06.04.1972
Sameinað þing: 54. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í D-deild Alþingistíðinda. (4202)

46. mál, öryggismál Íslands

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Ég mun nú aðeins gera að umtalsefni nokkur atriði af þeim, sem komið hafa fram síðan ég talaði hér í dag. Eins og löngum, þegar umr. verða fjörugar hér á Alþ., þá er það hv. 7. þm. Reykv. sem tekur að sér aðalhlutverkið, talar hæst og mest og fyndnast. Ég hef ekkert á móti því. Ég unni honum þess hlutskiptis vel. En ég kemst ekki hjá að lýsa furðu minni á, hvernig hann getur leyft sér það að tala um fjármagnsútvegun til flugbrautarlengingar á þann veg, sem hann gerði. Það er búið að marglýsa því hér yfir, að ákvörðun hafi verið tekin um það í ríkisstj. að taka á framkvæmdaáætlun ársins 1972 hluta af því fjármagni, sem þarf til að byggja eða lengja þessa flugbraut. Ég hef upplýst þetta í dag, hæstv. forsrh. hefur staðfest þetta, aðrir ráðh. hafa staðfest þetta, ýmist á Alþ. eða í viðtölum við blöð. Samt leyfir þessi hv. þm. sér að halda því hér fram með miklu stærilæti, að það, sem ég hef um þetta sagt, sé ósatt. Ég felli mig ekki við það. (JóhH: Þessi flugbraut yrði alla vega ónothæf, hún væri ekki með ljósaútbúnaði, öryggisútbúnaði eða neinu.) Þessi flugbraut yrði ónothæf, segir hv. 1. þm. Reykv. Hann veit víst eitthvað um það, hvernig sú flugbraut var fyrirhuguð. (Gripið fram í.) Ég hef lýst því yfir, já, að það mundi verða útvegað fjármagn á þessu ári til þess að hefja þessar framkvæmdir og það var komið í uppkast að framkvæmdaáætlun og svo þingreyndir menn eins og þessir hæstv. fyrrv. ráðh. ættu að vita það, að það, sem ríkisstj. ákveður að taka á framkvæmdaáætlun, verður þar. Og ég held, að þeir þurfi ekki að vera með áhyggjur af því, hvernig fjármagns til þessara framkvæmda hefði verið aflað. Ég get vel unnt hv. 7. þm. Reykv. að halda aðra skemmtiræðu, þegar hann fer að leika sér að því að hugleiða það, hvað hefði orðið að víkja fyrir þessum flugbrautarbyggingum. Ég segi nú ekki, að ég hlakki til þeirrar ræðu, en ég get vel unnt honum að halda hana. Og ég verð að segja það, að mig furðar á því, hversu óskaplega það vex þessum hv. þm. í augum að byggja þessa braut, þegar búið er að upplýsa það, að íslenzkir verkfræðingar reikna þetta á 250 millj. Hann tekur nú ekkert mark á því frekar en öðru, sem honum er sagt, en þrástagast á 500 millj. kr., sem vafalaust hefði kostað að byggja hana, ef hans ríkisstj. hefði staðið að því.

Og svo sagði þessi hv. þm., að svona væri ekki hægt að tala í sjónvarpi, segja svona hluti í sjónvarpi. Það væri fyrir sig að segja þetta á litlum fundum einhvers staðar úti í bæ eða úti á landi. En að tala það í sjónvarpið, það væri algerlega útilokað. Er þetta hans ræðumennskuaðferð, að segja ýmsa hluti á litlum fundum úti um land og svo eitthvað annað, þegar hann er kallaður í sjónvarpið? Ég hef ekki haft þennan háttinn á.

