14.12.1971
Sameinað þing: 24. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í B-deild Alþingistíðinda. (466)
1. mál, fjárlög 1972
Frsm. 2. minni hl. (Jón Árm. Héðinsson):
Herra forsetl. Ég ætla að leyfa mér fyrst að leiðrétta eina smávægilega villu í nál. mínu á bls. 4. Við greinaskil á miðri bls. stendur: „Þingmenn munu aðeins sjá nýju skattalögin“, en á auðvitað að standa „skattafrv.“ o.s.frv., og síðar, „sem í frv. felst“.
Ég tel ástæðu til þess að byrja þessa ræðu mína með því að þakka formanni og öðrum nm. fyrir gott starf á hinum 36 fundum, sem n. hefur setið sameiginlega. Þar hafa erindi verið rædd, og nm. hafa einnig fengið á fundi til sín forstöðumenn ríkisstofnana, sem hafa greint frá fjármálum viðkomandi stofnana og þörfum þeirra fyrir framlag úr ríkissjóði. Þessir fundir hafa jafnan verið fróðlegir, og með okkur fjvn.- mönnum hefur Gísli Blöndal hagsýslustjóri verið. Hann hefur veitt ýmislegar upplýsingar og aðstoðað við afgreiðslu mála. Auk þessara sameiginlegu funda hafa undirnefndir starfað. Ég hef ekki átt kost á því að starfa með þessum undirnefndum og kann því ekki að segja frá starfi þeirra. Þessar undirnefndir hafa tekið fyrir stóru málaflokkana, svo sem skóla-, hafna- og sjúkrahúsamálin og fjárveitingar til þeirra. Það var þó einkennandi fyrir suma þessa málaflokka, að tillögur varðandi þá komu mjög seint, og mun það hafa átt sér stað áður. Það er raunar ekki boðlegt að leggja fyrir nm. rétt fyrir 2. umr. svona viðamiklar tillögur. Á þessu þarf að verða gagnger breyting. Svo mun einnig gilda um fleiri stofnanir hjá ríkinu. Viðkomandi ráðh. verða að gera þessum stofnunum ljóst, að erfitt verður að sinna beiðnum þeirra, ef ekki er nægilega snemma gerð grein fyrir fjármagnsþörfum. Einnig er það undarlegt, að ýmsir aðilar víða á landinu skuli hafa möguleika á því að senda inn erindi til fjvn. allt fram að umr., — þessarl. Ég vil mælast til þess við hæstv. fjmrh., heyri hann mál mitt, að ákveðin tímasetning verði sett um skil erinda. Það verður að gefast nokkurt tóm fyrir nm. að lesa yfir erindin, svo að réttmæt athugun fari fram á beiðni, sem í erindunum er, áður en til afgreiðslu kemur. Einnig er bráðnauðsynlegt að breyta um fyrirkomulag afgreiðslu erinda eða stilla þeim upp, ef svo má segja, það er að sjá, um hvers konar fjármagn er sótt, hvort hér sé um viðbótarfjárveitingu að ræða eða nýtt fjármagn. Á þetta hef ég bent í fjvn. og formaðurinn kom inn á þetta, og hefur hann tekið vel undir þessa hugmynd. Þetta mun flýta fyrir skipulegri vinnu og tryggja það, að erindi fái eðlilega afgreiðslu, en ekki sé á málaleitan tekið með flausturssömum vinnubrögðum. Núv. formaður fjvn. lýsti þessu hér áðan, eins og hann hafði áður gert á fundum n., og þakka ég honum fyrir.
Um aðild mína að till. meiri hl. er það að segja, að hún er með sama hætti og venja hefur verið um afgreiðslu í n. undanfarin mörg ár. Formaður ber upp ákveðna till. og aðrir nm. fallast á till. hans. Ég tel mig hafa óbundnar hendur um fylgi við aðrar till., sem fram kunna að koma við þessa umr. og þá þriðju. Þetta tel ég rétt, að komi fram þegar nú við 2. umr., því vissulega hefur tíminn verið mjög naumur, sem við í stjórnarandstöðunni höfum haft til þess að kanna ýmis erindi, er komið hafa til fjvn. Okkur hefur ekki gefizt tækifæri til þess vegna tímaleysis að fara með ýmsar afgreiðslur í fjvn. inn í þingflokkana og kynna þær þar, hvað þá að ræða málin, eins og eðlilegt væri. Þetta veit ég, að er nú sérstaklega erfitt vegna þess skamma tíma, sem líður á milli 2. umr. fjárlaga og 3. umr., en það verður aðeins um vikutími eða varla svo. Fjvn. á sameiginlega eftir að koma með nokkrar till. í viðbót í sambandi við afgreiðslu við 3. umr., en engu að síður mun þm. almennt gefast mjög naumur tími til þess að athuga um till., sem gerðar hafa verið og gefa þeim sjálfum tækifæri á því að bera fram brtt., og formaður undirstrikaði það áðan, að sú tilhneiging er mjög rík að taka þetta vald, sem Alþ. hefur og fjvn. til að fjalla um þessi mál á sjálfstæðan hátt.
