17.12.1971
Efri deild: 33. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í B-deild Alþingistíðinda. (420)
119. mál, verðlagsmál
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Þetta mál er komið frá Nd. Það felur í sér þá breytingu, að gert er ráð fyrir samkv. þessu frv., að eldri lagaákvæði um skipun verðlagsnefndar verði nú framlengd um eins árs skeið. Þetta fyrirkomulag hefur nú verið gildandi í nokkur ár og verið framlengt árlega. Skipun verðlagsnefndar með þessum hætti, sem hér er um að ræða, var gerð á sínum tíma með samkomulagi á milli verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda og ríkisstj., og það hefur þótt rétt að halda þessu samkomulagi áfram og hafa skipun nefndarinnar þannig með sama hætti.
Sú ein breyting felst hér í 1. gr. frv., að nú segir í gr., að formaður nefndarinnar skuli vera skipaður af ráðh. án tilnefningar, en áður hafði verið sá háttur á, að formaður nefndarinnar var ráðuneytisstjórinn í viðskrn. Þessi litla breyting er hér flutt, vegna þess að ráðuneytisstjórinn í viðskrn. hefur mjög færzt undan því að vera lagalega bundinn því að gegna þessu starfi, því að hér er vítanlega um allmikið starf að ræða. En það er nú samt ekki fullljóst enn þá, hvort hann neitar með öllu að taka við starfinu, en ætlun mín er sú að skipa hann formann áfram, ef hann fæst til þess að gegna starfinu, en ég kann hins vegar ekki við það að knýja hann til þess með lagasetningu gegn hans vilja. Ef hann fengist ekki sem formaður, þá mundi annar fulltrúi í rn. verða formaður í nefndinni af hálfu rn. í hans stað.
Eins og frv. lítur nú út, þá hefur verið bætt við frv. í Nd. ákvæði til bráðabirgða, en þar er um að ræða, að tekin eru upp úr núgildandi lögum um verðstöðvun þau ákvæði laganna, sem sérstaklega fjalla um verðlag. Það er sem sagt gengið út frá því, að þótt verðstöðvunarlögin falli úr gildi um næstu áramót, þá séu þau ákvæði þeirra laga, sem sérstaklega fjalla um verðlagsmál, áfram í gildi og tekin hér inn í þessi lög. Áfram verði það svo, að allar verðhækkanir eru bannaðar á vöru og þjónustu, nema til komi leyfi viðkomandi yfirvalda og einnig, að leyfi ríkisstj. komi til í hverju tilfelli um sig. Það er álit ríkisstj., að eins og nú er ástatt um verðlagsmál í landinu, þá sé ekki hægt um næstu áramót að heimila hinum ýmsu aðilum frjálsræði um verðlagningu, og því verði að sækja um leyfi til verðlagshækkana og fáslík leyfi, ef verðlagshækkanirnar eigi að ná fram að ganga. Hins vegar hefur ekki þótt eðlilegt að framlengja óbreytt lög um verðstöðvun, vegna þess að beinlínis er gert ráð fyrir því, að í ýmsum tilvikum verði samþykktar verðlagshækkanir, og þykir þá ekki viðkunnanlegt að kalla það því nafni, verðstöðvun, en hins vegar, að fullkomið verðlagseftirlit verði á öllum þessum málum, eins og verið hefur.
Þetta eru meginatriði frv.
Ég vænti þess, að þetta frv. geti fengið fljóta afgreiðslu, einnig hér í þessari hv. d., en legg til, herra forseti, að frv. gangi að lokinni þessari umr. til 2. umr. og fjhn.