17.02.1972
Sameinað þing: 39. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í D-deild Alþingistíðinda. (4314)
113. mál, aðstoðarmenn lækna í byggðum landsins
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það er ekki að ástæðulausu, að læknavandamál dreifbýlisins ber á góma hér á hv. Alþ. Það er því fagnaðarefni, að þessum málum er hreyft hér, svo mjög sem þau sverfa nú að því fólki, sem úti á landsbyggðinni býr. Það er ekkert vafamál, að öryggisleysi í heilsugæzlumálum í dreifbýlinu er stór þáttur í því ófremdarástandi, sem er brottflutningur fólks utan af landsbyggðinni hér á þéttbýlissvæðið. Ég fagna því, að þetta mál hefur nú komið til umr. og því hefur verið hreyft hér á þann hátt, sem hv. flm. og frsm. gerði grein fyrir hér nú. Ég geri mér það hins vegar alveg ljóst og tek undir þau orð hæstv. heilbrmrh., að eins og þetta mál ber að, þá leysir það ekki allan þann vanda, sem þarna er við að glíma varðandi heilsugæzlu málin. Hins vegar tel ég, að þetta sé þess vert, að það verði vel skoðað og vel á það litið, hvort þetta muni ekki að einhverju leyti geta orðið til þess að bæta úr þessu ófremdarástandi.
Ég vil hins vegar nota þetta tækifæri til þess að taka undir þær áskoranir, sem hér hafa komið fram, bæði nú í þessum umr. og áður hér á Alþ., að heilbrigðisyfirvöld og ríkisstj. öll vindi nú bráðan bug að því að gera allar tiltækar ráðstafanir til þess að bæta úr því ófremdarástandi, sem ríkir í þessum málum úti á landsbyggðinni. Það er brýn þörf, að þarna verði vel á málum haldið og snarlega til handa tekið, til þess að forðast það, að fleiri og æ fleiri einstaklingar og hópar taki sig upp kannske fyrst og fremst vegna þess ástands, sem ríkir í þessum málum úti í hinum dreifðu byggðum.