Hæstv. ríkisstj. gerði í aths. með fjárlagafrv. grein fyrir því, að samkvæmt hennar mati hefði skammur tími verið til undirbúnings fjárlaga og þess vegna væru fjárlög með mjög mikil einkenni frá fyrti ríkisstj. E.t.v. voru nokkur rök í þessari staðhæfingu, en í dag er ekki hægt að bera við sífelldu tímaleysi og afsaka undarleg vinnubrögð með því, að ekki hafi gefizt tóm til að athuga málin. Ríkisstj. gerði mjög langan málefnasamning 14. júlí, þegar hún kom til valda. 1 þessum samningi er fjallað um fjölmarga þætti efnahagslífsins, og þ. á m. er lögð áherzla á að taka eigi nú af festu á móti verðbólgunni. Það er staðreynd, að nú við 2. umr. fjárlaga vantar veigamiklar upplýsingar um, í hverju þetta stóra átak til hemlunar á verðbólgunni á að vera fólgið. Augljóst er, að fjárlög munu hækka mikið á annan milljarð í meðferð Alþ. Þegar eru till. fjvn. með hækkunum um 763 millj., eins og þegar hefur verið gerð grein fyrir, og vitað er, að verulegar hækkanir munu koma fram fyrir atbeina ríkisstj. sjálfrar. Ekkert liggur fyrir um breytingar á niðurgreiðslum á vöruverði, og með hvaða hætti á að takast á við þann vanda. Ekkert liggur fyrir um vinnulaunahækkunina í rekstri ríkisins, og hvernig á að mæta slíkri hækkun á komandi ári. Ekkert liggur fyrir í fjvn. um stöðu ríkissjóðs við Seðlabankann né hefur grg. um framkvæmda- og fjáröflunaráætlun fyrir árið 1972 verið lögð fram, eða á nokkurn hátt verið gerð grein fyrir því, hvernig fjármagna á mörg stór verkefni, sem bíða næsta árs og ríkisstj. verður að ráða bót á með einu eða öðru móti, ef framkvæmdir eiga ekki að stöðvast. Ljóst er af þessari upptalningu, að hér er um einstæð vinnubrögð að ræða við afgreiðslu fjárlaga, og kunnugir menn segja mér, að svo hafi varla verið áður. Hér jaðrar við lítilsvirðingu á störfum Alþ. að haga sér þannig. Hæstv. ríkisstj. getur ekki boðið þm. upp á slík vinnubrögð, og alþjóð verður að vita, hvað verið er að aðhafast í þeim herbúðum.
