06.04.1972
Sameinað þing: 54. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í D-deild Alþingistíðinda. (4190)
46. mál, öryggismál Íslands
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Það var allfróðlegt að heyra lögfræðing flytja lítils háttar afstrakt sögulegar skýringar á afleiðingum af samningi, sem þeir Harry S. Truman, Jósep Stalín og Winston Churchill gerðu í Potsdam um skiptingu Evrópu í áhrifasvæði, þar sem smáþjóðirnar voru engin spurn, samkomulagi, sem síðan hefur verið framfylgt, einnig án þess að spyrja smáþjóðirnar, sem þar var um samið. Það er orðið langt síðan og minni manna viljandi, e.t.v. sumpart óviljandi, stopult á þessa atburði. Og nú er upprunnin erfið tíð fyrir þá þm., sem trúað hafa þeirri fullyrðingu fyrrv. utanrrh. Íslands, sem sett var fram í tilefni af heimsókn Fulbrights, formanns utanrmn. bandarísku öldungadeildarinnar, að Íslendingar hefðu ekki efni á því að hafa sjálfstæða stefnu í utanríkismálum, heldur þyrftum við að reiða okkur á vinveitt og rík stórveldi, sem væru aflögufær um stefnuna. Og þó að ég trúi því í raun og veru, að hér í salnum sitji ekki einn einasti maður, sem ekki vilji í raun og veru í sínu hjarta gera sér grein fyrir því, hver leið sé Íslendingum sjálfum bezt á sviði utanríkis— og öryggismála og vilji fara þá leið. Þá virðast þeir þurfa dálítinn umþóttunartíma til að venja sig á að taka eigin dómgreind fram yfir dómgreind ónefnds vinveitts stórveldis.
Hér hafa þm. stjórnarandstöðunnar hver á fætur öðrum látið uppi þá skoðun sína, að Íslendingum séu aðeins tvær leiðir færar til að tryggja öryggi sitt og sjálfstæði. Önnur sú að halda áfram að vera, svo sem tíðkazt hefur nú um meira en 20 ára bil, undir verndarvæng Bandaríkjanna, hin sú og er nú reyndar furðulegt að heyra þm. Sjálfstfl. og Alþfl. hafa hana uppi, hin sú að leita undir verndarvæng Sovétríkjanna. Það hefur verið tæpt á þriðju leiðinni, að eiga það á hættu að standa einir. Eiga það á hættu að halda uppi á eigin kostnað og „risiko“ þeirri reisn, sem með þarf til þess að geta talizt sjálfstætt ríki. E.t.v. væri sú leið að athuguðu máli fær. Hv. 5. þm. Reykn. tók það réttilega fram, að það kostar ávallt nokkra áhættu að vera frjáls, hvort heldur er um að ræða einstakling eða þjóðir.
Á síðasta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna greiddi sendinefnd Íslands atkv. með till., sem var borin fram af ríkisstjórnum þriðja heimsins, svo nefndum hlutlausum ríkjum, undir forustu Amerasinghe, sendiherra Ceylon, um friðlýsingu Indlandshafs. Hugmyndin hafði verið vakin áður á vettvangi Sameinuðu þjóðanna af frú Bandaranaike, forsrh. Ceylon, en nú var till. borin fram. Í þessari till. er svo ráð fyrir gert, að framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna leggi fyrir stórveldin og ræði við þau þá samþykkt allsherjarþingsins, að allar flotaæfingar, flughersæfingar og herstöðvar verði bannaðar á skilgreindu svæði Indlandshafs. Herskipum sem öðrum skipum verði heimiluð sigling um Indlandshaf eftir sem áður í löglegum erindum hafna á milli og á engan annan hátt verði skertur réttur til frjálsra siglinga um hin friðuðu hafsvæði.
Þessi till. miðar að því að koma í veg fyrir vígbúnaðarkapphlaup stóru herveldanna í Indlandshafi, stugga burtu kafbátum þeirra og öðrum vígdrekum og hindra þau í því að koma þar upp víghreiðrum. Till. var til umr. á mjög svo óheppilegum tíma, einmitt þá dagana sem Indverjar og Pakistanir áttust illt við á þessum slóðum. Eigi að síður var hún samþykkt samhljóða með atkvæðum meiri hluta allra Sameinuðu þjóðanna, ekkert atkvæði var greitt gegn till., en langt til helmingur fulltrúa sat hjá. Það var athyglisvert við afgreiðslu málsins, að ríkisstjórnir hernaðarbandalaganna höfðu samstarf sín í milli um afstöðu til till. Þannig sátu fulltrúar allra Varsjárbandalagsríkjanna hjá við atkvæðagreiðsluna að fulltrúa Rúmeníu undanskildum, hann greiddi atkv. með till. Fulltrúar allra Atlantshafsbandalagsríkjanna sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, nema fulltrúi Íslands, sem greiddi atkv. með till. Fulltrúar Suðaustur—Asíubandalagsins sátu einnig hjá við atkvæðagreiðsluna. Af Evrópuþjóðunum voru það einungis Íslendingar, Möltu búar, Rúmenar, Júgóslavar, Svíar og Kýpur búar, sem studdu till.
Samræmið í afstöðu hernaðarbandalagsríkjanna til till. var ekki tilviljun. Vitað er, að viðræður fóru fram á milli forustumanna þeirra og niðurstaðan varð sú, að það væri virkari andstaða af hálfu hinna sameinuðu hernaðarbandalaga gegn till. um friðun Indlandshafs, að sem flestir fulltrúar sætu hjá, það væri sterkari andstaða en hitt, að sumir greiddu atkv. á móti, en aðrir sætu hjá.
Afstaða íslenzku sendinefndarinnar til till. mótaðist af þeim markmiðum ríkisstj. í sambandi við landhelgismálið, að strandríki bæri aukinn yfirráðaréttur yfir sjónum hið næsta sér og af þeirri ákvörðun að losa sig við erlenda hersetu í landi sínu. Áður hefur verið lauslega reifuð hér á Alþ. sú hugmynd, að Íslendingar beiti sér fyrir friðlýsingu Norðaustur—Atlantshafsins með atbeina Sameinuðu þjóðanna. Jónas Árnason vakti máls á þeirri hugmynd fyrir hátíðarnar í vetur, og hún hefur verið rædd nokkuð af þeim mönnum, sem leita vilja í fullkominni alvöru, ráða til þess að stugga vígdrekum lofts og lagar burtu frá þessu landi og tryggja okkur frið fyrir áreitni hervelda. Ég leyfi mér að gera ráð fyrir því, að á bak við stuðning íslenzku ríkisstj. við hugmyndina um friðun Indlandshafs búi sá skilningur, að íhugunarvert sé, þó að ekki sé meira sagt, hvort ekki sé unnt að draga úr hernaðarbrölti stórveldanna á þeim hafsvæðum, sem umlykja Ísland, með líkum ráðstöfunum og treysta þannig öryggi Íslands án útlendrar hersetu.
Ég tel nauðsynlegt, að þessi hugmynd um lausn á varnarmálum Íslands verði tekin til málefnalegrar rannsóknar og umr. hér á Alþingi.