Hv. þm. sagði síðar í sinni löngu ræðu, að það væru engar deilur í Alþfl. um stefnu flokksins. Þetta sagði hann vegna þess, að einhver hv. þm. hafði sagt, að stefna Alþfl. hefði breytzt við heimkomu þessa hv. þm. frá náminu í Kaupmannahöfn. En ég var á fundi með þessum hv. þm. í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur fyrir nokkrum dögum. (Gripið fram í.) Já, já, en það voru ekki allir jafngóðir við hv. 7. þm. Reykv. eins og hann vill hér vera láta, því að þar voru miklar deilur um afstöðu Alþfl. til varnarmálanna. (GÞG: Ég sagði, að það væru uppi skiptar skoðanir í flokknum um það mál.) Já, þá á ekki heldur að segja hér, að engar deilur séu uppi um stefnu flokksins, að engar deilur séu uppi. En ég skal taka það fram, til þess að útskýra þennan málflutning, að þetta var á litlum fundi, sem þessi ágreiningur kom fram. Nei, það er áreiðanlegt, að það eru deilur í Alþfl. um afstöðuna til varnarmálanna, og það er ekkert óeðlilegt. Og hv. þm. sagði hér síðar í ræðu sinni, þegar hann var að tala um núverandi tilhugalíf og væntanlegt hjónaband þeirra, hans og hv. 3. landsk. þm., að það skipti engu máli fyrir samstarf í flokki, hver afstaðan væri til NATO.Ég get vel fallizt á þetta upp að vissu marki. En mér finnst þetta skjóta svolítið skökku við þann málflutning hjá þessum sama hv. þm., að það sé algerlega útilokað, að flokkar geti unnið saman í ríkisstj. með því að hafa mismunandi afstöðu til NATO. Það telur hann algerlega fráleitt og það hljóti að bera dauðann í sér og það fyrr en síðar. Í þessu finnst mér gæta mikils ósamræmis, eins og raunar í fleiru af því, sem sagt var hér í hv. síðustu ræðu.

Svo að ég víki að öðru atriði, sem kom fram í þessari ræðu, þá sagði hv. 7. þm. Reykv., að ég hefði rökstutt afstöðu meiri hl. ríkisstj. með því, að við vildum standa við skuldbindingar við NATO og spurði þá í beinu framhaldi af því, hvers vegna ekki hafi þá verið rætt við NATO. Hvers vegna ræddi þá utanrrh. ekki við NATO? Ég vil svara því til, að ég hef ekki rætt þetta mál við einn eða neinn. Ég hef hvorki beðið einn né annan, hvorki Atlantshafsbandalagið sjálft né Bandaríkin fyrir þess hönd né Bandaríkin fyrir þeirra eigin hönd, um að lengja þessa flugbraut. Óskin um það kom frá fyrrv. ríkisstj. og var tekin upp af stjórnvöldum Bandaríkjanna, þannig að ég hef hvorki snúið mér til Bandaríkjanna eða NATO viðkomandi þessu atriði. Hins vegar hefur það verið svo og er algerlega mál NATO og Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn hafa séð um og staðið undir framkvæmdum hér á vegum NATO. Ég vænti þess, að menn viti það, að sú stöð, sem er á Keflavíkurvelli, er NATO–stöð, þó að hún sé kostuð og rekin af Bandaríkjamönnum, þannig að ég held, að þessi fleygur, sem þarna átti að reka í málflutning minn, hafi verið heldur oddsljór. (RA: Hyggst ráðh. taka upp fleiri slík mál frá fyrrv. ríkisstj.?) Það getur vel komið til greina. Ég man nú ekki í svipinn eftir neinu, sem ég hef áhuga fyrir að framkvæma, en það má leita í leifunum og í skjóðunni og kanna það.

Já, já, það hefði auðvitað komið einhvers staðar við að lengja flugbrautina fyrir íslenzka peninga, ég neita því ekki. Og það hefði eflaust og áreiðanlega orðið að draga úr einhverjum framkvæmdum, ef við hefðum þurft að standa undir fjármögnun þessarar brautar. Því dettur mér ekki í hug að neita. Og það getur vel verið, að ég geti upplýst það síðar, hvað það er, sem ég hefði þá viljað láta bíða, vegna þess að ég álít, að flugbrautarlengingin sé framkvæmd, sem varð að fara í forgangsröð, eins og ég hef margsinnis lýst hér á hv. Alþ. og skal ekkert endurtaka um það.

