17.11.1971
Sameinað þing: 14. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1025 í D-deild Alþingistíðinda. (4644)

69. mál, niðurfelling fasteignaskatts af íbúðum aldraðra

Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Þessi litla till. til þál., sem hér liggur fyrir, miðar að því að auðvelda öldruðu fólki að búa sem lengst í sínum eigin íbúðum. Vegna framfara í læknisfræði og meiri heilsugæzlu, betri efnahags almennings og bættrar aðbúðar á flesta lund hefur fjöldi þeirra, sem kemst á elliár, aukizt á síðustu árum og fjöldi þeirra, sem við gott heilsufar búa í ellinni, hefur farið vaxandi. Þannig voru í Reykjavík árið 1910 aðeins 5.28% íbúanna 65 ára og eldri. Í árslok 1964 er sú tala komin upp í 8.4%, og reiknað er með því, að árið 1974 verði 10% íbúa Reykjavíkur 65 ára og eldri. Árið 1980 er gert ráð fyrir, að hlutfallstalan hafi enn hækkað að miklum mun og meira en menn höfðu áður vænzt vegna tilkomu nýrra aðgerða til þess að koma í veg fyrir fólksfjölgun. Víða um lönd er gert ráð fyrir því, að þá verði hlutfallstala aldraðra komin upp í 15% og jafnvel þar yfir. Þessi þróun hefur leitt til þess, að æ fleiri gera sér ljóst, að elliheimili í hinum gamla skilningi þess orðs er ekki lengur fullnægjandi lausn á málefnum aldraðra.

Sá hópur aldraðra fer stækkandi, sem óskar eftir og hefur heilsu til að starfa og lifa sjálfstætt, búa á eigin heimilum lengur en áður. Þannig var á Alþ. 1959 samþ. þáltill. um, að skipuð skyldi nefnd til að kanna skilyrði aldraðs fólks til þess að nota starfsorku sína. Sú nefnd komst m.a. að þeirri niðurstöðu, sem ég hygg og vona, að flestir séu farnir að aðhyllast, að ákjósanlegast væri, að aldrað fólk, sem þess æskir, gæti sem lengst dvalizt á eigin heimilum. Væri það eitt höfuðskilyrði þess, að aldraðir gætu notið starfsorku sinnar, þótt hún væri að einhverju leyti minni en fyrr á árum, sjálfum sér til ánægju og betri heilsu og þjóðfélaginu til heilla. Til þess að þetta sé unnt, eru ýmsar ráðstafanir nauðsynlegar, — fleiri en þær að búa fjárhagslega í haginn fyrir hina öldruðu. Þar til má telja heimilishjálp, þ.e. aðstoð við ýmiss konar snúninga og innkaup, erfiðustu störf í ræstingu, jafnvel matseld. Matsendingar utan úr bæ í sumum tilvikum mætti nefna í því sambandi. Þá kemur til heimilishjúkrun, sem mjög er þörf í þessu tilliti, og ýmsar félagslegar ráðstafanir til að vinna gegn einangrun hinna öldruðu. Má benda á það, að á undanförnum árum hefur Reykjavíkurborg unnið stórátak á ýmsum þessara sviða og þessum sviðum öllum raunar. Margir aldraðir borgarar þessa bæjar hafa notið góðs af. Mig langar í þessu sambandi til að benda á eitt atriði, sem ég veit ekki til, að tíðkist mjög víða enn þá, en ég held, að gæti verulega stuðlað að því, að fleiri gætu búið á sínum fyrri eigin heimilum eða þá ásamt nákomnum ættingjum heldur en ella væri, og það er dagheimili fyrir aldraða. Hér í gær voru til umr. dagheimili fyrir annan aldursflokk í þjóðfélaginu. En ég get ekki stillt mig um að skýra hv. þd. frá einu dagheimili, sem ég hef séð, fyrir aldraða. Það var rekið í Oslóborg í gömlu, stóru einbýlishúsi, 200 ára gömlu. Það hafði verið innréttað á mjög skemmtilegan hátt. Á þessu dagheimili voru 15 aldraðir borgarar, sem komu kl. 9 á morgnana. Þeir, sem þess óskuðu, voru sóttir í sérstökum smálangferðabíl, og þarna dvaldist fólkið undir umsjón hjúkrunarkonu, sem var forstöðukona. Það var e.t.v. ekki nauðsynlegt, að forstöðukonan væri hjúkrunarkona, en hún sá um, að þessu fólki leið vel í alla staði. Það sat við spil og föndur og borðaði saman í hádeginu, og síðan fór það heim eða var skilað heim kl. 5 eða 6 síðdegis. Þetta var fólk, sem óskaði þess að vera heima hjá ættingjum sínum, og ættingjarnir vildu hafa það heima hjá sér. En í mörgum tilvikum stóð svo á, að það var kannske um að ræða eina dóttur eða einn son, sem hafði hinn aldraða borgara hjá sér og þurfti að vinna úti að deginum, en sá aldraði var aftur á móti orðinn nokkuð farinn að heilsu, þannig að ekki þótti á það hættandi að hafa viðkomandi einan heima allan daginn auk þess, sem það stuðlaði að leiðindum og þunglyndi. Ég nefni þetta atriði hér, því að þetta er eitt af því merkasta, sem ég hef séð á þessu sviði, og ég held, að þetta gæti mjög komið til greina til aðleysa af hólmi að einhverju leyti hin gömlu elliheimili.

