17.02.1972
Sameinað þing: 39. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í D-deild Alþingistíðinda. (4313)

113. mál, aðstoðarmenn lækna í byggðum landsins

Heilbrrh. og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Ég tel að í þessari till. sé hreyft mjög þarflegri hugmynd. Ég held, að það væri tvímælalaust mjög gagnlegt, ef unnið væri að því að gefa mönnum kost á því að læra sérstaklega aðstoð við lækna í neyðartilfellum og í sambandi við ýmis minni háttar erindi, að menn verði þjálfaðir í slysahjálp og umönnun sjúkra. Hins vegar vil ég vara við því, að þetta kerfi geti komið í staðinn fyrir hina almennu heilbrigðisþjónustu, eins og raunar var tekið fram af hv. síðasta ræðumanni, að það ætti ekki að gera. Og ég tel, að í þessu sambandi muni héraðshjúkrunarkonur geta komið að einna mestu gagni fyrir okkur og raunar hefur reynslan orðið sú, að það hefur tekizt betur en menn áttu von á að fá héraðshjúkrunarkonur til starfa úti í strjálbýlinu. Raunar er kannske rétt að geta þess, að heilbrmrn. hefur farið út fyrir ramma gildandi laga að því er varðar fjölda slíkra hjúkrunarkvenna. Samkv. lækna skipunarlögum er heimilt að greiða úr ríkissjóði 2/3 launa handa allt að sex hjúkrunarkonum til slíkra starfa, en þær eru nú starfandi á eftirtöldum stöðum: Í Kleppjárnsreykjahéraði, í Borgarneshéraði, í Reykhólahéraði, í Patreksfjarðarhéraði, í Flateyrarhéraði, Suðureyrarhéraði, Hvammstangahéraði, Ólafsfjarðarhéraði, Raufarhafnarhéraði, Eskifjarðarhéraði, Hafnarhéraði og Laugaráshéraði. Og á Skagaströnd og Djúpavogi starfa nú ljósmæður em héraðshjúkrunarkonur. Ætlun rn. er sú að leggja til hér á hinu háa Alþingi, að lögunum verði breytt þannig, að fjöldi héraðs hjúkrunarkvenna verði ekki takmarkaður í lögunum og að ákveðið verði, að ríkissjóður greiði 2/3 hluta af launum þeirra, sem ráðnar eru til starfa með héraðslækni í læknishéraði, en sé héraðið læknislaust, greiðir ríkissjóður laun þessi að fullu.

Mér er kunnugt um það, að víða erlendis, þar sem er um sams konar læknaskort að ræða eins og hér, hafa hjúkrunarkonur haft ákaflega miklu hlutverki að gegna og raunar eru þær taldar vera læknis ígildi á ýmsum sviðum víða um lönd. Og ég hygg, að við þurfum að reyna að auka þetta kerfi eins og við mögulega getum, að fá héraðshjúkrunarkonur til starfa sem víðast og ekki sízt í héruðum. þar sem ekki hefur tekizt að fá lækna til fastrar búsetu. Í því sambandi vil ég sérstaklega minnast á þá hugmynd, að aðstoðarmenn lækna hafi eftirlit með lyfjabirgðum og hafi með höndum lyfjaafgreiðslu. Þarna er um mjög mikið vandaverk að ræða og ábyrgðarverkefni og naumast hægt að fela slíka starfsemi nema sérmenntuðu fólki.

Flm. benda á í þessu sambandi, að það væri ástæða til að breikka starfsvettvang ljósmæðra og nýta sérþekkingu þeirra. Að því máli hefur verið unnið í heilbrmrn. að undanförnu. Ég er alveg sammála flm. till. um það, að full ástæða sé til þess að stækka starfsvettvang ljósmæðra. Og rn. hefur unnið að því að undanförnu að gera áætlun um að gefa ljósmæðrum kost á hjúkrunarnámi, sem gæti tekið rúmlega tvö ár, þannig að þær gætu á þeim tíma lokið fullgildu hjúkrunarnámi. Hefur verið lögð sérstök námsskrá til grundvallar og er þá tekið tillit til menntunar ljósmæðra, þannig að námstími þeirra mundi styttast sem því námi svarar. Hefur rn. látið gera samanburð á námi Ljósmæðraskóla Íslands og Hjúkrunarskóla Íslands með þetta í huga og liggur sá samanburður nú hjá landlækni og hjá menntmrn. til athugunar. Heilbrmrn. hefur undirbúið þetta mál með því að afla sér sérstakrar fjárveitingar á fjárlögum, en til þess að hrinda því í framkvæmd þarf að koma til samvinna heilbrmrn. og menntmrn. og er núna samráð á milli rn. um framkvæmd þessarar hugmyndar. En með því að gefa ljósmæðrum kost á því að auka menntun sína á þessu sviði mundi vera hægt að auka fjölda hjúkrunarkvenna eða hjúkrunarfólks til mikilla muna og bæta þar úr þeim bráða skorti, sem hefur verið á þessu sviði.