14.12.1971
Sameinað þing: 24. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í B-deild Alþingistíðinda. (465)

1. mál, fjárlög 1972

Frsm.1. minni hl. (Jón Árnason):

Herra forseti. Frsm. meiri hl. fjvn. hefur nú gert grein fyrir þeim brtt. við fjárlagafrv., sem fjvn. flytur sameiginlega við 2. umr. málsins. Ég tel, að flestar þessar till. séu þess eðlis, að þær séu nauðsynleg breyting á fjárlagafrv. og fram hornar af n. eftir nákvæma yfirvegun á þeim 36 fundum. sem hún hefur haft málið til meðferðar.

Ég vil þegar í upphafi máls míns þakka formanni n. og nm. öllum fyrir gott samstarf í n. og tei. að öll vinnubrögð þar, að því er varðar hina venjulegu athugun á fjárlagafrv., hafi verið mjög góð.

Eins og brtt. n. bera með sér, vantaði mikið á, að fjárlagafrv. væri þannig úr garði gert af hendi ríkisstj., að viðunandi mætti teljast. Þegar frv. var lagt fram í byrjun þings, voru niðurstöðutölur þess tæplega þrem milljörðum kr. hærri en í gildandi fjárlögum. Verði þessar tillögur n. samþykktar, sem hún hefur leyft sér að bera fram, hækkar frv. enn um 764 millj. kr. og nemur þá heildarhækkunin 3 milljörðum 71 í millj. kr. Er því hér um algert met að ræða hvað viðkemur hækkun fjárlaga á einu ári. Hér verður þó varla látið staðar numið, því enn liggur hjá n., eins og hv. frsm. gat um, fjöldi erinda, sem hún á óafgreidd, og a.m.k. sum þeirra eru þess eðlis, að ekki verður hjá því komizt að veita einhverja úrlausn. Til viðbótar þessu er svo um að ræða, eftir því sem okkur hefur verið tjáð, upphæðir, sem skipta hundruðum millj. kr., en þar mun viðbótarframlag til almannatrygginga nema hæstri upphæð. Þá er einnig vitað um ýmsa aðra útgjaldapósta, sem verulega munu hækka útgjaldahlið fjárlagafrv. Þegar þannig er ástatt, stendur fjvn. frammi fyrir þeirri staðreynd, að þrátt fyrir gífurlega hækkun tekna, sem í frv. er áætluð, þá er greiðsluhallinn orðinn yfir 700 millj. kr. Það er svo fyrst í gær, sem ríkisstj. lætur útbýta hér á hv. Alþ. frv, til l. um breyt. á I. um tekjuskatt og eignarskatt og um tekjustofna sveitarfélaga og frv. um almannatryggingar. Hér er um svo mikla lagabálka að ræða, að ríkisstj. getur varla ætlazt til, að Alþ. afgreiði þessi frv. nú fyrir jól. enda hefur hæstv. forsrh. nú skýrt frá því, að svo sé ekki. Það verður því að gera fastlega ráð fyrir því, að hæstv. ríkisstj. fresti endanlegri afgreiðslu fjárlagafrv. á meðan Alþ. gerir sér efnislega grein fyrir þessum frv. Önnur vinnubrögð væru með öllu óafsakanleg og ég ætla, að þegar svo stendur á, að engin löggjöf er fyrir hendi, sem tryggi þá tekjuöflun, sem nauðsynleg er til að mæta jafngífurlegri útgjaldahækkun og hér er stefnt að, þá séu þess ekki dæmi í allri þingsögunni, að fjárlög séu afgreidd við slíkar aðstæður. Ég vil því mega vona, að hæstv. ríkisstj. ætli sér ekki að knýja í gegn afgreiðslu fjárlagafrv., áður en þau tekjuöflunarfrv., sem nú hafa verið lögð fram, hafa hlotið þinglega meðferð og hæfilega könnun. Taki ríkisstj. hins vegar þá ákvörðun að knýja fram afgreiðslu fjárlagafrv. undir þessum kringumstæðum, þá væri ekki óeðlilegt að álykta, að það væri nokkuð til í því, sem sagt hefur verið um vinnubrögð ríkisstj., að hún ákveði og framkvæmi hlutina fyrst, en ætli svo að athuga málin á eftir.

