14.04.1972
Neðri deild: 61. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1049 í D-deild Alþingistíðinda. (4661)

208. mál, Tækniskóli Íslands á Akureyri

Flm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður, enda hæfir það ekki, að ég sé að lengja þessar umr. eða tefja á nokkurn hátt, því að ég hef áhuga fyrir, að málið geti komizt þegar til n. Mig langar samt til þess að minnast á ein tvö eða þrjú atriði, sem komið hafa fram í umr., aðeins örfáum orðum, en að öðru leyti hef ég engu við það að bæta, sem hv. samþm. mínir, þeir hv. 3. þm. Norðurl. e. og hv. 5. þm. Norðurl. e., hafa nú nýlega sagt um þetta mál.

Ég vil leyfa mér að vekja athygli á því sérstaklega, áður en málið fer til n., að það er alls ekki verið að slá því föstu með þeirri stefnuyfirlýsingu, sem orðuð er í till., að engin tækniskólakennsla fari fram í Reykjavík, heldur er beinlínis gert ráð fyrir því, að það verði tekið til athugunar að starfrækja hér í Reykjavík hæði undirbúningsdeild og sérstakar bekkjardeildir, þó að aðalskólinn eða miðstöð skólans yrði á Akureyri. Og þetta er auðvitað hugsað með tilliti til þeirra mörgu nemenda, sem í slíkum skóla verða og heima eiga í höfuðborginni. Hins vegar mega þeir góðu menn, sem eru að hugsa um heimilisfeður í Reykjavík, sem þurfi að sækja þennan skóla og ekki geti komið börnum sínum á barnaheimili á Akureyri, líka hugleiða það, að skólann í Reykjavík kunna líka að sækja heimilisfeður, sem hafa ekki aðstöðu til þess að koma börnum sínum á barnaheimili hér. Mér sýnist, að barnaheimili hér í Reykjavík geri ekki betur en nægja Reykvíkingum sjálfum.

Ég held nú og minnist þar gamallar reynslu, að það þurfi ekki að taka mjög langan tíma að koma upp Tækniskólanum á Akureyri. Reynslan varð sú, þegar átti að stofna menntaskóla á Akureyri á sínum tíma, að það tók mjög skamman tíma að setja hann á fót. Og þá voru bornar fram alveg sömu röksemdirnar eins og hér hafa komið fram gegn Tækniskólanum, alveg sömu röksemdirnar, að það væri ekki hægt að fá kennslukrafta o.s.frv., en það reyndist enginn vandi að fá kennslukrafta til Menntaskólans á Akureyri, og að öllum öðrum ólöstuðum, þá efast ég um, að þeir kennslukraftar, sem sá skóli hefur notið, hafi staðið neitt að baki þeim kennslukröftum almennt, sem starfað hafa við menntaskólana í Reykjavík. Að öðru leyti get ég vísað til þeirra upplýsinga um möguleika á kennslukröftum og námsaðstöðu, sem fram koma í skýrslu þeirri, sem ég las upp hér áðan.

Ég lofaði því að verða ekki langorður, en mig langaði til að bera fram fsp. til hv. 7. þm. Reykv. Hann hefur nú því miður vikið úr þingsalnum. Ég ætlast ekki heldur til þess, að henni sé svarað á þessum fundi. En hv. þm. sagði, að hann væri því reyndar fylgjandi, að ýmsar opinberar stofnanir væru fluttar úr höfuðstaðnum og dreift um landið. En það mætti bara ekki bera niður á röngum stað. Nú væri borið niður á röngum stað. Þetta hefur maður stundum áður heyrt. Þetta heyrðum við fyrir mörgum árum, þegar talað var um að flytja t.d. Húsmæðrakennaraskóla Íslands til Akureyrar. Það var ekkert húsnæði til þá í Reykjavík, en það var til á Akureyri. Samt var þá sagt, að borið væri niður á röngum stað. En látum það eiga sig. Það, sem mig langar til að fara fram á við þennan hv. þm., er það, að hann nefni eitthvert dæmi um stofnun, sem hann telur, að hægt væri að flytja burt úr Reykjavík, án þess að borið væri niður á röngum stað, nefni þó ekki væri nema eitt dæmi. Ég vona, að einhver skili því til hans, að ég hafi borið fram þessa fsp. og vonist til þess að fá svar við henni, þegar till, kemur aftur til umr. eða fyrr.

Hv. þm., sem síðar talaði, Sigurður Magnússon, komst þannig að orði, að það væri ósæmilegt orðalag í skýrslunni, sem ég las upp áðan, að þetta mál væri prófmál á ákveðna stefnu í landshlutamálum. Ég sé ekki neitt ósæmilegt við þetta, og ég held, að hv. þm. hafi mismælt sig, þegar hann notaði þetta orð. Þetta mál er vissulega prófmál, og ég tek sjálfur alveg undir það, að ég tel það prófmál. En það er ekki eina prófmálið. Það eru fleiri prófmál um þessa stefnu. Þau munu verða og hafa verið flutt á þinginu. Þetta er prófmál, en það er ekki eina prófmálið.

Ég skal svo enda á því, að mér þykir það tiltölulega góð útkoma, að 22% af nemendafundinum, sem haldinn var í Tækniskólanum, skuli hafa óskað eftir því að flytja skólann til Akureyrar. Ég hélt satt að segja, svona eftir atvikum, að þeir mundu verða miklu færri. En ég minnist þess líka, að fyrir 50 árum, þegar fyrst var farið að ræða um það að stofna menntaskóla á Akureyri, þá voru nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík svo að segja allir á móti því, að þetta væri gert. Það var mikill áróður, sem þá var rekinn í skólanum á móti þessari hugmynd, en í lokin fór það svo, og ég man það vel, því að ég var staddur þar, að á nemendafundi í Menntaskólanum var samþykkt með meiri hl. atkv. að mæla með því, að menntaskóli yrði stofnaður á Akureyri. Þannig hafði þeim nemendum aukizt víðsýni við það að heyra umr. um þetta mál og kynna sér það. Þannig vona ég, að fari einnig í Tækniskólanum hér í Reykjavík.