22.11.1971
Neðri deild: 15. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (42)
71. mál, innlent lán
Frsm. minni hl. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Það voru nokkur orð út af ræðu hæstv. fjmrh., sem ég ætlaði að leiðrétta hér, en ég sé, að ráðh. er ekki hér inni. Einhvern tíma hefði verið beðið um, að í hann yrði náð og ræðuflutningur beðið á meðan. En ég veit, að ... Þarna kemur ráðh., svo að það er ástæðulaus biðin.
Út af orðum hæstv. fjmrh. varðandi frv. frá 1964, fyrsta frv., sem lagt var fram um heimild fyrir ríkisstj. til að taka innlent lán, þá vil ég vekja athygli hans á því, að þetta frv. er flutt síðla árs til þess að afla fjár til framkvæmdaáætlunar 1964, afla fjár til framkvæmdaáætlunar, sem þegar var hafin, en ekki hafði verið tryggt nægjanlegt fjármagn. Í ræðu, sem þáv. hæstv. fjmrh. flytur með þessu frv., segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Það fé, sem fengist inn fyrir þessa skuldabréfasölu, mundi ríkissjóður fyrst og fremst nota til opinberra framkvæmda, en varðandi framkvæmdaáætlun fyrir árið í ár, 1964, sem aflað hefur verið fjár til með margvíslegum hætti, vantar nokkurt fé enn til þess að ljúka þar öllu að fullu.“
Hér er alveg öfugt farið að. Það er komið með frv., áður en framkvæmdaáætlunin hefur verið samin. Í hinu tilfellinu er komið eftir á, þegar framkvæmdaáætlunin liggur fyrir, svo að þetta er ekki sambærilegt.
Um hitt, sem ráðh. minntist á, þann stutta tíma, sem hæstv. ríkisstj. hefur setið og hún hafi ekki haft tækifæri til þess að undirbúa framkvæmdaáætlun, þá eru það rök út af fyrir sig, og ég tók undir það með hv. 5. þm. Austf., frsm. meiri hl. fjhn. En þá finnst mér, að það eigi að vera samræmi í hlutunum, og það sé þess vegna ekki ástæða til þess fyrir hæstv. ráðh. að afla sér heimildar fyrr en hann hefur lokið við að semja framkvæmdaáætlun og leggja hana fyrir þingið. Við í minni hl. fjhn. erum tilbúnir til þess að samþykkja þetta frv. breytt þannig, að hann geti átt fullvíst, að útboð á 200 millj. kr. geti farið fram árið 1972.
Hv. 7. þm. Reykv., Sigurður E. Guðmundsson, gerði áðan grein fyrir afstöðu sinni. Hann ritaði undir nál. með fyrirvara, en ég held, að í því, sem hann sagði, hafi hann stutt öll þau sjónarmið, sem fram komu í ræðu minni varðandi það frv., sem hér er flutt, ef að lögum verður óbreytt.
Það hefur verið minnzt á, að hér sé gengið feti lengra í fjáröflun á innlendum vettvangi en áður. Með því að taka af bönkunum á þessu ári 303 millj., binda það þannig, þá eru u.þ.b. 40% af sparifjáraukningu viðskiptabankanna bundin, þ.e.a.s. 20% í Seðlabankanum, 10% með frjálsum lánum til opinberra framkvæmda og upphæð sú, sem hér er gert ráð fyrir að hækka úr 103 millj. í 303 millj., er u.þ.b. 10% af sparifjáraukningunni í ár. Það hefur aðeins komið fyrir í eitt skipti, að farið hefur verið yfir 10% og undir flestum kringumstæðum hefur sparifjárskírteinasala verið um 5% af þeirri sparifjáraukningu, sem verið hefur. En árið 1967, þegar engir sáu fyrir það, sem þá gerðist, fór sala þessara spariskírteina fram úr 10% af sparifjáraukningunni.
Ég vil undirstrika það við hæstv. fjmrh., að það stendur ekki á minni hl. fjhn. að veita honum heimild til lántöku á innlendum markaði á næsta ári fyrir 200 millj., til þess að hann sé þess fullviss að geta ráðstafað því fé. En eins og að þessu frv. er staðið og sala á þessum sparifjárskírteinum á að fara fram nú í des., þá getur minni hl. fjhn. ekki fallizt á það.