Ég vil þessu næst víkja nokkuð að fjárlagafrv. Hæstv. fjmrh. hefur á undanförnum árum við slík tækifæri sem þetta haldið því fram, að fjárlögin væru spegilmynd af efnahagsstefnu þeirrar ríkisstj., sem að þeim stendur. Undir þessi orð hæstv. fjmrh. vil ég taka, og tel að svo hafi verið. Ég tel því vafalaust, að hæstv. ráðh. sé mér sammála um, að þessi fjárlög núv. ríkisstj., þau fyrstu, sem hún sendir frá sér, séu þá spegilmynd af þeirri efnahagsstefnu, sem sú ríkisstj. hyggst marka sem framtíðarstefnu í efnahagsmálum þjóðarinnar. Fyrir aðeins ári síðan sagði hæstv. fjmrh. í sambandi við hækkun, sem þá átti sér stað á fjárlögum, - en þar var um minni hækkun að ræða en nú á sér stað, — ráðh. sagði, að sér fyndist það allsögulegur viðburður að afgreiða fjárlög á verðstöðvunartímabili með slíkri hækkun sem þá átti sér stað. Ég vil því spyrja hæstv. ráðh., hvort hér sé þá ekki að hans dómi um enn sögulegri viðburð að ræða í sambandi við afgreiðslu þessa fjárlagafrv., sem nú þegar slær öll fyrri met, og að hann verði enn sögulegri við 3. umr. málsins, þegar koma til viðbótar hundruð millj. kr., sem þá væri gert ráð fyrir að enn bættust við upphæðina. Við vitum, að í dag gildir verðstöðvun og að ríkisstj. hefur framlengt þær ráðstafanir fyrst um sinn til áramóta. Hvað við tekur þá, vitum við að vísu ekki annað um í dag en það, sem fram kemur í fjárlagafrv., en þar er lagt til að verja miklum mun meiri fjármunum en áður til niðurgreiðslu á vöruverði eða um 1 650 millj. kr. Ósamræmið, sem er á milli fjárlagafrv., sem nú er til umr., eða gerðar þess, og margyfirlýstrar gagnrýni núv. stjórnarflokka, þegar þeir voru að ræða um fjárlög fyrri ára og það fjármálasukk, sem að þeirra dómi átti sér stað, verður bezt séð með því að lesa stuttan kafla úr nál. þeirra frá síðasta þingi, en þar segir svo, með leyfi forseta:

„Þessi hækkun er stórfelldari en dæmi eru til í sögu íslenzkra fjárlaga, og það svo, að öll fyrri met á því sviði hverfa sem dögg fyrir sólu.“