Það, sem núv. stjórnendur gagnrýndu mjög fyrrv. ríkisstj. fyrir, var seinagangur í ýmsum málum, sérstaklega þó, þegar atvinnuleysi var og harðnaði á dalnum í þjóðarbúskap okkar árin 1967 og 1968. Nú hefur allt atvinnulíf verið með miklum blóma á yfirstandandi ári, verðlag gott á útflutningsvörum og innflutningur gífurlega mikill. Eftirspurn eftir fjármagni er með langmesta móti og þó hefur sparifé aukizt verulega. Mikil spenna er á vinnumarkaðinum, peningaskortur er gífurlegur vegna ákafa í mikla fjárfestingu, þar sem menn óttast nú óðaverðbólgu og það að marggefnu tilefni. Það átti þó að verða aðalsmerki þessara hv. herra að koma í veg fyrir, að óðaverðbólga skylli hér á, og markið var ekki hátt sett, en þó nægilega hátt sett, þ.e. verðbólgan hér skyldi fara með svipuðum hraða og gerðist í nágrannalöndunum. Fróðlegt verður að sjá, hvernig ganghjólið hér heima snýst í samanburði við það, sem gerist t.d. á Norðurlöndunum. Í málefnasamningnum góða segir, að ríkisstj. muni beita sér fyrir „aðgerðum í peninga- og fjárfestingarmálum og ströngu verðlagseftirliti.“ Ekkert hef ég heyrt, að bóli á endurskipulagningu í verðlagseftirlitinu. Það er þó nauðsynlegt, ekki dreg ég úr því, allra sízt á svona verðþenslutímum. Aðgerðirnar í peningamálunum eru einnig undir yfirborðinu, ef undan er skilið útboð á spariskírteinunum, þessum 200 millj. Stjórnarandstæðingar höfðu mælzt til þess, og það lagði ég sérstaklega áherzlu á við stuðning við frv. í Ed., að öll þessi upphæð yrði ekki boðin út í desember, sérstaklega þar sem það mundi koma illa við allan almenning í sambandi við smávíxlaþjónustu í viðskiptabönkunum einmitt nú á þessum árstíma og Eins vegna þess, að engin grein hefur verið gerð fyrir ráðstöfun á þessum peningum af hálfu hæstv. ríkisstj. Ekki var hlustað á þetta. Það mun líka mála sannast, að þessa upphæð á að nota til þess að sýna betri stöðu ríkissjóðs við Seðlabankann nú um áramótin. í samtölum við forsvarsmenn launþega og einnig forsvarsmenn atvinnuveitenda um lausn kjaradeilunnar kom skýrt fram, að verðlag mundi hækka meira eða minna vegna samninganna. Ekki er vitað enn, hvað þetta vegur mikið inn í vísitöluna, né heldur eru neinar upplýsingar veittar um, hversu mikið fé verður veitt í niðurgreiðslur á komandi ári. Í fjárlagafrv. eru 1635 millj. ætlaðar í niðurgreiðslur, en það mun hvergi nærri duga til þess að halda verðbólgunni innan þeirra takmarka, sem ríkisstj. telur eðlilegt, samanber málefnasamninginn sjálfan. Allur rekstrarkostnaður við landbúnaðinn mun stórhækka. Vandamál við verðlagningu hans eru og hafa verið mikil. Því er heitið í samningnum góða að taka verðlagninguna til endurskoðunar, og stefnt skal að því, að Stéttarsamband bænda semji beint við ríkisstj. um kjaramál sín. Þetta er vægast sagt hæpið og kann að draga þungan dilk á eftir sér fyrir ríkissjóð. Það er mikið álitamál. hvort rétt sé að veita einni stétt í landinu þau forréttindi að geta samið beint við ríkissjóð um kjaramál sín. Bændastéttin er alls hins bezta makleg, það vil ég undirstrika, en fordæmi, sem gefið er með því, að ríkisstj. á hverjum tíma komi til móts við Stéttarsambandið og semji þannig beint um kjaramál. er mjög hæpið. Það kann að leiða til þess, að aðrir starfshópar, aðrar stéttir í þjóðfélaginu, sem vissulega vinna mikilvæg störf engu siður en bændur landsins, geta með tilvitnun í þetta fyrirkomulag sagt: Við skulum semja beint við ríkisstj. um okkar kjör. Slíkt getur orðið mjög erfitt fyrir hvaða ríkisstj. sem er, og er mjög óskynsamlegt að taka upp slík vinnubrögð. Í sambandi við málefni bænda er rétt að vekja athygli á því alveg sérstaklega, að tillaga kom fram um auknar útflutningsbætur um 48 millj. kr., en í fjárlögum eru þær þegar 275 millj. kr., og eiga því að hækka upp í alls 323 millj. Aðspurður sagði form. fjvn., að þetta byggðist á mati um útflutning, en ekki var þetta mat nánar skýrt né heldur greint frá því, hvaða aðilar önnuðust þetta mat. Mörgum manninum mun koma þetta nokkuð spánskt fyrir sjónir. Sérstaklega er þetta undarlegt, þegar margsinnis hefur verið sagt, að bændur hafi nú sett á meiri bústofn en oftast áður vegna góðs árferðis. Hvað mundi nú ske, ef árferðið væri undir meðallagi og útflutningur væri bráðnauðsynlegur í reynd? Þetta sýnir, hvað óhjákvæmilegt er, að þessi útflutningsmál og verðlag á útflutningslandbúnaðarafurðum sé tekið til gagngerðrar endurskoðunar, og þjóðin á heimtingu á því að fá góða grg. um, hvernig staðið er að þessari verðlagningu og hvernig þessum uppbótum er dreift. Það verður að athuga gaumgæfilega, hvaða skynsemi felst í því, að við séum að halda hér uppi dýrri framleiðslu á vissum landbúnaðarvörum, sem síðan eru seldar úr landi sem ódýrar neyzluvörur fyrir ákveðin lönd. Sérstaklega þarf að athuga þetta, þar sem allir viðurkenna, að vissir bændur hafi rýra afkomu, og nauðsynlegt er að hjálpa þessum aðilum til þess að halda búum sínum eða a.m.k. til að hafa sómasamleg lífskjör. Ég sé ekki betur en þetta kerfi beri dauðann í för með sér fyrr eða síðar, og í svipaðan streng tók fyrri ræðumaður hér áðan, eða síðasti ræðumaður, að ekki sé öllu lengur hægt að halda áfram við svo búið. Ég tel, að það sé öllum fyrir beztu, að þetta sé tekið til rækilegrar yfirvegunar og málið lagt hér fyrir hv. Alþ. og það fái að fjalla um þetta kerfi á eðlilegan hátt. Það er vitað, að skoðanir eru mjög skiptar í þessu efni, en lausnin verður ekki fundin, sérstaklega fyrir bændurna sjálfa, með því einu að stinga hausnum í sandinn.