Hv. 7. þm. Reykv. segir mjög oft, þegar hann kemur hér í ræðustólinn, að stefna okkar í varnarmálunum muni torvelda sókn okkar í landhelgismálinu. Ég hef ekki þessa skoðun og ég hef ekki ástæðu til þess að halda, að svo muni verða. En það má vel vera og ég rengi það ekki, sem hv. 7. þm. Reykv. segir, að hann hafi hitt einhverja menn, sem hafi látið uppi þennan ugg og hann nefndi sérstaklega Norðmenn í því sambandi. Það er alveg rétt, að það er eitt blað í Noregi, sem hefur mjög oft skrifað um Íslendinga og fyrirætlanir þeirra í varnarmálunum. Talað um, að menn ættu að skammast sín á Íslandi og aðrar ámóta fyrirsagnir. En ég hafði ekki haldið, að þetta blað væri blað skoðanabræðra hv. 7. þm. Reykv. Þetta blað heitir Morgenbladet af einhverri ástæðu, sem ég get nú ekki skilgreint, en hefur mjög áþekkan málflutning og annað blað, sem ég þekki þeim mun betur. Og það eru nú aðalskrifin, sem ég hef séð, þar sem við erum sérstaklega ávitaðir fyrir ábyrgðarleysi í varnarmálum.

Þá langar mig til þess að víkja hér aðeins með örfáum orðum að ræðu hv. 2. þm. Reykv., Geirs Hallgrímssonar. Hann talaði hér hátt og strítt, hér um bil eins djarflega og hv. 7. þm. Reykv. sem hafði metið fram að því. Hann vék mjög lítið að till. þeirra sjálfstæðismanna, en sagði þó, að hún væri lýðræðisleg. Ég hef áður vikið að þeirri röksemd og er því ekki sammála, að það séu lýðræðisleg vinnubrögð að kjósa menn í nefnd eftir því, hvort fyrir fram er vitað, hvaða skoðun þeir hafa. En þessi till. fjallar um það að kjósa nefnd manna á Alþ., sem hafa fyrir fram ákveðna skoðun, en útiloka aðra. Þetta finnst mér ekki lýðræðisleg till. og ég held, að ég þreyti ekki þm. á því að ræða hana frekar sem slíka.

Í hans ræðu var svo mikið talað um það, að við værum að svíkja samherja okkar, sætum á svikráðum við vestrænar lýðræðisþjóðir og sjálfa okkur. Og hvað er það, sem við viljum gera? Við viljum endurskoða varnarsamninginn. Það er það, sem Sjálfstfl. hefur haft á stefnuskrá sinni síðan 1956, eftir því sem formaður hans upplýsir hér. Og hv. 2. þm. Reykv. segir: Ég vil endurskoða samninginn. Hann hélt ræðu í Ottawa á þingmannafundi, sem vitnað hefur verið hér til, í sept. í fyrra. Þar sagði hann, með leyfi hæstv. forseta:

„Að sönnu er ekkert eðlilegra sjálfstæðu ríki, en að endurskoða varnarmál sín á hverjum tíma. En með hliðsjón af aukinni athafnasemi Varsjárbandalagsríkja á norðurvæng Atlantshafsbandalagsins teljum við óskynsamlegt, að Ísland verði varnarlaust.“

Með orðunum „að Ísland verði varnarlaust“ á þessi hv. þm. án efa og það leiðir af hans málflutningi, við það, að hér eigi að vera erlendur her. En með leyfi að spyrja, hvað var það þá, sem þessi hv. þm. taldi, að ætti að endurskoða, og er þetta ekki einmitt dæmi um það, að þarna er niðurstaðan fengin fyrst og talað svo um endurskoðun á eftir? M.ö.o. það, sem hann brigzlar núv. ríkisstj. um að hafa í huga og telur fráleitt. En þetta er hans hugmynd um að endurskoða varnarsamninginn: Að slá því föstu, að það sé óskynsamlegt að láta herinn fara, endurskoða samninginn svo. Þetta held ég nú, að þætti ekki mikil stjórnvizka, ef henni væri haldið fram af mér og mínum líkum.

Þá spurði hv. 2. þm. Reykv. um það, hvað hefði borizt af svörum við fsp. utanrrn. um varnarmálin erlendis frá? Ég get ekki annað en endurtekið það, sem ég sagði um daginn, fyrir u.þ.b. hálfum mánuði, að ég er fús til þess að veita utanrmn. upplýsingar um þau fáu svör, sem enn þá hafa borizt, en ég ætla ekki og mun ekki hér, þó að það kunni að valda hv. 2. þm. Reykv. vonbrigðum. telja þau upp á þessu stigi málsins.