Mér er spurn, hvað hefðu þessir hv. þm. sagt um fjármálasukkið og útþenslumetið, sem þetta fyrsta fjármálafrv. vinstri stjórnarinnar setur, ef það hefði komið frá fyrri ríkisstj.? Það eru e.t.v. einhverjir hv. alþm., sem hugsa sem svo: Það hlýtur að vera um einhverjar óvenjulega miklar fjárveitingar að ræða til nýrra framkvæmda og efnda á kosningaloforðum fyrrverandi stjórnarandstöðuflokka frá síðustu kosningum, sem valda þessari miklu hækkun, eða tæpum 3 þús. millj. kr. Ég hef leitað um allt fjárlagafrv. eftir svari við slíkri ályktun, sem ég tel fyllilega eðlilega, en því miður hef ég komizt að þeirri niðurstöðu, að til þessara ástæðna sé ekki að rekja hækkanirnar nema að mjög óverulegum hluta, eða innan við 10% af allri hækkuninni. Það munu vera um 279 millj. kr., sem varið er til þess, sem kallað er gjaldfærður stofnkostnaður, byggingarstyrkir, þar með talin framlög til fjárfestingarsjóða, rafvæðing í sveitum og annað, sem telst til nýrra fjárfestinga. Allt annað fer þá sennilega til þess, sem hv. fyrrv. stjórnarandstæðingar mundu hafa kallað útþenslu í ríkiskerfinu. Ef haldið er áfram lýsingum fyrrv. stjórnarandstöðuflokka á hinum ýmsum liðum fjárlagafrv., vil ég enn vísa til ummæla þeirra í nál. frá síðasta þingi, sem hæstv. fjmrh. var frsm. fyrir, en þar segir m.a. svo: „Fjárlagafrv. fyrir árið 1971 er undirlagt af áhrifum verðbólgunnar, eins og sjúklingur af skæðum sjúkdómi. Yfir 1 100 millj. kr. er varið til niðurgreiðslna á vöruverði.“ Ja, minna mátti það ekki vera, þvílíkt var heilbrigðisástandið. Hvað mætti þá segja um þetta fjárlagafrv. til samanhurðar, þar sem lagt er til að verja 1 650 millj. kr. í sama skyni, — ég skil vart, að sjúklingurinn eigi sér nokkra lífsvon. Hitt er svo annað mái. sem rétt er að taka með í reikninginn, þegar rætt er um ný fjárlög, en það er viðskilnaður fyrrv. ríkisstj. á efnahagssviðinu og staða ríkissjóðs við stjórnarskiptin. Svo sem kunnugt er, voru fjárlög yfirstandandi árs afgreidd með rúml. 270 millj. kr. greiðsluafgangi. Eftir þeim upplýsingum, sem nú liggja fyrir, þegar þessu fjárhagsári er að ljúka, bendir allt til þess, að tekjur ríkissjóðs á yfirstandandi ári verði allt að 1 200–1 300 millj. kr. hærri en þær eru áætlaðar í fjárlögunum. Í slíku góðæri væri því ekki óeðlilegt að álykta, að staða ríkissjóðs hjá Seðlabankanum væri mjög hagstæð. Þessu mun þó því miður ekki þannig farið. Ef borin er saman staða ríkissjóðs á viðskiptareikningi hans við Seðlabankann 30. nóv. s.l. og svo aftur, hver hún var á sama tíma á s.l. ári, kemur í ljós, að 30. nóv. 1970 er skuld ríkissjóðs á viðskiptareikningnum 316 millj. kr., en nú mun skuldin hins vegar vera um 629 millj. kr. Ríkissjóður hefur því þrátt fyrir hina góðu afkomu hlaðið upp nýjum skuldum við Seðlabankann, sem nema rúmlega 300 millj. kr. Þessar staðreyndir ber ríkisstj. að viðurkenna, og engin ný ríkisstj. hefur tekið við blómlegra þjóðarbúi en núv. ríkisstj., enda gat hún viðstöðulaust og að því er virtist án nokkurrar umhugsunar ausið hundruðum millj. kr. úr ríkissjóði til þess m.a. að sýna hv. kjósendum, að nú væru stjórnmálaflokkar setztir að völdum, sem ætluðu að standa við kosningaloforðin.

Þessi hagstæða afkoma ríkissjóðs leyfði ríkisstj. m.a. að halda áfram verðstöðvuninni til áramóta og láta einnig koma til framkvæmda lög um auknar lífeyris- og örorkubætur, sem samþ. voru á siðasta Alþ., en áttu annars að taka gildi um næstu áramót. Hvor tveggja þessara málaflokka átti fyllsta rétt á sér, og her að fagna því, að fjárhagsafkoma ríkissjóðs var með þeim hætti, að þetta var framkvæmanlegt.

Til viðbótar hinni hagstæðu þróun ríkissjóðs inn á við er svo þess að geta, að gjaldeyrisvarasjóðurinn, sem var að fullu uppurinn í lok vinstristjórnartímabilsins á árinu 1958, var nú um 4 000 millj. kr., eða einhver sá öflugasti, sem um getur nokkru sinni áður. Þá er það ekki lítils virði. ef til þess kæmi, að eitthvað harðnaði á dalnum fyrir útflutningsatvinnuvegunum, að hafa lagt til hliðar nokkurn hluta af hinu óvenju hagstæða söluverði sjávarútflutningsafurðanna, sem verið hefur að undanförnu. Láta mun nærri, að í verðjöfnunarsjóðum sjávarútvegsins séu nú um 900 millj. kr., og er þá inn komið lítið eitt meira fyrir útfluttar afurðir en til 1. ágúst s.l. Allt þetta ber vissulega vott um hyggilega fjármálastjórn, sem er ómetanlegur arfur fyrir hina nýju ríkisstj., ef hún hefur framsýni og gæfu til að hagnýta á þjóðhollan hátt, en spilar ekki öllu út í vanhugsuð ríkisafskipti og ráðleysi, eins og því miður margt bendir til, að verði hlutskipti hinna nýju stjórnarherra.