Í samningnum góða segir m.a., að ríkisstj. muni heita sér fyrir ýmsum ráðstöfunum í efnahagsmálum, og eru þar talin upp 8 atriði. Sumt er þegar að komast í framkvæmd, þ.e. lækkun á vöxtum á stofnlánum og lenging lánstíma, endurkaupalán Seðlabankans hafa verið hækkuð og vextir af þeim lækkaðir. Hins vegar hefur ekki frétzt um, að endurskoðun hafi átt sér stað varðandi ýmiss konar álögur, sem hvíla á framleiðsluatvinnuvegunum, eða þessar álögur verði lækkaðar eða felldar niður, eins og segir í samningnum. Fimmta atriðið, sem upp er talið í þessum flokki, er hreyting á söluskattinum, þ.e. að hann verði felldur niður af ýmsum nauðsynjum. Ríkisstj. hefur þegar fellt niður söluskatt af vissum nauðsynjum. Engu að síður hvílir söluskatturinn enn á fjöldamörgum neyzluvörum og væri fróðlegt að vita, hvort áformað er að taka hann af fleiri vöruflokkum en nú er í dag. Þetta mun auðvitað rýra tekjur ríkissjóðs, og vil ég undirstrika það, að meðan við vitum ekki um tekjuöflunarhliðina, þá veldur þetta nokkrum áhyggjum, hversu fjárlög eigi að vera há gjaldamegin, því undarlegt er að standa að stórhækkunum á útgjöldum, á meðan ekki er vitað nokkurn veginn, hvað stíla má upp á háa tölu í heildartekjum ríkissjóðs. Einnig er nauðsynlegt í þessu sambandi að fá vitneskju um, hversu mikið á að taka í tekjustofn til ríkissjóðs í beinum sköttum eða hvort ríkisstj. hyggst taka enn stærri hluta í óbeinum sköttum, þ.e. í gegnum söluskattinn eða aðra hliðstæða skattheimtu. Það er auðvitað rétt, eins og fram hefur komið áður í umr. hér á hv. Alþ. um fjárlög undanfarin ár, að söluskatturinn sem slíkur hækkar rekstrarvöru fyrir framleiðsluna um jafnháa upphæð og hann nemur, en verði hann lækkaður, mun ríkissjóður engu að síður þurfa jafnháar tekjur í einu eða öðru formi. Hvernig þeirra tekna verður aflað, án þess að það snerti þessar framleiðslugreinar, sem um hefur verið rætt að borgi ekki söluskattinn, væri fróðlegt að fá vitneskju um, og hvernig hæstv. ríkisstj. hugsar sér lausn á því dæmi. Það, sem auðvitað skiptir meginmáli í þessu öllu saman, er, að rekstrarskilyrði séu trygg fyrir framleiðsluna sjálfa, jafnframt því sem ríkissjóður hafi nægilegt fjármagn og nægilegar tekjur til þess að halda uppi eðlilegri starfsemi sjálfur og tryggja eðlilegt atvinnulíf í landinu, og einnig að nægilegt fjármagn sé fyrir hendi, sem veitt sé sem stofnlán til fyrirtækja. Útgjöld vegna rekstrarþáttarins munu fara vaxandi í ríkisbúskapnum vegna þess launaskriðs, sem í gangi verður á næsta ári, og mjög erfitt er að gera sér grein fyrir því á þessu stigi, hve sú tala verður há. Það var auðheyrt á mörgum forstjórum ríkisfyrirtækja, sem komu í heimsókn til fjvn. og ræddu um fjárhag stofnana sinna, að þeir óttast, að það fjármagn, sem veitt er til aukinna rekstrarútgjalda, hrökkvi ekki til og viðkomandi stofnun muni, þegar líður á árið, verða í nokkrum peningavandræðum. Vegna þessarar óvissu er eðlileg sú tilhneiging hæstv. fjmrh. að hreyta svo skattalögunum og tekjuöflunarmöguleikum ríkissjóðs, að hann fái nokkurn veginn öruggar tekjur fyrir næsta ár. Þegar slík breyting á sér stað, sem er jafn umfangsmikil og boðað hefur verið, er mikil óvissa fram undan, og erfitt er fyrir hv. alþm. að gera sér grein fyrir því, hvað spenna má bogann hátt við afgreiðslu