16.11.1971
Sameinað þing: 14. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í D-deild Alþingistíðinda. (4723)

65. mál, happdrættislán ríkissjóðs

Fyrirspyrjandi (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans við fsp. minni. Ég þykist sjá, að þessi fsp. hafi orðið til þess að rugga við máli, sem hefur sofið óþarflega lengi í meðförum embættismannanna. Það vakti athygli mína, að þessu máli er fyrst hreyft af samgrn. 24. júní. Síðan er ekki hreyft við því fyrr en 29. okt. og svo aftur eftir að ég hef borið fram mína fsp. Ég sé því, að það hefur ekki verið vanþörf á því, að hún kæmi fram.

Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir það, að hann hefur nú komið hreyfingu á þetta mál, en það er einn hlutur í þessu og meðferð málsins, sem ég vil þó taka fram, að ég er ekki fyllilega sáttur við, og það er hið væntanlega frv., sem Seðlabankinn hefur unnið að að semja varðandi þetta mál. Ég ætla ekki að fella dóm um það, hvort hið væntanlega frv. muni verða til bóta eða ekki. Það getur orðið til bóta, ef það verður þá ekki til þess að tefja málið, sem ég álit, að megi ekki vera. En ég vil gagnrýna það, sem kom fram í svari ráðh., að frv. þetta hefði verið borið undir þm. Austf. Það er út af fyrir sig ágætt. En ég sé ekki, hvers vegna það hefði þá ekki átt að bera það undir aðra þm., eins og þm. Sunnl., því að eins og ég tók fram í ræðu minni áðan, varðar þetta mál ekki sízt þau héruð, sem eru sín hvorum megin við það svæði, sem enn er án vega.

Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta, en þetta vil ég láta koma hér fram, að ég er ekki fyllilega sáttur við, hvernig staðið er að þessum lagabreytingum, sem hér eru boðaðar. Að öðru leyti hef ég ekki ætlað mér að ræða þetta frekar, en ég vænti þess, að þær umr., sem hér hafa orðið, og fsp. mín verði til þess að hraða málinu meira en annars hefði orðið.