21.03.1972
Sameinað þing: 51. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 620 í D-deild Alþingistíðinda. (4187)
46. mál, öryggismál Íslands
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Hér liggja nú fyrir til umr. tvær þáltill., sem báðar lúta að öryggismálum landsins. Báðar þessar till. eru þannig úr garði gerðar, að þær túlka sjónarmið hersetumanna og þegar ég tala um hersetumenn, þá á ég við þá menn, sem vilja fyrir alla muni hafa kyrran þann her, sem nú er í landinu. Ástæðan er sú, að í báðum þessum till. er gert ráð fyrir rannsóknum í sambandi við endurskoðun varnarsamningsins og þessar rannsóknir eru svo einhliða, að þær geta ekki leitt nema til einnar niðurstöðu, til neikvæðrar niðurstöðu. Í báðum þessum till. er fyrst og fremst spurt um það, hverjir séu hagsmunir stórveldanna. Leita á til Atlantshafsbandalagsins um röksemdir, og það eiga ekki aðrir að tala við Atlantshafsbandalagið en þeir, sem vilja vera í Atlantshafsbandalaginu, m.ö.o. það er þannig gengið frá rannsókninni, sem fara á fram, að niðurstaðan getur ekki orðið nema á einn veg. Hvernig væri nú fyrir þessa herramenn að taka inn í þennan málflutning sinn einhver rök, sem varða Ísland sérstaklega? Hver eru t.d. efnahagsleg, menningarleg og félagsleg áhrif varnarliðsins á Íslandi? Það væri t.d. einhver ástæða til að geta þeirra. Ég skal aðeins víkja að þessu nánar.
Það er barnalegt að heyra það hjá fullorðnum mönnum, eða það er nú kannske sérstaklega að vænta þess af þeim, að tala þannig, að Varsjárbandalag og Rússar séu ófriðarbandalag og NATO sé eingöngu friðarbandalag. Við þekkjum þá menn, sem afsaka allar aðgerðir Rússa og kommúnista, innrás í Tékkóslóvakíu og Ungverjaland. Á slíkum mönnum er ekki mark takandi. En það gildir líka alveg sama um þá menn, sem afsaka allar aðgerðir Bandaríkjamanna og NATO—bandalagsins í ýmsum málum. Hér er ekkert, sem heitir hvítt og svart. Hér er um að ræða tvö stórveldi, annars vegar Rússa og hins vegar Bandaríkin, sem hafa tvær hernaðarblokkir, og þetta er hvort tveggja í senn tryggingakerfi fyrir þessi tvö stórveldi. Og það er barnaskapur að tala um þetta sem svart og hvítt, engla og djöfla. Auðvitað skapar það ugg og ótta í mönnum, þegar Rússar haga sér þannig að ráðast með herlið inn í Tékkóslóvakíu og Ungverjaland. En við skulum bara líta á, hvernig er í NATO—löndunum og hvernig er með forustuland vestræns lýðræðis, Bandaríkin. Hafa ekki Bandaríkin háð stríð í Víetnam, sem er alveg með eindæmum? Þeir hafa hellt yfir landið meira sprengjumagni, en bandamenn hentu yfir allt Þýzkaland í síðasta stríði. Þeir þurrka út mannfólk, dýralíf og gróður. Bandaríkjamenn taka afstöðu með hernaðareinræði eins og í Pakistan mót þjóð eins og Bangla Desh, sem er að berjast fyrir sjálfstæði sínu. Bandaríkin greiða 400 millj. dollara leigu fyrir skika af Azoreyjum til að gera Portúgölum kleift að halda uppi nýlendustríði í Angóla og öðrum nýlendum. Ég verð nú að segja, að það að tala um svona hluti sem svart og hvítt, það eru bara bjánar, sem gera það. Og það er alls ekki réttur málflutningur að halda því fram og afsaka veru varnarliðsins á svo undarlegum forsendum.