fjárlaga. Við í stjórnarandstöðunni viljum þó vara mjög eindregið við því að gera slíka byltingu í skattalöggjöfinni á svo stuttum tíma og með svo skammri athugun sem hér virðist vera á málum. Skattamálin eru mjög viðkvæm mál, og þau snerta því sem næst hverja fjölskyldu í landinu. Það skiptir því miklu máli, að vel takist til, þegar um grundvallarbreytingu er að ræða í skattkerfinu. Það, sem verður að tryggja, er, að láglaunafjölskyldur séu ekki skattpíndar. Allir flokkar hafa lýst því yfir, að þeir vilji koma í veg fyrir slíkt.
Nálengd skattabreytingu er breyting á almannatryggingalöggjöfinni. Mikil breyting var gerð á almannatryggingalögunum af fráfarandi ríkisstj. síðastliðið vor, áður en Alþ. hætti störfum. Þessi lög áttu að taka gildi um næstkomandi áramót, en gildistöku þeirra var flýtt, þar sem í ljós kom, að staða ríkissjóðs var góð og viðskil fráfarandi ríkisstj. með ágætum. Það ber að þakka, að gildistöku laganna var flýtt. Í gær var svo lagt fram frv. um breytingu á lögum um almannatryggingarnar. Þar er um verulega breytingu til batnaðar að ræða, og munum við í Alþfl. styðja frv. sem heild. Augljóst er, að útgjaldaaukning vegna þessa mun verða hátt í 600 millj. á næsta ári og hugsanlega meiri, eftir því hvernig launahækkunin verður látin vega á tryggingabæturnar. Ekki hef ég getað gert mér grein fyrir því, hversu hátt framlag ríkissjóðs verður vegna þessa, en augljóst er, að um mörg hundruð millj. verður hér að tefla til viðbótar því, sem þegar hefur verið samþ. til hækkunar. Ég geng út frá því, að fjölskyldubæturnar muni hækka hlutfallslega eins og aðrar bætur, — tryggingaráð hefur þegar samþ. það fyrir sitt leyti. Þegar breyting var til umr. í vor á almannatryggingalögum, lýsti þáverandi heilbr.- og trmrh. yfir því, Eggert G. Þorsteinsson, að yrði hann áfram eða Alþfl. við völd, mundu þeir stuðla að hliðstæðri jafnhárri breytingu fyrir fjölskyldubæturnar, — en hvað mundi ske nú?
Jafnframt frv. um almannatryggingarnar voru lögð fram frv. um tekjustofna sveitarfélaga og tekju- og eignarskatt. Hvor tveggja eru þessi frv. stór í sniðum, og enginn tími er til þess að kanna þau gaumgæfilega fyrir þessa umr. Það er yfirlýst, að hvorugt þeirra á að fá afgreiðslu nú fyrir þinghlé, og mun því gefast svigrúm til þess að skoða þau vel síðar og ræða, hvað í þeim felst. Ég sakna þess þó, að þegar jafn umfangsmikil breyting er gerð á skattalögum, þá skuli ekki fylgja í grg. ýmsar áætlanir, sem byggðar eru á staðreyndum síðastliðins árs og sýna hver hreyting verður eftir nýju frv. Þetta mundi mjög auðvelda þm. athugun á því, hvað felst í frv. Þetta mundi mjög auðvelda þm. athugun á því. hvað felst í frv. Ekki er sanngirni að ætlast til þess, að menn sjái það í sjónhending, hvaða tekjur komi í hlut sveitarfélaga eða ríkissjóðs samkvæmt því, sem hér er lagt til. Á bls. 18 í frv. um tekjuöflun sveitarfélaga segir þó. „að tekjuöflun sveitarfélaganna sé vel borgið.“ Þó er viðurkennt, að þetta geti komið nokkuð misjafnt niður, og er varla við öðru að búast. Þetta frv. boðar því varla neina skattalækkun fyrir almenning. Hins vegar virðist manni, að um einfaldari skattheimtu verði að ræða og heppilegri í framkvæmd og með minni sveiflum milli ára eftir árferði. Það er mikils virði fyrir sveitarfélögin og íbúa þeirra.
