30.11.1971
Sameinað þing: 18. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í D-deild Alþingistíðinda. (4287)

70. mál, erlendir starfsmenn við sendiráð á Íslandi

Flm. (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Hæstv. utanrrh. taldi, að mér gætu ekki komið á óvart þær upplýsingar, sem utanrrn. hefur nýlega birt um tölur erlendra starfsmanna við sendiráðin hér. Ég get fullvissað hann um það, að mér kom þetta alveg á óvart. Síðan ég tók sæti á hv. Alþ. minnist ég þess ekki, að þessi mál hafi nokkurn tíma verið þar rædd og ég hef aldrei séð opinbera skýrslu um þessi mál, þannig að ég hygg, að þetta hafi ekki einungis komið mér, heldur sennilega öllum þm. eða flest öllum þm. alveg á óvart, hvernig þessum málum var háttað hjá okkur. Og ég verð að segja, að mig undrar mjög, að hæstv. utanrrh. skuli segja það hér, að hann sjái ekki, að neinn óeðlilegur fjöldi erlendra starfsmanna sé við neitt sendiráð hér á landi. Ég til tók hér eitt sendiráð áðan, sem skar sig alveg úr samkv. skýrslu utanrrn. um fjölda starfsmanna og ég verð að segja það, að ég hygg, að flestir eigi mjög erfitt með að skilja það, til hvers séu starfandi 30 erlendir starfsmenn í þessu eina sendiráði, þegar við vitum það, að önnur sendiráð, sem ekkert hafa minna umfangs hér á landi, láta sér nægja kannske 5—7 manns. En hæstv. utanrrh. telur þetta í sjálfu sér ekkert óeðlilegt og það er auðvitað hans mat á hlutunum, en mitt mat er það, að þarna sé um mjög óeðlilegt misræmi að ræða á milli hinna einstöku sendiráða hér í höfuðborg landsins.

Ég skal einnig taka það fram, að það kom mér alveg á óvart,—ég hef ekki vitað um það, —þegar blöðin birtu um það fréttir, sem ekki hefur verið mótmælt af utanrrn., að íslenzkir sendiráðsmenn væru háðir vissum kvöðum sem starfsmenn íslenzka sendiráðsins í Moskvu. Blöðin hafa skýrt frá því og því hefur ekki verið mótmælt, að þeir fengju aðeins að ferðast vissan kílómetrafjölda, 40 km, út frá miðborginni. Ég hygg, að það þættu harðir kostir hér á landi, bæði af hendi þess sendiráðs, sem ég hef hér mest rætt um og annarra sendiráða, ef starfsmenn þeirra fengju ekki nema með sérstöku leyfi, eins og gildir í okkar sendiráði í Moskvu, að ferðast t.d. austur að Selfossi eða eitthvað austur í sveitir, til þess þyrfti sérstakt leyfi íslenzkra stjórnvalda. En það hefur verið upplýst jafnframt, að þetta gilti einnig um starfsmenn annarra sendiráða í höfuðborg Sovétríkjanna og þá er ekkert við því að segja. Auðvitað hljótum við að vera háðir þeim kvöðum, sem um önnur sendiráð gilda þar, fyrst við á annað borð teljum þörf á að hafa sendiráð þar, eins og lengi hefur verið talin þörf á, jafnvel þó að þessir annmarkar væru á því, að starfsmenn þjóðarinnar þar, sem eiga að vera háðir íslenzkum lögum, skuli vera hálfgerðir fangar í sendiráði okkar í þessari höfuðborg.