16.11.1971
Sameinað þing: 14. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1089 í D-deild Alþingistíðinda. (4721)

65. mál, happdrættislán ríkissjóðs

Fyrirspyrjandi (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. samgrh. um framkvæmd laga um happdrættislán ríkissjóðs fyrir hönd Vegasjóðs vegna vega og brúagerðar á Skeiðarársandi. Fsp. er á þskj. 70.

Um allmörg undangengin ár hefur áhugi manna beinzt að því að tengja akvegakerfi landsins, opna hringveg um það með vegagerð og brúa á Skeiðarársandi. Með eðlilegum hætti hefur áhuginn verið mestur í þeim héruðum, sem eru við vegarendana, en eru aðskilin og munu við tengingu njóta vegarins mjög í daglegum samskiptum fólksins í Austur- og Vestur-Skaftafellssýslum. En með hverju ári sem líður, hefur þeim, sem eggja til átaka í þessu efni, fjölgað verulega, og er það vel, því að verkefnið er stórt og krefst bæði staðgóðrar þekkingar á staðháttum þar eystra og mikilla fjármuna, svo að endar geti náð saman. Því er samstaða og áhugi fólksins í landinu uppbyggjandi í þessu efni og örvandi.

Vegagerð ríkisins hefur um allmörg undangengin ár haft með höndum umfangsmiklar rannsóknir til undirbúnings framkvæmdum á Skeiðarársandi. Einnig hefur Vegagerðin unnið að framkvæmdaáætlun um lagningu vegarins, eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Vegagerðinni, sem birtist nú fyrir fáum dögum. Á vegáætlun hefur ekki enn verið gert ráð fyrir fjármögnun til þessa verks, enda almennt litið svo á, að vegna þess hve það muni verða fjárfrekt, þurfi að beita þar öðrum úrræðum en venja er til við venjulegar aðstæður og venjulega vegagerð. Með þessar staðreyndir í huga beitti Jónas Pétursson fyrrv. alþm. sér fyrir því á síðasta Alþ., að sett voru lög um happdrættislán ríkissjóðs, en lánið skyldi nota til þess að tengja akvegakerfi landsins með vega- og brúagerð á Skeiðarársandi.

Eins og áður sagði, vinnur Vegagerðin að framkvæmdaáætlunum um lagningu vegarins og telur, að framkvæmdir geti hafizt snemma á næsta vori. Ég fagna mjög þessum yfirlýsingum. En um leið þykir mér rétt að spyrjast fyrir um þann þáttinn, sem að fjármögnun verksins lýtur, þar sem mér vitanlega hefur ekki verið unnið að útvegun fjármagns. Ég tel, að samgrh. beri að hafa forgöngu um þá vegaframkvæmd, sem hér hefur verið gerð að umræðuefni, og því hef ég beint til hans fsp. minni um happdrættislánið, að mér er ljóst, að til framkvæmda kemur ekki snemma á næsta vori, nema hæstv. samgrh. beiti sér fyrir því nú þegar, að lögin um happdrættislán ríkissjóðs verði framkvæmd. Þess vegna spyr ég þessara þriggja spurninga:

1. Hvað líður framkvæmd laganna?

2. Hafa happdrættisskuldabréfin verið gefin út?

3. Hvernig gengur sala þeirra?