Þensla í stjórnarráðinu, ríkisbákninu yfir höfuð, var oft kærkomið umræðuefni núv. stjórnarflokka á meðan þeir enn voru í stjórnarandstöðunni. Ekkert bendir til þess, að þeir ætli að vera sjálfum sér samkvæmir í þessum efnum frekar en öðru, eftir að þeir eru nú komnir til valda. Launagreiðslur til nýrra embættismanna nema tugum millj. kr., og er það allt utan þess, sem telja verður eðlilegt, t.d. í sambandi við fjölgun kennara, sem á sér alltaf stað í sambandi við fólksfjölgun og aukna kennslu. Mest er þó hækkunin í sjálfu stjórnarráðinu, en þar nemur hækkunin á milli 60 og 70 millj. kr. Þessi útþensla, sem nú á sér stað í ríkiskerfinu, var augljós strax í sumar, eftir að vinstri stjórnin tók við. Allt virtist stefna í eina átt: gerviráðherrum var hrúgað upp, og varla leið sá dagur á fyrstu vikum ríkisstj., að ekki fréttist um einhver ný ráð eða nefndir, sem búið var að setja á laggirnar, skipaðar pólitískum gæðingum. Allt virðist því nú stefna í eina átt og bera að sama brunni og hjá hinni fyrri vinstri stjórn: ábyrgðarleysi og ráðleysi í efnahagsmálum samfara stórauknum afskiptum hins opinbera á athafnasviðinu.

Á hinu fyrra tímabili vinstri stjórnar hér á landi var það ógæfa þjóðarinnar, að til forustu völdust menn, sem ekki höfðu yfirsýn yfir málin. Í einstöku góðæri sigldu þeir þjóðarskútunni í strand og hrökkluðust síðan frá völdum. Að dómi forsrh. þeirrar stjórnar blasti þá ekkert annað við en algert gjaldeyrishrun, og hengiflug óðaverðbólgu var á næsta leiti. Það kom því í hlut viðreisnarstjórnarinnar að veita þjóðinni þá stjórnarforustu, sem dugði, — rétta við og endurheimta glatað lánstraust erlendis og hyggja upp að nýju öflugan gjaldeyrisvarasjóð. Eins og opinberar skýrslur bera með sér, hefur og reyndin verið sú, að allt þetta tímabil hefur þjóðarauðurinn stóraukizt, og það, sem enn meira máli skiptir fyrir allan almenning, er sú staðreynd, að daglaunafólk hefur fengið stærri skerf í sinn hlut af heildarverðmætisaukningunni en áður hefur átt sér stað.