Eða hvernig er með ýmis ríki í NATO? Hvernig er með Portúgal? Við þurfum ekkert að fjalla nákvæmlega um það. Við þekkjum nýlendupólitík Portúgala. Við þekkjum hernaðar einræðið í Grikklandi, sem hefði ekki komizt á án stuðnings og vitundar Bandaríkjamanna. Og hafa ekki Bandaríkjamenn sérstaka samvinnu við Franco á Spáni? Og ég vil spyrja hérna hv. þm. eins og Jón Árm. Héðinsson, hver sé eðlismunur á valdaráni vinstri manna og hægri manna. (Gripið fram i: Hann er enginn.) Já, þá sérðu það, Jón Árm. Héðinsson, það þýðir ekki að tala um þetta sem svart og hvítt. (Gripið fram í.) Nei, sannleikurinn er sá, að stórveldi allra tíma hafa ákveðið „mentalitet“, útþenslupólitík, og það skiptir engu máli, hvort stórveldið er keisaradæmi, kommúnistískt stórveldi eða kapitalistískt stórveldi. Þetta er gangur mála. Þeir sem þekkja til vita, að þetta var í rómverska keisaradæminu, þetta var Alexander mikli, þetta var England á 18. og 19. öld og þetta er bara ákveðið „mentalitet“ og útþenslustefna hjá stórveldum. Og þannig er líka hjá Bandaríkjamönnum. Þeir reka ákveðna útþenslupólitík, alveg eins og Rússar. Og þetta vita menn. Í þessum baráttuaðferðum stórveldanna tíðkast bara, að tilgangurinn helgar meðalið. Þeir gera samkomulag við hvaða einræðisherra sem er. Það skiptir engu máli, ef það þjónar málefnum þeirra. Og að stilla upp tveimur hlutum, annað er friðarbandalag, hitt er ófriðarbandalag, það nær ekki nokkurri átt.
Ég hygg nefnilega, að smáþjóðirnar þurfi að taka upp þann háttinn að reyna að hugsa út frá sínum veika mætti og taka ekki upp ómengað hugarfar og drottnunarstefnu stórveldanna. Við eigum ekki að hugsa alveg eins og Bandaríkjamenn óska, að við hugsum. En því miður, þá kemur fram í þessum báðum till. það hugarfar, sem stórveldin og þá í þessu tilfelli Bandaríkjamenn, óska að fá fram hjá smáþjóðum. Það er sú dindilmennska og leppmennska, sem kemur fram í þessum till., að það er alveg dæmalaust. Ég óska eftir því, að það sé tekið tillit til íslenzkra viðhorfa í varnarmálum.
Það er mikil viðhöfn höfð í tillöguflutningi sjálfstæðismanna. Það eru l0 þm. Mér datt nú í hug l0 litlir negrastrákar og hafði þann skilninginn á, að þeir mundu smám saman heltast úr lestinni og fyrst sá tíundi. En hvað um það, þar er fyrst og fremst sá skilningur; að endurskoðun eigi að miðast við þarfir Atlantshafsbandalagsins. Það á að útiloka menn, sem eru í andstöðu við Atlantshafsbandalagið og eingöngu á að ræða um hernaðarlegt gildi Íslands, og niðurstaðan verður miðuð við það, hvað þessir herforingjar í Atlantshafsbandalaginu álíta, að sé mikil þörf fyrir her á Íslandi. Þurfum við bara nokkra endurskoðun? Það þarf bara enga endurskoðun. Niðurstaðan er alveg ljós. Að öðru leyti er alveg grátbroslegt að lesa í þessari grg. með þessari till. um það, að við eigum að halda, eins og hingað til, reisn okkar á erlendum vettvangi. Mér er ókunnugt um, að viðreisnarstjórnin hafi haft reisn á erlendum vettvangi. Og skaða málstað, — takið eftir þessu, þm. góðir — „að skaða málstað landsins í viðræðum við Atlantshafsbandalagið“. Eru þetta Íslendingar, sem tala? „Að skaða málstað landsins“, ég veit ekki betur en við eigum að koma með vor íslenzku viðhorf og ræða þau og síðan sjá, hver niðurstaðan verður. Að öðru leyti hefur utanrrh. vikið að þeim rangfærslum, sem eru í þessari grg. á þskj. 47, svo að ég vík ekki nánar að henni.