Ég ætla mér ekki þá dul að hefja hér gagnrýni eða lof um tekjuskattsfrv. Slíkt væri byggt á of skjótri athugun. Ég vil heldur vænta þess, að hæstv. fjmrh. geri þessu frv. mjög góð skil í framsöguræðu sinni fyrir því og hlutist til um það, að þm. fái útreikninga, sem sýna, hver áhrif frv. eru miðað við ýmis raunveruleg skattframtöl á árinu 1970 og eins á yfirstandandi ári. Það ætti að vera mögulegt. Ég tel við fyrstu sýn, að margt sé hér vel hugsað, og vil ekki kveða upp dóm um það við svo búið. Hitt mun ég ætla, að Eins og með tekjustofna til sveitarfélaga þá sé einnig vel fyrir tekjum ríkissjóðs séð hér. Ef svo væri ekki, má segja, að mikið ábyrgðarleysi væri fólgið í afgreiðslu fjárlaga, bæði af hendi fjvn. og eins í tillöguflutningi annarra þm. Ég vil vekja athygli á því, að allt útlit er til þess, að hækkun skatta í einu eða öðru formi þurfi að nálgast 4 milljarða frá fjárlögum 1971 vegna fjárlaga 1972. Þetta þýðir hvorki meira né minna en allt að um 100 þús. kr. gjald á meðalfjölskyldu í landinu. Þetta hefði nú einhvern tímann verið gagnrýnt af núv. stjórnarherrum og verið talið æðisgengin skattpíning af núv. stjórnarandstöðuflokkum. (Forseti: Ég vil spyrja hv. þm., hvort langt sé eftir af ræðu hans.) 7 mínútur, 5–7 mínútur. (Forseti: Það er rétt, að við gerum þá hlé á fundinum nú. Hann hefst aftur kl. 4.40.) — [Fundarhlé.]
Því miður, eins og ég sagði áðan, vantar okkur enn allar áætlanir um tekjustofna ríkissjóðs, miðað við hvað frv. boðar, og er það slæmt, vægast sagt. Ég vildi vonast eftir því, að fjvn. yrði gefinn kostur á því að sjá, þó ekki væri nema í stórum dráttum, hvað frv. kann að gefa af sér í tekjur fyrir ríkissjóð við ákveðnar forsendur. Þetta tel ég óhjákvæmilegt, að gert sé. Raunar eiga allir þm. rétt á því, að slíkt yfirlit komi fram nú. Ég vona, að ekki verði brugðið við tímaleysi enn einu sinni.
Ég vildi, að slík áætlun sýndi eftirfarandi: Í fyrsta lagi: persónuskatta á grundvelli framtala 1970; í öðru lagi: eignarskatta á sama grundvelli; í þriðja lagi: tekjuskatta á sama grundvelli; í fjórða lagi: aðra skatta, sem skipta einhverju verulegu máli eftir frv., á sama framtalsgrundvelli. Mér finnst svo ekki ástæða til þess að fjalla meira um þetta tekjuskattsfrv. að sinni.
Mjög hefur það verið rætt hér á hv. Alþ. og einnig utan þess, hvernig spara megi í ríkisrekstrinum með aukinni hagsýni og endurskipulagningu. Nokkuð er unnið að þessu og hefur verið gert, en hér þarf að koma til skipuleg sókn og framkvæmdir sem fyrst. Ríkissjóður er langstærsti atvinnuveitandi hér á landi og hefur auk þess mjög fjölþætta þjónustu á sinni könnu. Almenningur gerir kröfu til þessarar þjónustu. Einnig, að hún sé lipur og góð. Þetta krefst oft mikils mannafla, sem hefur þó ekki alltaf fullt verkefni vegna mismunandi álags og eftirspurnar í þjónustugreininni. Um þetta hugsar fólk almennt ekki. Hins vegar eru menn oft fljótir til að gagnrýna ríkið, eins og sagt er, eða starfslið þess, ef menn verða varir við, að ekki er hver hönd að starfi. Hér er raunverulegt vandamál á ferðinni. Sem dæmi má nefna, að á vegum ríkisfyrirtækja eru rekin mörg viðgerðarverkstæði, sem hljóta að hafa mjög misjafnt álag eftir árstíðum og framkvæmdum. Ýmsar tillögur hafa verið ræddar um endurskipulagningu við verkstæðin, en einhvern veginn miðar hér hægt. Hér er þó verk að vinna fyrir fjmrn. og hagsýsluna.