Með júnísamkomulaginu svo nefnda og svo aftur með launasamningum á síðasta ári hafa verið stigin stærstu skrefin í þá átt að tryggja verðgildi þeirra kjara, sem um hefur verið samið. Án þess að til kæmu þær ráðstafanir, sem verðstöðvunin var byggð á, hefðu á ótrúlega skömmum tíma runnið út í sandinn atlar þær kjarabætur, sem um var samið, og þar til viðbótar hefði þá einnig skapazt slíkt verðbólguástand, að fullvíst má telja, að atvinnuvegirnir hefðu ekki getað rönd við reist, en af því hefði leitt, að samdráttur hefði orðið í atvinnulífinu með þeim óheillaafleiðingum, sem því fylgja. Það veltur því einnig á þessu sama nú sem fyrr í sambandi við þá kjarasamninga, sem nú eru nýafstaðnir. Og því er eðlilegt, að ríkisstj, sé spurð, á hvern hátt hún ætli að mæta þeirri verðlagsþróun, sem hlýtur að sigla í kjölfar þeirra samninga, sem nú hafa átt sér stað á hinum almenna launamarkaði. Það mun talið nokkurn veginn gefið dæmi, að kostnaðarauki atvinnuveganna hvað kaupgjald snertir muni fara stígandi á öllu samningstímabilinu, og eftir að öll samningsákvæði eru komin til framkvæmda verði hækkunin sem næst 62%, en þá er allt meðtalið, bæði vinnutímastyttingin og hækkun orlofs. Það hefur hjálpað atvinnuvegunum að undanförnu, hvað verðlagsþróunin hefur verið hagstæð. Verðlag í okkar viðskiptalöndum hefur hækkað mjög mikið, sem kunnugt er, á undanförnum árum, en nú eru þær fréttir nýjastar í þeim efnum frá einni okkar helztu viðskiptaþjóð, Bandaríkjunum, að þar komu til framkvæmda seint á síðastliðnu sumri ný lög, þar sem allt verðlag á innlendum markaði er fastbundið. Til að byrja með gilti þetta ákvæði í 6 mánuði, en nú er að hefjast annað slíkt tímabil, sem einnig er með takmarkanir hvað verðlag snertir. Hvaða áhrif þessi afskipti opinberra aðila í Bandaríkjunum kunna að hafa á markaðsverð framleiðsluvara okkar verður að vísu ekkert sagt um í dag, en hitt er staðreynd, að hér eru á ferðinni aðgerðir, sem ekki er ósennilegt að hafi einhver áhrif á okkar framtíðarviðskipti við þessa þjóð.

Í framhaldi af því, sem ég hef þegar rætt um nýgerða kjarasamninga, vil ég spyrja hæstv. fjmrh. um það, hvernig ríkisstj. hyggst mæta þeim kaupkröfum, sem opinberir starfsmenn hafa sett fram og telja sig eiga rétt á samkv. kjarasamningum. Verði þar um einhverjar grunnkaupshækkanir að ræða, — ég tel, að það muni vera rætt um 14%. — verður að sjálfsögðu að taka það með í reikninginn og áætla fyrir því. Eða telur ríkisstj„ að opinberir starfsmenn eigi ekki samningsbundinn rétt til að fara fram á kauphækkun, sem byggð er á þeirri kaupbreytingu, sem átt hefur sér stað í samningum milli verkalýðsfélaganna og atvinnurekenda nú í byrjun þessa mánaðar? Hér er um mál að ræða, sem æskilegt væri, að hæstv. fjmrh. gæfi upplýsingar um. Þá er þess að geta, að í öllum þeim tillögum, sem fjvn. hefur gert og varða verklegar framkvæmdir, hefur í kostnaðinum verið byggt á því kaupgjaldi, sem í gildi var hinn I. sept. s.l. Svo sem kunnugt er, er nú þegar um verulega kauphækkun að ræða, og þegar slíkt hefur átt sér stað áður en fjárlög hafa verið afgreidd, hefur það venjulegast verið áætlað og miðað við einhverja prósentu og þá tekin inn í fjárlög upphæð til að mæta þeim aukna kostnaði. Varðandi skattvísitöluna, en á undanförnum árum hefur verið harðlega gagnrýnt af hæstv. fjmrh. og m.a. núv. formanni þingflokks Framsfl., að henni hafi verið haldið óhóflega niðri af fyrrv. fjmrh., þá vil ég nú spyrjast fyrir um það, hvort tillagna sé að vænta frá ríkisstj. um að gera hér nokkra breytingu á frá því, sem nú er í fjárlagafrv., en þar er lögð til grundvallar 6.5 stigs hækkun eða nákvæmlega það sama sem svarar til framfærslukostnaðarauka s.l. árs.