En það er varðandi till. á þskj. 62. Sú till. er miklu hófsamari, og þar er reynt að taka skynsamlegar á hlutunum; En ég segi fyrir mig, ég sakna algerlega íslenzkra viðhorfa. Hér er átt við, að það eigi að taka varnarsamninginn til endurskoðunar. Hvað er þá endurskoðað? Er eingöngu endurskoðað eða reynt að fá fram álit Atlantshafsbandalagsins eða hið hernaðarlega viðhorf þessara manna? Skiptir engu máli, hver áhrif varnarliðsins eru á íslenzkt þjóðlíf, á íslenzkt samfélag? Eru það ekki íslenzku rökin? Við vitum það, að varnarliðið hefur ýmis félagsleg áhrif og miður heppileg á íslenzkt þjóðfélag. Og má t.d. nefna það, að ýmsir hermenn og starfsmenn búa utan vallar og af því leiðir kannske ýmiss konar óþarfa árekstra eða kannske smygl eða ýmislegt í sambandi við skattfrelsi manna og ungar, fallegar, íslenzkar stúlkur gefast á brott. Þetta er blóðtaka fyrir þjóðina. Þetta eru félagsleg áhrif. Og hvað er að segja um menningarleg áhrif á þjóðina? Eru þau ekki einhver? Er ekki sjálfsagt að kanna þau? Og er ekki hið margumtalaða sjónvarpsmál hér til athugunar? Og hvað er að segja um áhrif á efnahagslífið? Að vísu segir hér í till. frá Alþfl.—mönnum, að það eigi að kanna kostnað við varnir landsins og efnahagslega þýðingu þeirra fyrir Íslendinga. Mér skilst, að þetta sé í jákvæðri merkingu, hvaða gildi og þýðingu það hafi fyrir efnahagslífið, það sé fyrst og fremst hið jákvæða, en ekki hin efnahagslegu áhrif, hin alhliða áhrif í efnahagslegu tilliti.
M.ö.o. ég sakna þess í þessum tillöguflutningi, þegar verið er að biðja um rannsóku á endurskoðun varnarsamningsins, að hér koma menn eingöngu og vilja fá athugun á hernaðarlegum viðhorfum. Hvar er málstaður Íslands í þessu? Og ég endurtek, það er alveg óþarfi að gera nokkra athugun á þessu, niðurstaðan liggur ljós fyrir. Hvað haldið þið, að generállinn segi um þetta mál?
Það er eitt atriði í þessu, sem ég vil líka koma að, sem mönnum virðist nokkuð óljóst hér. Þegar Íslendingar gerðust aðilar að NATO, þá var skýrt tekið fram, að Íslendingar vildu ekki hafa her á friðartímum og engin þörf væri fyrir her. Ég lít svo á, að það sé sú markaða stefna allra stjórnmálaflokka, sem enn er í gildi. Að vísu var með varnarsamningnum 1951 talið þannig ástand í alþjóðamálum, — það var Kóreu—stríðið, að eðlilegt væri að fá hér her til varnar, en það var enn ítrekað, að hér ætti ekki að vera her á friðartímum, og um leið, að hér væri um tímabundið varnarlið að ræða og það stæði í engu sambandi við Atlantshafsbandalagið. M.ö.o. við tökum við varnarliði á þeirri forsendu, að það sé tímabundið og það sé ekki í tengslum við NATO.
Nú er það úr sögunni. Nú er verið að rökstyðja veru varnarliðsins á þeirri forsendu, að við séum í NATO. Þarna á að smeygja ólinni yfir á okkur og um okkur. Ég lít svo á, að íslenzkir stjórnmálaflokkar séu með þessu að breyta um grundvallarafstöðu í varnarmálum. Nú er farið að nota alveg nýja röksemd. Af því að við erum í NATO, þá er rétt, að við höfum varnarlið. Þetta hefur, aldrei verið stefna Íslendinga fyrr en nú. Og það er hörmulegt til þess að vita, að menn skuli geta tekið þessa stefnu, að nota NATO til þess að tryggja áfram veru hersins.
