14.12.1971
Sameinað þing: 24. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í B-deild Alþingistíðinda. (463)

1. mál, fjárlög 1972

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Á fundum Alþfl. undanfarið hefur komið fram megn óánægja með það, hvernig málatilbúnaði af hálfu hæstv. ríkisstj. hefði verið hagað og þá alveg sérstaklega, hvernig undirhúningi fjárlagafrv. og allri meðferð þess hefur verið hagað. Fulltrúi Alþfl. í fjvn. hefur skýrt okkur frá því, að síðustu tillögur hæstv. ríkisstj. í sambandi við útgjöld á fjárlögum hafi komið fyrir fundi í fjvn. á fimmtudaginn var, og nú er þriðjudagur. Hæstv. ríkisstj. hefur ekki enn lagt fram í fjvn. áætlun um tekjuhlið fjárlaga. Hitt er rétt, að hæstv. ríkisstj. sýndi í gær tvö tekjuöflunarfrv. um ríkistekjur og tekjur sveitarfélaga, mikla lagabálka, sem engum manni dettur að sjálfsögðu í hug, að hægt verði að afgreiða nú fyrir hátíðar. Ég hef átt sæti á Alþ. í 25 ár og ég hika ekki við að fullyrða, að í þann aldarfjórðung hefur aldrei gerzt neitt þessu líkt varðandi undirbúning á endanlegri afgreiðslu fjárlaga. Að kominn skuli vera 14. des. og fyrir örfáum dögum hafi verið útbýtt endanlegum útgjaldatillögum af hálfu ríkisstj. eða meiri hl. fjvn., að enn skuli ekki hafa séð dagsins ljós tillögur ríkisstj. um tekjuhlið fjárlaga. Ég hika ekki við að fullyrða, að það er áreiðanlega óhætt að rannsaka, að þetta hefur ekki gerzt áður, a.m.k. ekki þann tíma, sem ég hef átt sæti á Alþ., sem þó er orðinn 25 ár. Að sjálfsögðu hefur mér ekki frekar en öðrum þm. unnizt tími til þess að athuga þau tekjuöflunarfrv., sem lögð hafa verið fram og ekki á að afgreiða áður en fjárlög verða afgreidd, en í fljótu bragði sýnist mér, að ef með þeim einum á að ná saman endum á fjárlögum, þá þurfi tekjuskattur til ríkissjóðs að gera mun meira en tvöfaldast, auk þess sem sú gjörbreyting er gerð á tekjuöflunarkerfi sveitarfélaganna, að ég sé ekki, hvernig kaupstaðir landsins eiga að ganga frá sínum fjárhagsáætlunum með sín tekjuöflunarmál í jafnmikilli óvissu og þau hljóta að verða, eftir að þessum frv. um tekjuöflun sveitarfélaga hefur verið útbýtt. Ég vek athygli á því, að þessi framkoma hæstv. ríkisstj. gagnvart hinu háa Alþ. er öldungis óvenjuleg, og í raun og veru ekki aðeins öldungis óvenjuleg, heldur einnig algjörlega óeðlileg. Ég skal engum getum að því leiða að þessu sinni, hvað þessu kunni að valda, en mér sýnist einnig sú staðreynd, að aðalfrv. hæstv. ríkisstj. um efnahagsmálin, frv. um Framkvæmdastofnun ríkisins, er enn í nefnd í hv. Nd., bera vott um, hversu mál hafa nú orðið síðbúin. Stórmál, sem ríkisstj. útbýtti í gær, var rétt áðan til meðferðar í hv. heilbr.- og félmn. Frv. um aukningu tryggingabóta, sem Alþfl. hefur lýst fullum stuðningi sínum við, kemur samt ekki fram fyrr en viku áður en þingi á að fresta fyrir hátíðar. Allt þetta ber vott um, að allur málatilbúningur af hálfu hæstv. ríkisstj. hefur verið óvenjuseint á ferðinni og óvenjuseinvirkur, og ég get ekki séð annað en þetta beri vott um tvennt: Annars vegar virðast hæstv. ráðh. ekki eiga gott með að vinna saman og hins vegar virðast þeir ekki eiga gott með að vinna með embættismönnum. Á þetta hvort tveggja legg ég sérstaka áherzlu. Það kann ekki góðri lukku að stýra, ef ráðh. geta hvorki unnið vel saman né heldur unnið vel með embættismönnum.