Hv. 2. þm. Reykv. þrástagast mjög á því, að afstaða okkar í varnarmálum skaði álit Íslands erlendis, eins og fleiri hv. þm. hafa hér verið að taka upp hver eftir öðrum og hann segir, að það, sem skaði málstað Íslands, sé nú þetta, sem helzt ber að varast, að taka ákvörðun fyrir fram og kanna málið síðan. Þetta er auðvitað algjörlega rangt, þetta er algjörlega röng túlkun á málefnasamningi ríkisstj., eins og ég hef margsinnis sýnt fram á. Hv. 2. þm. Reykv. gat ekki eða vildi ekki, þó að ég bæði hann þess, segja frá því, hvaða menn það væru, sem hefðu látið þessi orð falla í eyru hans, heldur sagði: Útlendingar segja mér, að þetta sé svona. En ég hefði gjarnan viljað fá að vita, hvaða útlendingar það eru, sem tala svona við hv. 2. þm. Reykv.

Einu sinni var fræðimaður, sem að fræðimanna sið þurfti auðvitað að rökstyðja allar sínar heimildir, og þegar hann komst í þrot með rökstuðning, þá sagði hann, eins og marg sinnis hefur verið rifjað upp: „Dýrleif í Parti sagði mér, ég hafði áður sagt henni.“ Ég er ekki að segja, að þetta eigi við um hv. 2. þm. Reykv., en það væri æskilegt, að við gætum borið saman bækur okkar um það, ekki endilega hér á fundi, ekki endilega hér í heyranda hljóði, heldur þó síðar yrði, hvaða útlendingar það eru, sem tala á þennan veg við hv. 2. þm. Reykv. Ég er ekki að efa, að það geti verið, en það eru þá aðrir útlendingar en þeir, sem tala við mig, eða þá að þeir tala öðruvísi við hann en þeir tala við mig, en hvort heldur sem væri, væri þetta fróðlegt til upplýsinga.

Þá fannst mér gæta nokkurrar dylgju í minn garð og ríkisstj., þegar hv. 2. þm. Reykv. var að hugleiða það, hvort Bandaríkjamenn hefðu ekki fengið einhverja vitneskju frá íslenzkum stjórnvöldum um það, hvort tilboði þeirra yrði tekið eða ekki. Þeir hafa þó sjálfir skýrt frá því, að engar skuldbindingar og engin loforð hafi frá Íslands hálfu verið gefin í tilefni af þessari breytingu á ákvörðun hjá Bandaríkjastjórn og jafnvel þó að hv. 2. þm. Reykv. eigi bágt með að trúa mér og samherjum mínum í ríkisstj., ætti hann þó, finnst mér, að geta trúað Bandaríkjamönnum.

Síðasta spurning, sem ég tók eftir, frá hv. 2. þm. Reykv. laut að því, hvort ég hefði geð í mér, held ég hann hafi sagt, það er a.m.k. orðalag Morgunblaðsins, og ég geri ráð fyrir því, að það hafi verið þau orð, sem hann notaði, til þess að sitja í stjórn með Alþb.—mönnum eftir það, sem á undan er gengið. Ég vil segja honum það og öðrum, að það þarf engum að koma á óvart þó að skoðanamismunur sé í ríkisstj. um aðild Íslands að NATO. Það er tekið fram í málefnasamningi ríkisstj., að þessi ágreiningur sé fyrir hendi. Mér kom það þess vegna ekkert á óvart, þegar það staðfestist nú. Það var það, sem ég hafði alltaf vitað og í mínum augum hefur engin breyting þar á orðið. En ég vil nú spyrja hv. 2. þm. Reykv., hvort hann hafi lengur geð í sér til þess að þrástagast svo á þeim ræðum, sem hann hefur gert í allan vetur og mér finnst satt að segja ekki honum samboðnar og öðruvísi málflutningur, en ég hef búizt við frá honum og öðruvísi, en ég hef átt að venjast frá honum.