Þrátt fyrir ýmsar ráðstafanir af þessu tagi, þá fer auðvitað ekki hjá því, að það verður alltaf stór sá hópur, sem þarf á hælisvist að halda af einhverjum ástæðum. Til að skýra, hvernig stefnan er í húsnæðismálum aldraðra í nokkrum öðrum löndum, þá langar mig að nefna nokkur atriði, sem koma fram í áliti nefndar, sem starfaði að málefnum aldraðra á vegum norsku ríkisstj. og skilaði áliti um íbúðir aldraðra fyrir tæpu ári. Norska nefndin setti fram sem grundvallarstefnu í þessum málum, að bezta lausnin fyrir flest aldrað fólk væri að fá að búa sem lengst á eigin heimilum. Og nefndin benti á, að góðar íbúðir fyrir eldra fólk ásamt vel skipulagðri heimahjúkrun og heimilishjálp mundi minnka aðsóknina að elliheimilum og mundi einnig minnka ásóknina í hjúkrunarheimili og dvalarheimili. Takmarkið, sagði nefndin, að væri í fyrsta lagi, að þær íbúðir, sem fyrir hendi væru fyrir aldraða eða væri reiknað með, að aldraðir byggju í á næstu árum, þyrftu að vera af þeirri gerð, að þær hentuðu sérstaklega þörfum aldraðra, og í öðru lagi að nægilega mikið væri byggt af íbúðum fyrir aldraða með fullnægjandi útbúnaði og sem sérstaklega væri miðaður við þarfir þeirra. Í þriðja lagi, að kostnaðurinn við íbúðirnar, kostnaðurinn við að búa í þeim væri ekki hærri en svo, að hinir eldri gætu borið hann. Til að nefna aðeins höfuðstefnuna í þessu í fleiri löndum, má í stuttu máli segja, að í öllum vestur-evrópskum löndum sé það viðurkennd regla, að bezta leiðin til að hjálpa hinum eldri sé að veita þeim tækifæri til að búa svo lengi sem mögulegt er í eigin íbúðum, fremur en að hið aldraða fólk flytti á stofnanir.

Í Finnlandi ríkir sú höfuðstefna, að íbúðir aldraðra séu ekki saman í hverfum eða endilega saman í sérstökum ellimiðstöðvum, heldur sé æskilegast fyrir hina öldruðu, að þeim sé dreift sem viðast innan um annað fólk í venjulegum íbúðarhverfum. Stefnan er að fara með hið aldraða fólk sem almenna borgara í þjóðfélaginu, en ekki sérstakan einangraðan hóp. Í Frakklandi eru yfirvöldin líka andstæð því að einangra hina öldruðu hópa á sérsvæðum, jafnvel þótt það væri ódýrara heldur en hitt. Þar er talið, að slík einangrun muni gera menn andlega aldraða fyrr en þarf. Sama má segja, að stefnan sé í Hollandi, í Englandi og viða í Bandaríkjunum raunar, einnig í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Í þeim þrem löndum og Englandi eru einnig gerðar sérstakar ráðstafanir í sambandi við lán og fjárstuðning til þess að betrumbæta eldri íbúðir hinna öldruðu til að gera þær enn hæfari til þess að fullnægja þeim þörfum, sem þeir hafa sérstaklega fram yfir aðra borgara.