Ég ætla ekki að ræða miklu meira um þetta að sinni. En ég vil benda á eina staðreynd, að úr því að það var tekið fram í yfirlýsingu Íslendinga, að við ættum ekki að hafa her á friðartímum og það var ítrekað með varnarsamningnum, þá á endurskoðunin að beinast að hugtakinu friðartímar. Endurskoðunin er ekki fólgin í því að spyrja NATO, hvort við eigum að hafa herinn hér á landi, heldur er endurskoðunin í samræmi við íslenzka utanríkismálastefnu að spyrja: Eru friðartímar eða ekki friðartímar? Og það á að skilgreina, hvað séu friðartímar. Foringi Sjálfstfl., sem því miður er ekki hér, lýsti því yfir, að það væri ógerningur að skilgreina friðartíma. Og hver yrði niðurstaðan? Við höfum bara áfram her. Ég hygg, að þetta sé ljóst. Auðvitað eiga Íslendingar í samræmi við utanríkispólitík sína að skilgreina hugtakið friðartímar og taka afstöðu samkv. því.
Ég vil í sambandi við endurskoðunina á varnarsamningnum taka fram, að ég vænti þess að sjálfsögðu, að utanrrh. beiti sér fyrir því, að það fari ekki aðeins fram viðræður við stjórn NATO, heldur verði gerð alhliða könnun á þeim íslenzkum sér vandamálum. sem tengd eru hernum. Ef það er ekki gert, þá er sú rannsókn einskis virði. Og ég vil fara fram á það, og það hlýtur að vera sjálfsögð krafa, að þarna sé gerð alhliða könnun á menningarlegum, félagslegum og efnahagslegum áhrifum á íslenzkt þjóðfélag. Síðan geta menn gert dæmið upp, en ekki fyrr. (LárJ: Hvað tekur þetta langan tíma?) Ja, ég get svarað því, að það tekur það langan tíma, að þið verðið ekki komnir í ríkisstj., sjálfstæðismenn.
Sannleikurinn er sá, að hér er rekin sú pólitík, sem ég hef kallað hræðslu— og óttapólitík. Og ég vil rökstyðja það á ósköp einfaldan hátt. Það er til blað, sem heitir Morgunblaðið. Og það hefur t.d. varið Víetnamstríðið gegnum þykkt og þunnt, þ.e. fyrir Bandaríkjamenn, á meðan Bandaríkjamenn sjálfir og bandaríska þjóðin er orðin þreytt á stríðinu. Þetta hefur valdið svo miklum þjóðfélagslegum byltingum í Bandaríkjunum, að jafnvel forsetar hafa hrökklazt frá völdum eingöngu vegna Víetnamstríðsins og hef ég þar Johnson í huga og enginn forseti leyfir sér lengur annað en að draga úr stríðinu og þannig hefur öll stefna í stjórnmálum orðið í Bandaríkjunum. En á meðan höfum við Moggatetrið á Íslandi, sem er orðinn kaþólskari en páfinn og ver þessa stefnu í gegnum þykkt og þunnt. Þetta er gott sýnishorn um Morgunblaðið, því að ég hygg, að hvergi í vestrænum heimi sé til annað eins stríðsæsingablað, nema maður fari kannske yfir til austantjaldsríkjanna og þar finnist einhver bróðir, sem starfi álíka. En það er rekinn sá áróður, að ef Bandaríkjamenn fari, þá komi Rússar. Flotinn er hérna við strendurnar, þeir eru viðbúnir að taka okkur o.s.frv. Þetta er gert til þess að skapa ótta og ugg með þjóðinni og þetta er fyrirlitleg hræðslupólitík af sóðalegasta tagi. Og ég vil líka benda á annað, að Mogginn er þó hættur að kalla biskupinn laumukomma eða hálfkomma eða forseta Íslands laumukomma eða hálfkomma, eins og gert var hér fyrr á árum, en nú er bara ný taktík, og hræðslupólitíkin heldur áfram.