Ellert Schram, hv. 9. landsk. þm., hélt hér nokkra ræðu. Ég sé nú ekki ástæðu til þess að gera margt úr henni að umtalsefni. Hann minntist á það, að hann hefði tekið til máls hér um aðild Kína að Sameinuðu þjóðunum. Hann hélt um það sína fyrstu ræðu og mjög áhrifamiklu ræðu, sem ég held ég megi til með að leyfa mönnum að heyra örlitið úr svona í lokin. Þegar búið var að upplýsa það, að ríkisstj. mundi styðja aðild alþýðulýðveldisins að Sameinuðu þjóðunum, þá sagði hv. þm.:

„Ég leyfi mér að efast um, að mikil reisn sé yfir slíkri ákvörðun, að sómi Íslands vaxi af þeirri afstöðu.“ Og ræðunni lauk svona: „Ég leyfi mér að fordæma þessa afstöðu.“

Síðan tekur Morgunblaðið við. Það er 21. okt. s.l., sem þar segir í forustugrein.

„Ekki þarf frekari vitna við, framsóknarmenn og fulltrúar Hannibalslista í ríkisstj. hafa látið Magnús Kjartansson um að ráða afstöðu Íslands til þessa máls, það er ekki skoðun utanrrh., sem ræður í ríkisstj. um afstöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Samkv. yfirlýsingu annars ráðh. kommúnista er það skoðun hans, sem ræður.“

Svo skeður það, að alþýðulýðveldið Kína verður aðili að Sameinuðu þjóðunum og Nixon ákveður að fara til Kína og taka upp viðræður í Kína og þá skrifar Morgunblaðið aftur leiðara um þetta stórmál, sem enginn láir því auðvitað. Þar segir, með leyfi forseta:

„Baráttan gegn aðild Peking stjórnarinnar að Sameinuðu þjóðunum var lengi vel háð á þeim grundvelli, að það samrýmdist ekki stofnskrá Hinna sameinuðu þjóða, að hún ætti fulltrúa á þessum vettvangi, þar sem Peking stjórnin væri árásaraðili.“ Síðar segir: „Hin síðari ár hafa þessar röksemdir dugað skammt, en Bandaríkjamönnum hefur tekizt að koma í veg fyrir aðild Peking stjórnarinnar með till. um formlega meðferð málsins. Fyrir einu ári var orðið ljóst, að þessar varnaraðgerðir Bandaríkjamanna höfðu einnig gengið sér til húðar og upp frá því urðu mjög skjót umskipti í sambúð Bandaríkjanna og Kína. Hin fyrirhugaða ferð Nixons forseta til Peking er gleggsta dæmið um það“. Svo segir hér síðar:

„Bandaríkjamönnum hefur ekki tekizt að ná þeim árangri, sem þeir ætluðu og er það út af fyrir sig mikill ósigur fyrir Bandaríkjamenn. Hitt er svo annað mál, hvort þeim þykir svo leitt sem þeir láta. Með hinni hörðu baráttu, sem háð var af þeirra hálfu, sýndu Bandaríkjamenn, að þeir standa við hlið bandamanna sinna. Á hinn bóginn er ljóst, að hefðu Bandaríkjamenn farið með sigur af hólmi í þessu máli, hefðu fulltrúar Peking stjórnarinnar ekki tekið sæti Kína hjá Sameinuðu þjóðunum í ár. Hvaða afleiðingar hefðu slík málalok haft fyrir Pekingferð Nixons?“

Sem sagt, það þýðir ekkert að halda því fram, sem hér var gert, að það hefði verið hægt að fá alþýðulýðveldið inn í Sameinuðu þjóðirnar eftir leið Bandaríkjamanna og nú heyrist engin rödd um það, að það hafi orðið Íslandi til vansæmdar að stuðla að því, að stærsta ríki veraldar fengi inngöngu í Sameinuðu þjóðirnar. Ég vona það og vænti þess, að svo geti einnig farið í þeim varnarmátum, sem hér hafa verið mikið rædd, að hv. stjórnarandstæðingar, sem nú deila mjög á ríkisstj. fyrir meðferð þessara mála, þeir muni, þegar stundir líða fram, komast að því, að það var það rétta og réttasta, sem hægt var að gera.

Svo ætla ég ekki, nema sérstök tilefni gefist til, að halda fleiri ræður í þessu máli um þær till., sem hér eru til umr.