Ég hef getið hér um ýmis atriði, sem ég tel renna stoðum undir þá skoðun og þá stefnu, að stuðla beri að því, að aldrað fólk búi sem lengst í sínum eigin íbúðum. Kannanir, sem gerðar hafa verið á vilja hinna öldruðu sjálfra í þessu tilliti, hafa einnig leitt í ljós, að það er ósk þeirra, að svo sé gert, ef unnt er. Núna stendur yfir, eins og kunnugt er, endurskoðun á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, og reiknað er með, að vegna stórhækkaðs fasteignamats muni koma til mikillar hækkunar á fasteignaskatti. Þegar aldrað fólk, sem núna býr í eigin íbúðum, keypti íbúð sína kannske fyrir mörgum árum, þá byrjaði það að greiða ýmiss konar skatta af þessari ráðstöfun sinni, og eftir gildandi lögum á skattgreiðsla af fasteign eða a.m.k. fasteignaskattur að halda áfram alla ævi húseigandans og svo loks, er hann fellur frá, leggst á þessa sömu eign stórfelldur erfðafjárskattur. Einhvern veginn finnst mér það skjóta skökku við, að endalaust sé skattlagt það fólk, sem hefur lagt á sig mikið erfiði einhvern tíma á unga aldri eða e.t.v. á miðjum aldri til þess að eignast íbúð yfir höfuðið og m.a. til þess að skapa sér öryggi í ellinni. Það þráir að verða engum öðrum til byrði og leggur kapp á að losna sem fyrst við skuldir af þessari íbúð. Við skulum muna, að kynslóðin, sem núna er öldruð, er kynslóðin, sem hefur lagt kapp á það og metnað sinn í að skulda ekki neinum neitt. Fólk greiðir fyrst skatt af tekjunum sínum, leggur svo eitthvað af afgangstekjunum sínum í það að kaupa sér íbúð eða húseign. Það greiddi fyrir mörgum árum eignarskatt og eignarútsvar af þessari húseign, fasteignaskatt aftur og aftur og aftur, og eignarskatturinn fór hækkandi eftir því, sem skuldimar lækkuðu, þannig að það er ærin fúlga í skattgreiðslum, sem slíkir húseigendur hafa þegar greitt til hins opinbera fyrir það eitt að búa í sinni eigin íbúð, sem þeir í mörgum tilfellum eru fyrir löngu búnir að borga. Mér finnst það skjóta skökku við, ef svo loksins, þegar þetta aldraða fólk er komið á þann aldur, að það getur ekki lengur, e.t.v. vegna heilsu sinnar eða þá vegna laga um hámarksaldur starfsmanna og annarra reglna, haft þær tekjur, sem það hafði áður, ef það þarf að selja íbúð sína og leysa upp heimili sitt vegna þess eins, að hið opinbera íþyngir því með sköttum fyrir það eitt að búa í þessari íbúð. Hitt finnst mér vera sönnu nær, að það sé fjárhagslega hagkvæmt auk þess að vera almennt heilsusamlegt, það er einnig fjárhagslega léttir fyrir hið opinbera, að þetta aldraða fólk búi svo lengi sem auðið er í sínum eigin íbúðum. Það leitar þá ekki til hins opinbera um víst á stofnunum í sama mæli, svo sem hætt er við, að ella mundi vera í mörgum tilfellum, án þess að það raunverulega langaði til þess. Margir eru þannig, að þeir vilja heldur búa innan um aldrað fólk á sérstökum stofnunum fyrir aldraða. Þó eru þeir miklu fleiri, sem vilja heldur lifa áfram meira einkalífi, ef svo má segja, vera sjálfum sér nógir og búa áfram í sínum eigin íbúðum svo lengi sem heilsa leyfir og ýmiss konar aðstoð fæst til að gera það kleift.

Ég vil skýra frá því, að mér hefur dottið í hug í sambandi við þessa till., að til þess að hún kæmi að enn meira liði við að framkvæma þá stefnu, sem ég hef hér í huga, að gera hinum öldruðu kleift að búa sem lengst í eigin íbúðum, þá hefði komið til greina að mínum dómi einhvers konar ívilnun í sambandi við skatta af leiguíbúðum, sem aldrað fólk býr i. Ég hafði látið mér detta í hug, að slík ívilnun gæti verkað í raun sem lækkuð húsaleiga fyrir hina öldruðu, en mér er ljóst, að það er mun örðugra að framkvæma þetta en það, sem hér er farið fram á og liggur beint við að taka inn í þær till., sem lagðar munu verða fyrir Alþ. um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, en það er, að þær eigin íbúðir aldraðra, sem vel að merkja eru notaðar til íbúðar fyrir þá sjálfa, séu undanþegnar fasteignaskatti. Núna er þetta svo um ýmiss konar stofnanir eins og elliheimili, og mér sýnist ekki minni ástæða til þess, að það gildi einnig um íhúðir, sem hinir öldruðu sjálfir hafa lagt á sig það erfiði að eignast.

Ég þykist mega vænta þess, að flestir hv. þm. styðji í raun og veru þá stefnu, sem fram kemur í þessari till., og vonast til þess, að hv. þd. samþykki þessa till., þannig að tekið verði tillit til hennar við þá endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga, sem nú fer fram.

Ég leyfi mér svo, herra forseti, að gera till. um það, að umr. um till. verði frestað og henni verði vísað til heilbr.- og félmn.