Ég vil ekki spá neinu um, hve aukin hagræðing kann að draga úr rekstrargjöldum hjá ríkissjóði, en ekki væri nema eðlilegt, að fjvn. fengi að sjá tillögur um úrbætur, og það fyrr en síðar. Því miður er sá andi til innan um í starfsliði ríkisins, að ekki sé nein sérstök dyggð að spara fyrir ríkið. Ábyrgð og skyldur ríkisstarfsmanna er mikil, og nú hafa laun þeirra verið hækkuð verulega, — sumir segja of mikið. Hvað sem því líður, þá er hitt augljóst, að þá kröfu verður að gera til hvers og eins starfsmanns hjá ríkinu, að hann fari vel með fjármuni ríkisins og gæti eðlilegs sparnaðar í hvívetna. Þetta er nauðsynlegt ásamt skynsamlegu og réttmætu aðhaldi frá viðkomandi rn. Með þannig sameiginlegu átaki til sparnaðar og ráðdeildar fyrir ríkið, tel ég, að draga megi verulega úr útgjöldum fyrir ríkissjóð. Það á að vera ánægjulegt markmið, sem við ættum allir að geta stefnt að.
Herra forseti. Ég mun ekki taka fyrir hinar einstöku breytingar, þar sem venja hefur verið, að það geri form. fjvn. og frsm. hennar, og hefur hann gert þeim góð skil. Við í minni hl. höfum varla möguleika á öðru en að fjalla um fjárlögin í stórum dráttum og benda á ýmsa þætti þeirra, sem okkur finnst athugaverðir. Við munum, eins og ég sagði í upphafi, þó standa að brtt. og höfum um það óbundnar hendur, þótt við séum þegar aðilar að veigamiklum hækkunum á fjárlagafrv.
Húsnæðismál ríkisstofnana hefur oft borið á góma. Ekki hef ég handbærar upplýsingar um, hversu mikið fé ríkið greiðir í húsaleigu, en það mun nema mörgum milljónum, jafnvel nokkrum tugum milljóna. Skynsamleg lausn á þessu vandamáli er eitt brýnasta verkefnið fyrir ríkissjóð í dag. Þegar þess er svo gætt, að geysileg verðbólga er fram undan, þá má öllum ljóst vera, að þessi liður getur ekki annað en stórhækkað, þar
sem leigusala mun vilja fylgja byggingarvísitölunni. Það sannast nú hér sem fyrr, að dýrast er að vera fátækur. Sú stefna ætti að vera ákveðin, að ríkið byggi á hverju ári yfir starfsemi sina fyrir ákveðna upphæð, eða ákveðna rúmmetra í húsnæði. Það tel ég vera hagsýni, sem skilar sér inn fyrr en síðar.
Mér þykir ástæða til þess að drepa aðeins í fáum orðum á fjárframlög til Landhelgisgæzlunnar. Sérstök fjárveiting, um 20 millj., kemur miðað við 1. sept. 1972. Forstjóri Landhelgisgæzlunnar, Pétur Sigurðsson, kom á fund n. og gerði grein fyrir þörfum hennar. Augljóst var af orðum hans, að þeir munu ekki hafa nægilegt fé, ef ganga á út frá því, að um raunverulega gæzlu eigi að vera að ræða eftir 1. sept. Þótt þetta sé viðkvæmt mál. er tilgangslaust að þora ekki að ræða það hér. Ef nota á öll skipin og flugvélar til viðbótar, þá verður stóraukið fé að koma til. Það minnsta, sem unnt er að gera nú, er að hafa heimild til verulegra aukinna útgjalda. Í varðskipið Þór kemur t.d. ný vél, og mun það kosta nálægt 50 millj. kr. Í fjárlagafrv. er ekki gert ráð fyrir, að m.s. Albert sé neitt í rekstri og að m.s. Árvakur verði aðeins hálft ár í rekstri. Þegar að útfærslunni kemur, verður sannarlega þörf fyrir allan flota okkar. Það er ekki aðeins þörf á gæzlu við 50 mílurnar, heldur einnig hjá okkur vegna fyrirkomulags í veiðihólfum og ýmislegrar annarrar þjónustu, sem Landhelgisgæzlan veitir. Þetta þarf að hafa í huga.
