11.04.1972
Sameinað þing: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í D-deild Alþingistíðinda. (4427)
189. mál, menntun heilbrigðisstarfsfólks
Flm. (Oddur Ólafsson):
Herra forseti. Það var nú að sjálfsögðu ekki mín ætlun að halda því fram. að hér væri ekki menntað neitt heilbrigðisstarfsfólk. Í grg. með till. er einmitt getið um, að Tækniskóli Íslands hafi menntað meinatækna með góðum árangri og að hafin væri kennsla röntgentækna. Að sjálfsögðu hefur farið hér fram kennsla hjúkrunarkvenna og sjúkraliða í fjöldamörg ár og enn fremur margra annarra hópa heilbrigðisstarfsfólks, en það, sem á stendur, er þetta, að okkur vantar geysi margt fólk í þessar stéttir og það gleður mig að heyra, að þessi mál eru í gangi og mikið að hafzt, því að sannarlega veitir ekki af. Mér er kunnugt um það, eins og ég gat um hér áðan, að undirbúningur hefur verið í gangi alllengi að menntun sjúkraþjálfara, en það hefur gengið ósköp erfiðlega að fá þetta gert. Sömuleiðis er ég á því, að menntun félagsfræðinga og sálfræðinga eigi að vera auðveld hér á landi, þar sem við höfum bæði kennslu í almennri félagsfræði og sálfræði. Eftir því sem ég frétti, þá er það aðeins byrjun, sem hafin er að menntun sálfræðinga og þeir þurfa enn að fara utan til þess að geta stundað hér starf í klíniskri sálarfræði. Mér þykir mjög vænt um að heyra það, að þessi mál eru öll á hreyfingu og mikið að hafzt, og það var tilgangurinn með þessu að örva það einmitt og svo óska ég eftir, að till. verði vísað til allshn.