Í sambandi við Fiskveiðasjóð Íslands þá er framlag til sjóðsins í frv. 35 millj. kr., og er það samkvæmt gildandi lögum og þá að sjálfsögðu sem lágmarksframlag. Enginn bannar Alþ., ef það vill svo við hafa, að veita þar nokkurn viðbótarstyrk, að slíkt geti átt sér stað. Það hefur komið fram í umr. um þann kafla ríkisstjórnarsamningsins, sem veit að því, að ríkisstj. muni beita sér fyrir, að vextir verði lækkaðir af stofnlánum og lánstími verði lengdur. Ég vil taka það skýrt fram, að ég tel, að það sé mjög æskilegt, að þetta ákvæði stjórnarsáttmálans komi sem fyrst til framkvæmda, og eftir því sem hæstv. sjútvrh. hefur tjáð, er þess að vænta, að þetta ákvæði komi til framkvæmda um næstu áramót. Mér skilst þó, að þessi breyting ætti einungis að ná til nýrra lána, sem veitt yrðu eftir áramótin, hitt væri allt of flókið, að breytingin næði einnig til eldri lána. Nú er það svo, að lenging lána hjá Fiskveiðasjóði er ekkert nýtt mál. slíkt hefur oft átt sér stað áður. Það hefur gerzt, þegar sérstaklega hefur verið erfitt í ári hjá sjávarútveginum, og það jafnan í því formi, að felld hefur verið niður afborgun lána í 2–3 ár eftir ástæðum, en vextina hafa menn jafnan þurft að greiða. Varðandi vexti af eldri lánum, þá getur það nú varla talizt flókið mál að koma á þar einum ákveðnum vaxtastofni. Hitt er annað mál, hvort sjóðurinn er fær um að veita slíka allsherjarlækkun vaxta, en vissulega væri æskilegt, að úr því væri bætt, úr því að rætt er um vaxtalækkun á annað borð, að þá gætu viðskiptamenn Fiskveiðasjóðsins átt þess kost að sitja allir við sama borð hvað þetta snertir. En hvort heldur sem er, að lenging lána eða lækkun vaxta verður látin ná yfir lengra eða skemmra svið sjóðsins, þá hlýtur það að hafa nokkur áhrif á starfsmöguleika hans. Ég vil því leyfa mér að spyrja hæstv. fjmrh., hvort þess sé ekki að vænta, að ríkisstj. geri tillögur um aukið framlag til Fiskveiðasjóðs, því vissulega standa mál hans þannig með tilliti til hinna miklu verkefna, sem bíða og fram undan eru í sambandi við togara- og aðrar fiskiskipabyggingar, að ástæða er til að gera nú stórt átak til að efla Fiskveiðasjóðinn.

Þá vil ég minnast á aðra fjárveitingu, sem einnig snýr að sjávarútveginum og fé hefur á undanförnum árum verið veitt til í fjárlögum, en nú er engin tillaga um í frv. Hv. formaður fjvn. hefur þó tjáð mér, að það mál sé til athugunar. Hér á ég við hinn svo kallaða línustyrk, en það er kunnara en frá þurfi að segja, hvers virði það er hinum ýmsu verstöðvum í landinu, að unnt sé að halda úti línuveiðum. Þýðingu þessarar útgerðar fyrir atvinnulífið í sjávarplássunum má helzt sjá á því og vitna til þess, að sveitarfélögin sjálf hafa stundum veitt fjárframlög til stuðnings og örvunar á þessum atvinnurekstri. Þegar styrkur þessi var fyrst veittur, nam hann 25 aurum á hvert fiskkíló upp úr sjó. Var það gegn því skilyrði, að fiskkaupendur greiddu jafnmikið á móti. Síðan hækkaði styrkurinn með sömu skilyrðum upp í 33 aura á kíló. Á yfirstandandi ári hefur styrkurinn verið 33 aurar frá ríkissjóði en 50 aurar frá fiskkaupendum, og kemur þessi verðuppbót til viðbótar hinu umsamda fiskverði. Það hefur þó verið sá galli á gjöf Njarðar í þessum efnum, að styrkurinn hefur ekki náð til línuveiða yfir allt árið. Þar hefur fallið niður tímabil yfir sumarið. Vissulega væri það æskilegt, að allir, sem línuveiðar stunda, sitji hér við sama borð með tilliti til þess mikla kostnaðarauka, sem að undanförnu hefur att sér stað og þá sérstaklega í sambandi við stórhækkað heituverð, auk þess sem er sameiginlegt hjá allri útgerð. Eins og ég áðan sagði, vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. fjmrh„ hvort þess sé ekki að vænta, að ríkisstj. geri till. um það til n., að inn verði tekinn liður um fjárveitingu í þessu skyni og þá í samræmi við það, að unnt verði að greiða a.m.k. 50 aura á hvert kíló.