Ingvar Hallgrímsson, forstöðumaður Hafrannsóknastofnunarinnar, kom á fund til okkar. Samkv. grg. hans er fjárveiting gjörsamlega í lágmarki og hrannast upp rannsóknargögn, sem ekki er unnt að vinna úr vegna manneklu. Fjvn. hefur hækkað fjárveitingu til Hafrannsóknastofnunarinnar, svo að m.s. Hafþór er tryggður allt árið í rekstri og auk þess er séð fyrir fjórum sérfræðingum í viðbót. En Alþ. hefur sent til þessarar stofnunar margar þál. undanfarið, og ef þetta eiga ekki að verða aðeins pappírsplögg, þá verður hv. Alþ. að gera mönnum kleift að rannsaka það, sem áskorun er gerð um. Annað ber keim af sýndarmennsku.
Rekstur Skipaútgerðar ríkisins er og hefur verið erfiður. Augljóst er, að tap verður áfram, sem nemur mörgum tugum millj„ og þarf að gera róttækar breytingar til úrbóta þar. Eins er enn ólokið uppgjöri á smíðaverði skipanna beggja, Heklu og Esju, samkv. upplýsingum forstjórans og ekki vitað, hvert verð þeirra verður endanlega. Hörð deila er um þetta atriði milli Ríkisskipa og Slippstöðvarinnar. Óhjákvæmilega þarf að tryggja aukið fé í þessu sambandi, hvort sem er í reksturinn eða til greiðslu á kaupverði skipanna.
Rétt þegar fjvn. var að ganga frá till. sínum, kom erindi frá fjmrn. vegna fjárhagsvandræða Slippstöðvarinnar á Akureyri. Þar er farið fram á marga tugi millj. til viðbótar því fé, sem áður var sett í þetta fyrirtæki. Gert er ráð fyrir, að ríkissjóður verði eignaraðili í stærri stíl en áður var. Nú hafa hv. alþm. fengið skýrslu um rekstur fyrirtækisins, og vægast sagt eru þetta hroðalegar niðurstöður og hörð gagnrýni á stjórnendur þar. Ég tel þó, að flestir eða allir séu á einu máli um það, að þetta fyrirtæki megi ekki lognast út af. En hér þarf að athuga vel, með hvaða hætti ríkissjóður gengur inn í fyrirtækið og hvernig fyrri eigendur þess koma til með að hafa áhrif á reksturinn. Eins og er, er Slippstöðin raunverulega gjaldþrota.
Einnig var hliðstætt erindi frá rn. um aukið framlag til Siglufjarðar og að ríkið gerðist þar stærri eignaraðili í rekstri fiskvinnslu og útgerðar en verið hefur. Á þessum stað er því miður hörmulegt atvinnuástand, og hjálp er því óhjákvæmileg. Verði þessi erindi samþykkt, mun það hækka fjárlög eða heimildir um nokkra tugi millj. til viðbótar.
Herra forseti. Ég fer nú senn að ljúka máli mínu. Í nál. minni hl. í fyrra, en núverandi meiri hl., voru sem rauður þráður ásakanir á þáv. ríkisstj. vegna óðaverðbólgu, og tínd voru fram ýmis dæmi þessu til sönnunar. Ekki ætla ég að rifja það meira upp en gert er í nál. mínu, en það vil ég nú að lokum í ræðu minni segja og spyrja um leið, hvort þeir sjái ekki verðbólgueinkenni í þessu fjárlagafrv. sínu. Hvort þeir sjái ekki óðaverðbólgueinkennin í því að hafa eytt öllum umframtekjum ríkissjóðs á yfirstandandi ári, og gera má ráð fyrir því, að umframtekjurnar verði umfram áætlun í fjárlögum allt að 1 200 millj. kr. Hvort þeir sjái ekki verðbólgueinkennin í því að skila ríkissjóði nú með mínus, eftir slíkt árferði sem nú er. Það eru engin rök né afsökun að bera fyrir sig fráfarandi ríkisstj. vegna þessarar umframeyðslu.
Í fögnuði sínum yfir unnum kosningasigri veittu þeir birtu á báðar hendur, eins og segir í vísunni um Luktar-Gvend, en hvað lengi mun loga á týrunni, það er hin stóra spurning dagsins í dag.