13.04.1972
Sameinað þing: 56. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í D-deild Alþingistíðinda. (4374)

176. mál, rannsóknardeild vegna sölu og neyslu fíkniefna

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs, þegar till. þessi var hér á dagskrá fyrir alllöngu síðan, hvort sem það var nú 2. marz eða einhvern annan dag. Mun ég því nota tækifærið og fara um hana örfáum orðum nú. En fyrst ætla ég að lesa till. yfir, með leyfi hæstv. forseta, fyrst svona er langt um liðið.

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að setja nú þegar á fót sérstaka rannsóknardeild til eflingar tollgæzlu, löggæzlu og annars eftirlits með innflutningi, dreifingu og neyzlu fíkniefna. Deildinni verði m.a. gert kleift að afla þeirra áhalda og tækja, sem nauðsynleg eru til skjótrar greiningar efnanna, og að þjálfa til nefndra rannsóknarstarfa sérhæft starfslið.“

Ég hygg, að flestir eða allir hv. þm. hljóti að vera efnislega samþykkir þessari till. Hitt má vera. að menn greini nokkuð á um leiðir svo sem þá, sem nefnd er, að setja nú þegar á fót sérstaka rannsóknardeild í þessu skyni. En þróunin verður vafalaust sú í náinni framtíð, að sérhæfðum löggæzlumönnum verður falið að fást við þessi mál, sérstakri rannsóknarlögregludeild.

Eins og tekið er fram í grg., var nokkuð unnið að rannsókn mála þessara á s.l. ári. Þrír menn, einn frá lögreglustjóra í Reykjavík, annar frá tollgæzlustjóra og sá þriðji frá tollgæzlunni á Keflavíkurflugvelli, unnu á þessum vettvangi um 2—3 mánaða skeið. Er mér tjáð, að þeir hafi lokið rannsókn tæpra 80 mála. Þær skýrslur og upplýsingar munu nú vera til athugunar sem grundvöllur að framtíðarstarfi á þessu sviði.

Til þess að einhver árangur náist, þarf bæði fræðslu og fjármagn og má ekkert til spara, segja margir með miklum rétti. Þetta hefur lengi verið erfitt vandamál víða um lönd. Sameinuðu þjóðirnar hafa látið það til sín taka með margvíslegum hætti, enn fremur þjóðir Atlantshafsbandalagsins og um það hefur verið fjallað á vettvangi Þingmannasambands Atlantshafsbandalagsins. En ég skal taka fram, að í þessum efnum ræði ég um ávana—, fíkn— og eiturlyf almennt án þess að greina þau nánar í hópa. Ég er ekki það kunnugur málum. Hygg ég þó, að í þessum efnum sé skeggið skylt hökunni, eitt leiði af öðru og þess vegna sé réttlætanlegt að tala um slík lyf og fjalla um þau undir einum og sama hatti.

En ég vil sérstaklega vekja athygli á því, að ég tel. að í þessu máli gefist okkur Íslendingum gott tækifæri til þess að stemma á að ósi eða a.m.k. spyrna fast við fótum með hliðsjón af reynslu nágranna okkar og frændþjóða. Það er e.t.v. of mikið sagt, að unnt sé að stöðva þennan ófögnuð, en a.m.k. setja hömlur gegn þessu eins og hægt er. Þó bendir margt til þess, að jarðvegur sé góður um þessar mundir til að spyrna fast við fótum, eins og ég gat um. Ýmsir aðilar, bæði einstaklingar og félög, hafa þegar kvatt sér myndarlega hljóðs og vakið athygli á þessum voða. Fundir og ráðstefnur hafa verið haldnar. Ég held, að handhafar löggæzlunnar muni ekki láta sitt eftir liggja í þessu stríði, ef þeim verða sköpuð skilyrði til að vinna vel. En þeir eru samt ekki mikils megnugir nema í víðtækri og góðri samvinnu við marga aðila, þar á meðal allan almenning. Það er þó eindregin skoðun mín, að með ákveðnum gagnráðstöfunum þegar í stað og öflugu viðnámi, bæði af hálfu hins opinbera, stjórnvalda, toll— og löggæzlu og alls almennings, þá megi takast að spyrna gegn þessari flóðbylgju, halda henni í skefjum meðan hún skellur yfir sem tízku fyrirbrigði og helzt af öllu gera hana algerlega útlæga úr landinu.