Eitt er það mál enn, sem ég vil minnast á í sambandi við afgreiðslu fjárlaga og sem lýtur að sjávarútvegi, en það er framlagið til Aflatryggingasjóðs. Um nokkur undanfarin ár hefur framlag til sjóðsins á fjárlögum verið nokkuð lægra en lög um Aflatryggingasjóð gerðu upphaflega ráð fyrir. Um þessa framkvæmd hefur oft verið deilt og því haldið réttilega fram, að hér sé um svo áhættusaman atvinnurekstur að ræða, að ekkert sé meira áríðandi í okkar þjóðarbúskap en að ekki komi til þess, að sjávarútvegurinn stöðvist eða að þeir menn, sem þessa atvinnu stunda, fái ekki laun sín greidd. Með það fyrir augum að forða slíku ástandi voru lög um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins sett. Á hverju ári hefur til þess komið, að einhver eða einhverjar verstöðvar hafa vegna aflabrests orðið að sækja um styrk til sjóðsins. Sem betur fer hefur reynslan verið sú nú um langt árabil, að sjóðurinn hefur verið fær um að greiða þær bætur, sem lög og reglugerð varðandi bæturnar kveða á um, en eins og ég áðan sagði, þá er sjávarútvegurinn svo áhættusamur og oft sveiflukenndur atvinnurekstur, að mikið getur oltið á því, að slíkur sjóður, sem hér um ræðir, komist ekki í greiðsluþrot. Ég vildi nú, eins og á undanförnum árum við sama tækifæri, leyfa mér að spyrjast fyrir um það, hvort hæstv. fjmrh. vill ekki, á sama hátt og fyrrv. fjmrh. hefur gert, gefa þá yfirlýsingu, að ef til þess kæmi, að sjóðurinn yrði ekki fær um að standa við skuldbindingar sínar eftir sömu reglum og gilt hafa um bótagreiðslur úr sjóðnum. þá muni hann beita sér fyrir því, að sjóðnum verði tryggðar nægilegar viðbótartekjur. Slíka yfirlýsingu tel ég fullnægjandi, en jafnframt tel ég hana nauðsynlega.

Ég mun nú fara að stytta mál mitt, enda þótt ástæða væri til að minnast á margt fleira við afgreiðslu þessara fjárlaga, sem á margan hátt má telja, að séu með einstökum hætti. Hvort tveggja er, að hér er um að ræða fjárlög, sem eiga engan sinn líka í þingsögunni hvað viðkemur útþenslu fjárlaga á einu ári, og einnig hitt, að sjaldan hafa jafnmargir liðir fjárlagafrv. verið óráðnir, þegar fjárlagafrv. hefur verið lagt fram, eins og nú á sér stað. Það er með tilliti til þessa, sem við fulltrúar Sjálfstfl. í fjvn. höfum tekið þá ákvörðun við þessa umr. málsins að flytja ekki fleiri brtt. við frv. en þær, sem við stöndum að og n. flytur sameiginlega við þessa umr., en um þær till. vil ég segja það, að þær eru flestar þess eðlis, að þar er um brýn viðfangsefni að ræða, sem ekki verður á frest skotið.

Þá er það einnig með tilliti til þess, sem ríkisstj. hefur boðað og nú lagt fram á Alþ„ lagafrv., sem marka munu gagngerar hreytingar á skattaálögum og öðrum tekjustofnum ríkissjóðs, sem fela munu í sér stórauknar álögur á þjóðina, og sem ég tel nauðsynlegt, að Alþ. hafi gert sér fulla grein fyrir áður en fjárlög fyrir árið 1972 verða afgreidd. Ég vil því vænta þess, að þau vinnubrögð, sem ég hef áður vikið að, varðandi afgreiðslu fjárlagafrv. verði viðhöfð.