákveðnum tilgangi. Okkur finnst þetta mörgum hreinn hégómi. En ég held, að það sé eðlilegt að líta með raunsæi á þetta eigi að síður. Orðunefnd er skipuð, hún gerir till. til forseta Íslands um orðuveitinguna. Eigi að síður hefur forseti Íslands vald til þess að veita orður án þess að hafa fengið till. um það. Þetta hefur þótt þægilegt og þótt borga sig oft og tíðum að veita orður mönnum, sem þykir þetta mikils virði. Og minni hl. telur eðlilegt og sjálfsagt, þar sem orðan er hjá orðunefnd og orðunefnd heyrir undir forsrh., að till. verði vísað til ríkisstj. og forsrh. og ríkisstj. gefist tækifæri til að ræða þetta mál við forseta Íslands og hafa þann hátt á þessu, sem heppilegastur er fyrir Ísland. Ég get alveg litið sömu augum á þetta mál og margir hv. alþm., sem eru á móti fálkaorðunni. En ég tel eðlilegt og minni hl. telur eðlilegt, að ríkisstj. og forseti Íslands hafi þennan möguleika í hendi sér, ef heppilegt þykir að nota hann.