18.04.1972
Sameinað þing: 58. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í D-deild Alþingistíðinda. (4598)
258. mál, fiskihafnir
Flm. (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Fyrr í þessum mánuði horfði ég á kvikmynd í sjónvarpinu, sem fjallaði um þjóðflutningana miklu, sem urðu rómverska ríkinu að falli. Söguskýrandi myndarinnar var ekki í neinum vafa um orsök þjóðflutninganna. Orsök þeirra var leitin að gullinu. Gullið var æðsta tákn verðmæta þess tíma og er víst enn í margra hugum. Við, sem horft höfum á þjóðflutningana hér innanlands og viljum skilja þá, hljótum fyrst og fremst að gera okkur grein fyrir því, að orsök þeirra er sú sama og hinna fornu. Það er leitin að gullinu í hinum nýju myndum þess, lífsþægindunum.
Þegar ég tala um þjóðflutninga, á ég ekki við þá breytingu, að fólki fækkar í frumatvinnugreinum, landbúnaði og sjávarútvegi, og fjölgar í iðnaði og þjónustugreinum, heldur hitt, að meira en helmingur þjóðarinnar er kominn hér á Reykjanesskagann. Aðalmisskilningur margra, sem þessi mál hugleiða af fullri vinsemd að eigin sögn, liggur í því, að þeir telja legu og landgæði Reykjanesskagans forsendu flutninganna, en svo er ekki nema að litlu leyti. Aðsetur stjórnvaldanna hér á þessu svæði ásamt samþjöppun fjármála- og þjónustustarfsemi er höfuðorsök flutninganna. Þar að auki höfðu atburðir eins og síðari heimsstyrjöldin með hermámi Íslands mikil áhrif. Ranglát löggjöf á ýmsum sviðum hefur og stuðlað að fólksflutningum. Þau lög, sem ég ætla óþörfust landsbyggðinni í dag, eru hafnalögin. Þau valda lömun í þjónustustarfsemi sjávarplássanna. Mér er ljóst, að vegna hafnanna er verið að hrekja fólk úr sjávarplássum úti um allt land til Reykjavíkur, því að hver vill búa á annars og þriðja flokks þjónustusvæði? Hinu opinbera hefur nú um langt árabil gengið verr og verr að fá menn til þjónustustarfa úti á landi. Á sama tíma og gatnagerð fleygir áfram á aðalþéttbýlissvæðunum, hefur hún víða staðið í stað í sjávarplássunum og óvistleiki þeirra staða því stuðlað að því, að fólk hélzt þar ekki við, þótt það slægi til að fara út á land til reynslu.
Nú er það svo, að öll viljum við eiga veglega höfuðborg sem drottningu norðursins, en jafnframt öfluga landsbyggð, og efnahagslegt sjálfstæði landsins verður ekki tryggt nema með því að nýta landgæði landsins alls. Sjávarplássin hringinn í kringum landið eru stoðir þess efnahagskerfis, sem farsæld þjóðarinnar byggist á í dag. Sú þáltill., sem ég flyt hér, er þeim mikið hagsmunamál. Það er lykillinn að fjárhagslegum framkvæmdamætti þeirra. Ályktunin hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar, að allar fiskihafnir landsins verði gerðar að landshöfnum, en telur eðlilegt, að framkvæmd þess verði í áföngum.“
Og ég leyfi mér einnig, með leyfi hæstv. forseta, að lesa þá grg., sem hér fylgir með:
Með lögum frá Alþ. eru öllum sveitarfélögum ætlaðir sömu tekjustofnar. Það verður því að teljast réttlætismál, að þeim séu ætluð hliðstæð verkefni. Mikið skortir á, að svo sé. Fiskihafnirnar hafa tekið til sín bróðurpartinn af fjárhagsgetu sjávarplássanna og þar með orðið þess valdandi, að þjónustustarfsemi og framkvæmdir á öðrum sviðum hafa setið á hakanum. Fiskihafnirnar eru hluti af atvinnutækjum sjávarútvegsins, jafnnauðsynlegar og bátarnir og frystihúsin. Kostnaður við þær er því með réttu hluti af rekstrarkostnaði sjávarútvegsins. Þar sem vitað er, að sjávarútvegurinn greiðir opinber gjöld að fullu til jafns við aðra atvinnuvegi, ber honum og sú þjónusta af hálfu ríkisvaldsins, er hann þarfnast. Á sama tíma sem ríkisvaldið veitir sjómönnum skattfríðindi sem viðurkenningu á þjóðfélagslegu mikilvægi þeirra starfa, sem þeir vinna, er það í hrópandi ósamræmi, að sjávarplássunum, heimkynnum þeirra, er gert að skyldu að leggja svo mikið fé til hafnarmála, að fjárhagsgetu þeirra er ofboðið og önnur þjónusta lömuð. Hver vill búa á svæði, sem er þannig dæmt til kyrrsetu? Hver vill bera ábyrgð á því að dæma þessi svæði til slíkrar kyrrstöðu? Hafa þeir, sem vinna við fiskinn, eitthvað til saka unnið, er réttlætir þær aðgerðir af hálfu hins opinbera að ræna sveitarfélög þeirra svo framkvæmdagetu sinni? Ég segi nei, og þess vegna legg ég til, að þessi þáltill. verði samþykkt. Og ég vil mælast til þess, að henni verði vísað til samgmn.
Hér á eftir er svo fskj. frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga um sama málefni, og ég vænti þess, að þm. hafi kynnt sér það, og læt því ógert að lesa hér meir.